PODCAST · health
Golfstöðin
by Bjarni Már Ólafsson
Golfstöðin er hlaðvarp um allt sem tengist bætingum í golfi. Sérstök áhersla á líkamlega þáttinn, styrktarþjálfun og annað sem getur hjálpað kylfingum að verða betri og spila gott golf án meiðsla. Þáttastjórnandi er Bjarni Már Ólafsson sjúkraþjálfari, golfstyrktarþjálfari og eigandi Golfstöðvarinnar í Glæsibæ sem er golfhermastöð, líkamsrækt og sjúkraþjálfun fyrir golfara.
-
11
Bjarni Þór Hannesson -Yfirvallarstjórinn sem fræðir
Gestur hlaðvarpsins í dag heitir Bjarni Þór Hannesson og er yfirvallarstjóri í Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Hann er mörgum kylfingum kunnugur fyrir það að setja áhugaverð myndbönd inn á samfélagsmiðla er varða golfvallaumhirðu og ástand golfvallanna í Mosfellsbæ. Bjarni er sprenglærður golfvallafræðingur, hefur starfað á mörgum golfvöllum og virðist hafa nokkuð gaman að því að miðla þekkingu á öllu sem tengist grasumhirðu og almennri umsjón golfvalla. Hann segir okkur frá mjög merkilegum nýjungum sem við munum sjá á golfvöllum landsins á næstu árum, segir okkur afhverju við sjáum ekki bakspuna á flötum hérlendis eins og þekkist erlendis, ástand valla eftir veturinn ofl. Hljómsveitin Moses Hightower lánaði okkur upptökuaðstöðu sína að þessu sinni þar sem Golfstöðin var einfaldlega uppbókuð hvern einasta dag. Þess má geta að stef þáttarins er Remix af laginu Sjáum hvað setur með Moses Hightower en Daði Freyr remixaði það svona lista vel. Þátturinn er í boði:HreppamjólkGB ferðirMatlandHreysti
-
10
Sigmundur Einar Másson - Leikskipulag, tölfræði, strokes gained ofl
Sigmundur Einar Másson er einn helsti séní landsins í leikskipulagi í golfi, strokes gained, tölfræði og fleira í þeim dúr. Hann hefur aðstoðað marga af bestu kylfingum landsins við að greina sinn leik og nota tölfræðilega greiningu til þess að skipuleggja sig og sínar ákvarðandi á golfvellinum. Í þættinum fer hann aðeins yfir bakgrunninn og hvernig hann endaði á að sérhæfa sig í þessum fræðum. Hann útskýrir strokes gained tölfræði sem er frekar ný af nálinni og hvernig hann lætur kylfinga skrá öll sín högg til þess að byggja upp gagnagrunn til greiningar. Þátturinn er í boði:HreppamjólkGB ferðirSuitupMatland
-
9
Kylfuhraðaþjálfun
Í þessum þætti köfum við aðeins ofan í kylfuhraða, hvað ákvarðar hann og hvernig hægt er að þjálfa hann. Hvaða máli skiptir kylfuhraði í nútíma golfi og hver er munur á meðalhögglengd eftir forgjöf? Hver eru algengustu mistökin sem kylfingar gera þegar þeir þjálfa kylfuhraðann? Hvernig virka superspeed græjur og hverju skila æfingar með slíkum græjum?Styrktaraðilar þáttarins eru:- Hreppamjólk- Matland- Hverslun- GB ferðir- Suitup
-
8
Guðni Valur - sá högglengsti
Guðni Valur Guðnason er þekktastur fyrir afrek sín í kringlukasthringnum. Hann leynir þó á sér á golfvellinum, er hörku kylfingur og sennilega sá allra högglengsti á landinu með kylfuhraða upp undir 150mph. Guðni Valur lýsir aðeins golfinu sínu, hvernig hann æfir og fleira. Hann segir okkur helstu tölur sem hann á í lyftingum, hvort hann stefni á long drive keppnir ofl skemmtilegt. Styrktaraðilar þáttarins eru:www.matland.iswww.suitup.iswww.gbferdir.iswww.hverslun.iswww.hreysti.is
-
7
Hlöðver Guðnason - Golfkennari eldri kylfinga
Hlöðver Guðnason byrjaði merkilega fullorðinn í golfi miðað við að hann sé PGA golfkennari og lágforgjafar keppniskylfingur. Hann segir okkur söguna af því hvernig hann byrjaði og hvernig ferlið var að lækka sig niður undir 5 í forgjöf. Við ræðum námskeið sem hann kennir í Golfstöðinni þar sem blandað er saman golfkennslu og líkamsrækt fyrir 60 ára og eldri. Í PGA náminu einbeitti Hlöðver sér sérstaklega að þjálfun eldri kylfinga með stoðkerfisvanda og segir okkur aðeins frá lokaverkefninu sem var um það. Hann sjálfur hefur góða reynslu af líkamsrækt fyrir golfið og hefur með henni haldið sér í góðum kylfuhraða og átti sennilega sitt besta golftímabil í sumar. Eftirtaldir aðilar styðja við hlaðvarpið:- Matland- GB ferðir- Hverslun- Suitup- Hreysti
-
6
Birgir Björnsson kylfusmiður - mýtur tengdar kylfumælingum ofl
Birgir Björnsson er pga kennari, kylfusmiður og allsherjar grúskari. Í þættinum ræða Biggi keisari, eins og hann er kallaður, heimsókn Bjarna Más til hans í kylfumælingu, hvað kom útúr þeirri mælingu og hvað Biggi gat ráðlagt honum. Í framhaldi ræða þeir hverjir hafa þörf á kylfumælingum, algengar mýtur í kringum slíkar mælingar og hvaða hluti verið er að hugsa við val á mismunandi kylfum og búnaði. Þeir ræða stuttlega einnar lengdar kylfur eins og Bryson notar, breytta gráðutölur á járnum í dag, vinsældir trékylfa síðustu ár o.s.frv.Styrktaraðilar þáttarins eru:HreystiSuitupMatlandGB ferðirHverslunGolfstöðin
-
5
Styrktarþjálfun golfara
Í þessum þætti fjallar Bjarni Már sjúkraþjálfari- og golfstyrktarþjálfari um grunnatriðin í styrktarþjálfun golfara. Hvernig gagnast styrktarþjálfun golfurum, hvernig eiga golfarar að vera að lyfta öðruvísi en aðrir og svarar nokkrum algengum spurningum sem varðar málið. Styrktaraðilar þáttarins eru:GB ferðirHverslunSuitupMatlandHreystiwww.golfstodin.is
-
4
Grétar Eiríksson - Elva golf
Í þessum þætti kemur Grétar Eiríksson PGA kennari og einn af stofnendum Elva golf og segir okkur frá þessu áhugaverða íslenska nýsköpunarfyrritæki. Þeir hafa þróað hárnákvæmt greiningartæki sem greinir hreyfingar kylfinga í öreindir, nánast um leið og slegið er. Fyrstu básar eru komnir í gagnið og Bjarni Már fór fyrir þáttinn í greiningu hjá Grétari sem sýndi honum græjurnar og greindi sveifluna.Styrktaraðilar þáttarins eru:H-verslunGB ferðirSuitupHreystiMatland
-
3
Ragga Kristins - Mælingar, æfingar og golfið
Gestur þáttarins er Ragga Kristins atvinnukylfingur. Hún fer yfir TPI Hreyfigreiningar sem hún hefur farið í, fyrst fyrir tveimur árum og svo sama dag og þátturinn var tekinn. Við ræðum niðurstöðurnar, hvernig hún æfir sig bæði í ræktinni og hvernig hún æfir sig í golfi. Ragga gefur okkur góða innsýn inní hennar tölur, markmið og áherslur í æfingum. Við förum talsvert á dýptina varðandi kylfuhraða, styrktaræfingar ofl.
-
2
Kynningarþáttur
Í þessum þætti kynnum við hlaðvarpið Golfstöðina. Hvað verður tekið fyrir í framhaldinu, hver er þáttastjórnandinn og við hverju má búast. www.golfstodin.isSamstarfsaðilar þáttarins eru: Hreysti GB ferðirSuitup Matland
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Golfstöðin er hlaðvarp um allt sem tengist bætingum í golfi. Sérstök áhersla á líkamlega þáttinn, styrktarþjálfun og annað sem getur hjálpað kylfingum að verða betri og spila gott golf án meiðsla. Þáttastjórnandi er Bjarni Már Ólafsson sjúkraþjálfari, golfstyrktarþjálfari og eigandi Golfstöðvarinnar í Glæsibæ sem er golfhermastöð, líkamsrækt og sjúkraþjálfun fyrir golfara.
HOSTED BY
Bjarni Már Ólafsson
Loading similar podcasts...