Heimsmyndir

PODCAST · religion

Heimsmyndir

Í þáttunum Heimsmynd fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér.

  1. 29

    Heimsmyndir - Valur Arnarson

    Laugardagur 15. febrúar Heimsmyndir - Valur Arnarson Valur Arnarson verkfræðingur og net-aktívisti kom í þáttinn að spjalla um umræðumenninguna í netheimum og vókið. Þeir Kristinn reyndu að segja allskyns hættulega hluti og verða argir og rífast, en þetta varð ósköp vinalegt spjall.

  2. 28

    Heimsmyndir - Valgerður Þ. Pálmadóttir

    Föstudagur 25. október Heimsmyndir - Valgerður Þ. Pálmadóttir Valgerður Þ. Pálmadóttir doktor í hugmyndasögu kom i þáttinn að ræða breytingar á heimsskilningi fólks í gegnum tíðina. Svo tóku þau Kristinn djúpa dýfu í Frankenstein eftir Mary Shelley. Það ótrúlega margbrotna verk.

  3. 27

    Heimsmyndir - Helga Þórey

    Föstudagur 11. október Heimsmyndir - Helga Þórey Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir kom í þáttinn að rýna í unglingabækur frá 8. og 9. áratug síðustu aldar. Hver var siðferðisboðskapur þessara bóka? Var hann heldur kristilegur og íhaldssamur stundum?

  4. 26

    Heimsmyndir - Róbert Jack

    Föstudagur 27. september Heimsmyndir - Róbert Jack Róbert Jack heimspekingur kom í þáttinn að ræða upplifanir af fyrri lífum. Hvað sú þekking eða lífsskoðun gerir fyrir hans heimsmynd. Hafi maður upplifað slíkt vill maður geta rætt það við einhvern. Við erum félagsverur. En er það með góðu móti hægt?

  5. 25

    Heimsmyndir - Nicole Keller

    Föstudagur 13. september Heimsmyndir - Nicole Keller Nicole Keller doktor í jarðefnafræði kom í þáttinn að ræða um reynslu vísindamanns af að finna sig í jóga og hugleiðslu. Loftslagsmál og merkingar-krísan komu einnig við sögu.

  6. 24

    Heimsmyndir - Jóhann Björnsson

    Föstudagur 30. ágúst Heimsmyndir - Jóhann Björnsson Jóhann Björnsson heimspekingur kom í þáttinn að ræða menntaheimspeki: PISA kannanir, væntingar til árangurs og eðli náms. Hvað er hlutverk menntastofnana og hvað segir heimspekin þar um?

  7. 23

    Heimsmyndir - Svanhildur Tinna Ólafsdóttir

    Föstudagur 16. ágúst Heimsmyndir - Svanhildur Tinna Ólafsdóttir Svanhildur Tinna Ólafsdóttir barnasálfræðingur kom í þáttinn að ræða heimsmynd barna á einhverfurófinu. Félagslegur veruleiki fólks sem af einhverjum ástæðum á erfitt með samskipti. Hver er hann og er það að einhverju marki spurning um viðhorf og þjálfun? Svanhildur varpaði ljósi á þær spurningar.

  8. 22

    Heimsmyndir - Óli Stef

    Föstudagur 21. júní Heimsmyndir - Óli Stef Handboltahetjan Óli Stef kom í þáttinn að ræða heimspeki hugvíkkandi efna. Er tilveran ein vitund að máta við sig upplifanir? Eða eru hugvíkkandi efni bara grautur af bulli sem endurspeglar helst skapgerð þess sem þau tekur?

  9. 21

    Heimsmyndir - Heiða Eiríks

    Föstudagur 14. júní Heimsmyndir - Heiða Eiríks Heiða Eiríksdóttir (Heiða í Unun) kom í þáttinn að ræða fyrirbærafræði. Um hvað er þessi dulúðlega grein heimspekinnar? Heiða er í doktorsnámi í heimspeki og er hafsjór af fróðleik um þetta áhugaverða svið greinarinnar.

  10. 20

    Vísindaskáldskapur

    Föstudagur 31. maí Heimsmyndir - Vísindaskáldskapur! Vísindaskáldskapur! Nanna Hlín og Ármann komu aftur í þáttinn að ræða um bókmenntir og heimspeki. Ætti Ursula K. LeGuin að hafa fengið Nobel? Já, segjum við. Frábært spjall um sögur og heima.

  11. 19
  12. 18

    Heimsmyndir - Grétar Halldór Gunnarsson

    Gestur þáttarins er Grétar Halldór Gunnarsson prestur í Kópavogskirkju. Hann kom í þáttinn til að ræða við Kristin um eðli trúar, sem hægt er að skoða bæði trúarlega, sálfræðilega og heimspekilega. Er kristnin með góða nálgun við þetta óræða eitthvað sem við köllum guð? Eru trúarbrögðin viðbrögð við meðvitund um takmarkanir tungumáls og skilnings? Þetta varð flókið og skemmtilegt spjall ólíkra huga.

  13. 17

    Heimsmyndir - Sveinn Guðmundsson

    Heimsmyndir, 26. apríl Sveinn Guðmundsson Gestur þáttarins er Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur við HÍ. Þeir Kristinn reyndu að rýna í heimspeki vinsæls vísindaskáldskapar: Dune, Star Trek og Star Wars. Þessir heimar eru um margt ólíkir. En hugsanlega tengjast þeir engu að síðar þegar betur er að gáð. Sveinn var afar viðræðugóður og skemmtilegur viðmælandi.

  14. 16

    Heimsmyndir - Gustav Adolf

    Heimsmyndir 29. mars Gustav Adolf Gestur þáttarins er Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, nýdoktor í heimspeki. Gústav hefur skrifað afar áhugaverða doktorsritgerð um eðli samskipta þegar kemur að #Metoo og #BLM, um tilhneigingu okkar til að meðtaka ekki efnislega frásagnir þolenda ofbeldis og óréttlætis. Þeir Kristinn ræddu síðan allskyns tengdar vangaveltur um að segja frá og að meðtaka. Frábær gestur hann Gústav. Nýr uppáhalds, eins og í hverri viku.

  15. 15

    Heimsmyndir - Arngrímur Vídalín

    Heimsmyndir, 22. mars Arngrímur Vídalín Gestur þáttarins er Arngrímur Vídalín lektor í íslenskum bókmenntum. Arngrímur sagði frá afar áhugaverðri rannsókn sinni á elstu íslensku handritum, þar sem höfundar virðast hafa reynt að færa Ísland nær Evrópu til að afskrísmslavæða okkur. Þeir Kristinn létu svo gamminn geysa um ýmsar fornar hugmyndir og áhrif þeirra á heimsmynd fólks á miðöldum. Mjög fróður maður hann Arngrímur.

  16. 14

    Heimsmyndir - Eyja Margrét

    Heimsmyndir 15. mars Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki við HÍ er gestur þáttarins. Hún sagði frá frumspeki kynja og kynþátta, hvað verufræði og frumspeki eru og ræddi ýmsar bækur um feminínska heimspeki og feminískar útópíur. Þau Kristinn rifjuðu upp feminísku rökræðurnar á samfélagsmiðlum og veltu fyrir sér árekstrum og árangri í þeim umræðum. Mikil og skemmtileg umræða um eldfim málefni.

  17. 13

    Heimsmyndir - Ármann Halldórsson

    Heimsmyndir 8. mars Ármann Halldórsson Gestur þáttarins er Ármann Halldórsson heimspekingur og kennari við Verzlunarskóla Íslands. Þeir Kristinn fóru um víðann völl og ræddu allt frá heimspekikennslu til mikilvægis fegurðar í ýmsu samhengi. Samtalið varð svo líflegt að það varð það lengsta til þessa. Platon, Yuval Noah Harari og Hegel gamli komu allir við sögu. Sem og möguleg hugsun skóga og sveppa. En hugtak dagsins var mýkt og Kristinn reyndi sem mest hann gat að koma því hugtaki að og selja það. Mýkt!

  18. 12

    Heimsmyndir - Nanna Hlín

    Heimsmyndir 1. mars Nanna Hlín Halldórsdóttir Nanna Hlín Halldórsdóttir, doktor í heimspeki, er gestur þáttarins. Þau Kristinn ræddu vestræna heimspeki og meginlandsheimspeki. En þó aðallega bókina Giving an Account of Oneself eftir Judith Butler. Judith er hán og það fornafn þurftu þau aðeins æfa sig að nota. Gekk ekki snuðrulaust

  19. 11

    Heimsmyndir - Bjarni Randver

    Heimsmyndir 23. febrúar Bjarni Randver Sigurvinsson Gestur þáttarins er Bjarni Randver Sigurvinsson trúar- og guðfræðingur. Bjarni lenti harkalega upp á kant við herskáa guðleysingja árið 2010 og úr því spunnust miklar deilur í um tvö ár. Kristni þótti gleðilegt að fá tækifæri til að biðjast afsökunar á sínum þætti í þeim deilum. Það má deila um allt sem viðkemur réttu og röngu í þeim árekstri hugsuða, en allir hefðu þeir átt að setjast niður og kynnast frekar en að takast á úr fjarlægð.

  20. 10

    Heimsmyndir - Atli Harðarson

    Gestur þáttarins er Atli Harðarson heimspekingur og prófessor í Deild faggreinakennslu. Þeir Kristinn ræddu 17. aldar heimspekinginn Baruch Spinoza, frumspeki hans og tilraunir til endurbóta á trúarhugmyndum samtíma síns. Mun sannleikurinn gera okkur frjáls? Hvað er sannleikur? Atli leiðir okkur í allan... sannleikann.

  21. 9

    Heimsmyndir - Karen Kjartansdóttir

    Gestur þáttarins er Karen Kjartansdóttir athafnakona og hugsjónamanneskja. Þau Kristinn ræddu hvað það merkir að vera trúlaus en finna guðdóminn í einhverju, eins og Karen hafði komið inn á í nýlegri grein. Þau ræddu auk þess samskipti við pólitíska andstæðinga og hvernig maður finnur því farveg að taka sjálfa/n sig ekki of alvarlega þótt mikið gangi á.

  22. 8

    Heimsmyndir - Ólafur í Hvarfi

    Að þessu sinni kemur í þáttinn uppáhalds net-vinur Kristins sem hann hafði aldrei hitt. Mikill þúsundþjalasmiður og hugsuður, hann Ólafur í Hvarfi Ragnarsson. Þeir ræða ævintýrakennda sögu Ólafs, sem og ýmsar ævintýrakenndar hugmyndir um heiminn og tilveruna.

  23. 7

    Heimsmyndir - Björn Þorsteinsson

    Gestur þáttarins er Björn Þorsteinsson prófessor í heimspeki við HÍ. Hann hefur skrifað bókina Verufræði um verufræði, skammtafræði og fyrirbærafræði. Sem allt eru mikil áhugamál þáttarstjórnanda. Þeir Björn reyndu í glettni að koma efnishyggju fyrir kattarnef, en raunverulega stóð aðeins til að kynna fyrir áheyrendum gráa svæðið milli efnishyggju og hughyggju, eða milli skyns og efnis.

  24. 6

    Heimsmyndir - Rannveig Ernudóttir

    Rannveig Tenchi Ernudóttir er guðlaus guðfræðingur, Pírati, varaborgarfulltrúi í leyfi og forstöðukona öldrunarmiðstöðvar á Stykkishólmi. Hún skrifaði eitt sinn BA ritgerð um fermingu unglinga og ræddi við Kristin um hlutverk trúarhugmynda í uppeldi og í sjálfsmynd, í glettni um satanisma og um allt frá draumum til samfélagsumræðunnar um erfið málefni.

  25. 5

    Heimsmyndir - Sindri Guðjónsson

    Sindri Guðjónsson er fyrrverandi formaður Vantrúar. Hann lögræðingur, skáksnillingur og fyrrverandi bókstafstrúarmaður. Hann tók til varna fyrir Nýja Trúleysið sem aðeins hefur verið gantast með í þáttunum. Fróður og klár strákur.

  26. 4

    Heimsmyndir - Rögnvaldur Hreiðarsson

    Í þáttunum Heimsmynd fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér. Rögnvaldur Hreiðarsson er gestur þáttarins. Röggi, eins og hann er kallaður, er rakari og vel þekktur fyrrverandi kröfuboltadómari. Hann er mikill trúmaður í dag og hefur gefið út bókina Guð og menn um sína persónulegu vegferð til trúar. Þeir Kristinn ræddu kirkjuna, sértrúarsöfnuði og hvort trúin sé fólki hvatning til að vera betri manneskjur.

  27. 3

    Heimsmyndir - Sr. Gunnnar Jóhannesson

    Hinn rómaði prestur sr. Gunnar Jóhannesson er gstur þáttarins Gunnar er prestur á Selfossi og fæddur sama ár og þáttastjórnandi eða 1977. Þeir fóru aldeilis sitthvora leiðina í lífinu. Kristinn urrandi trúleysingi en Gunnar heittrúaður prestur. Þeir eru þó ekki svo ólíkir. Báðir mjög uppteknir af stóru spurningunum svokölluðu, um tilgang og eðli tilverunnar Þeir velta við ýmsum steinum í vangaveltum um sannleikann og guð og menningarumhverfi trúaðra og hvort þetta sé allt saman bara leikur í einhverjum skilningi.

  28. 2

    Heimsmyndir - Sigurður Hólm Gunnarsson

    Sigurður Hólm Gunnarsson er gestur þáttarins en Sigurður var snemma viðriðinn Siðmennt á tíunda áratug síðustu aldar og segir góðar sögur úr starfinu og hvernig Vantrú varð til vegna ágreinings í samtökum trúlausra um svipað leiti. Sigurður ræddi um fyrirmyndir sínar, heimsmynd og siðfræði. Í þáttunum Heimsmynd fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér.

  29. 1

    Heimsmyndir - Sr. Jóhanna Magnúsdóttir

    Í þáttunum Heimsmyndum fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér. Gestur Kristins í þessum fyrsta þætti er sr Jóhanna Magnúsdóttir. Þau rifja upp gömul kynni og ræða átökin milli Nýju Trúleysingjanna um aldamót við kirkjuna og trúað fólk og hvort það megi ekki segja ýmislegt jákvætt um það allt saman. Leiðir þeirra lágu saman í frumbernsku bloggsins og samfélagsmiðlanna.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í þáttunum Heimsmynd fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér.

HOSTED BY

Kristinn Theodórsson

Produced by Samstöðin

URL copied to clipboard!