PODCAST · sports
Klefinn með Silju Úlfars
by Silja Úlfars
Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! https://klefinn.is/https://www.instagram.com/klefinn.is/
-
70
Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar
Júlían J.K. Jóhannsson er þekktur fyrir framúrskarandi árangur í kraftlyftingum. Júlían hefur ekki aðeins sett Íslands- og Evrópumet, heldur hefur hann þrisvar sinnum sett heimsmet í réttstöðulyftu. Þá á Júlían á tvö brons frá Heimsmeistaramótinu í Kraftlyftingum og þá var hann Íþróttamaður ársins 2019. Júlían ræðir ferilinn sinn, hvernig hann byrjaði í kraftlyftingum, stórmótin og "skákina" bak við tjöldin, að toppa á réttum tíma, næringin, lyfjamál og margt fleira.Þá segir hann okkur betur frá kraftlyftingum og fer yfir hverja grein fyrir sig og hvað þú getur gert til að bæta þig í þeim, þá hefur líkamsbygging áhrif á greinarnar. Júlían á 415 kg í hnébeygju, 332,5 kg í bekkpressu og 409 kg í réttstöðulyftu. Júlían er með Kraftlyftingarskólann þar sem hann þjálfar og kennir fólki Kraftlyftingar á öllum aldri. Júlían hitti Silju og þau tóku video þar sem hann fer yfir ákveðin grunn atriði í Kraftlyftingum, þar fór hann yfir Hnébeygju, Bekkpressu og Réttstöðulyftu. Þú getur horft á video hér - LYFTINGARÆFING MEÐ JÚLÍAN. Hvetjum ykkur til að hlusta og horfa á sterkasta fasteignasala landsins og þú mátt endilega deila. Fylgdust með á instagram:@klefinn.is@julianjkj@kraftlyftingaskolinn@siljaulfarsHægt að horfa á þáttinn hér.
-
69
Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri”
Emil Hallfreðsson fyrrum knattspyrnumaður kom í Klefann og ræddi "passionin" sín, frá knattspyrnu, í umboðsmennsku, ítalska matargerð og fleira. Emil var atvinnumaður í knattspyrnu, hann spilaði fyrir íslenska landsliðið og hefur verið með annan fótinn á Ítalíu síðustu ár. Þá er hann með Knattspyrnuskóla á Ítalíu þar sem hann fer með ungt knattspyrnufólk út og þau æfa við bestu aðstæður. Emil ræðir atvinnumennskuna, fer yfir liðin og þróun ferilsins síns, landsliðið og allskonar áskoranir. Þá ræðir hann einnig Olifa, fyrirtæki sem hann og eiginkona hans Ása Regins reka með mikilli ástríðu. Hvetjum ykkur til að hlusta og deila. Fylgdust með á instagram:@klefinn.is@emil_hallfredsson@siljaulfars
-
68
Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein
Fanney Þóra var nýbökuð móðir á bleiku skýi með þriggja mánaða gamalt barn þegar hún greinist með Choriocarcinoma krabbamein og þarf strax að hefja meðferð. Fanney segir frá greiningunni, að vera nýbökuð móðir með krabbamein og hvað stuðningur fjölskyldunnar í baráttunni skiptir miklu máli. Hún ræðir endurhæfinguna og ljósið og að byggja sig upp aftur þegar þú hefur týnt þér. Fanney hefur alltaf verið í handbolta og talar um hvaða hlutverk handboltinn og Kaplakriki spilaði í öllu þessu ferli. Fanney segir einlægt frá þessari lífsreynslu sinni og við hvetjum þig til að hlusta og deila, við þurfum öll á góðum sigursögum að halda. Þú getur hlustað á hana, en þá er einnig hægt að horfa á þáttinn á YouTube og á Spotify, athugið að í video má einnig sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu. Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna.Takk fyrir að hlusta Fylgdu okkur á instagram:@klefinn.is@fanneythora@siljaulfars
-
67
Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein
Mist Edvardsdóttir var landsliðskona í knattspyrnu þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein aðeins 23 ára gömul. Mist fer yfir ferilinn sinn, en á hátindi ferilsins þegar hún var að ná markmiðunum sínum kom krabbameins greiningin. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig fótboltinn hjálpaði henni í þessari baráttu, Mist missti aðeins af þrem leikjum á tímabilinu í miðri krabbameinsmeðferð. Mist segir hreinskilnislega frá þessari lífsreynslu sinni og það er ekki hægt annað en að fyllast aðdáun að hlusta á frásögn hennar. En myndi hún vilja breyta einhverju? Það er hægt að hlusta og horfa á þáttinn, á YouTube má sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu. Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna.Takk fyrir að hlusta, þú mátt endilega deila, hver veit hver þarf að fá sigursögu einn daginn. Fylgdu okkur á instagram:@klefinn.is @mistedvards@siljaulfars
-
66
Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn. Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið og ýmislegt fleira. Það getur oft verið skemmtilegra að horfa á íþróttafólkið þegar maður þekkir aðeins til þess.Ísland á þrjá keppendur á mótinu Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í sleggjukasti 14. septemberSindri Hrafn Guðmundsson keppir í spjótkasti 17. septemberErna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi - 20. septemberVið vonumst til að þetta geri mótið enn meira spennandi fyrir ykkur. Gleðilegt HM Fylgdu endilega Klefanum á instagram: @klefinn.is
-
65
Hrefna Hlín - Verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka
Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka kom í Klefann og hleypti okkur aðeins bak við tjöldin á Reykjavíkurmaraþoninu. Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að halda svona stóran hlaupaviðburð fyrir mörg þúsund manns. Hrefna segir okkur frá því hvernig dagarnir fyrir hlaup eru, hvernig þau halda utan um verkefni 600 sjálfboðaliða, Fit & Run, brautarmælingar, af hverju þau hættu að nota byssuna í startinu og fleira. Þá eru reglulegar breytingar á Reykjavíkurmaraþoninu og verða áfram, t.d. verður endamarkið á nýjum stað 2026. Í ár var hægt að kaupa keppnismiða eða almennan miða í hlaupið, en hóparnir starta ekki á sama tíma. Nú er uppselt í 21 km og líklegt þykir að fleiri vegalengdir seljist upp. Þú getur skráð þig í hlaupið hér. Góðgerðarfélögin skipa stóran sess í hlaupinu og söfnunin gengur vel og verður gaman að fylgjast með síðustu dögunum fyrir hlaup, þú getur heitið á hlaupara á hlaupastyrkur.is. Þegar þú mætir í miðbæinn þann 23. ágúst þá hvet ég þig til að horfa í kringum þig og skoða umgjörðina, hvetja hlauparana og þakka sjálfboðaliðunum fyrir sitt starf.Þátturinn er í boði Íslandsbanka og Íþróttabandalags Reykjavíkur.@[email protected]
-
64
Elísa Viðars - Næring Hlaupara - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Elísa Viðarsdóttir næringarfræðingur kom í Klefann til að ræða næringu hlaupara þar sem nú nálgast Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem fer fram 23. ágúst.Elísa deilir dýrmætum ráðum um hvernig hlauparar geta bætt frammistöðu sína með réttri næringu og undirbúningi. Þá er farið yfir mikilvægi næringar fyrir hlaupara, hvernig á að undirbúa sig fyrir hlaup, orkuinntöku, kolvetnahleðslu og hvernig á að nýta gel og drykki á hlaupadögum, ásamt því að ræða næringu eftir hlaup til að hámarka endurheimt. Elísa leggur áherslu á að hlusta á líkamann og aðlaga næringu að persónulegum þörfum.Hvetjum ykkur til að hlusta og vonandi læra eitthvað nýtt og það gerir hlaupadaginn þinn betri. Gangi þér vel og ekki gleyma að skrá þig á RMI.is. Elísa Viðars - @elisavidars - [email protected] Ekki gleyma að fylgja Klefanum á instagram @klefinn.is og @siljaulfars.Einnig væri frábært ef þú skelltir í "follow" á Spotify og ratings. Þátturinn er í boði ÍBR og Íslandsbanka
-
63
Erla Björnsdóttir - Betri Svefn
Ein besta recovery aðferð íþróttafólks er svefn, Dr. Erla Björnsdóttir kom í Klefann og fræddi okkur meira um það. Erla er stofnandi og framkvæmdagstór Betri Svefns, hún er sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum og með sérþekkingu á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Erla ræddi svefnvenjur, áhrif svefns á heilsuna, hvað er gott svefn umhverfi og sagði okkur hvers vegna svefn er mikilvægur fyrir íþróttafólk. Hvað áttu að gera ef þú ert andvaka eða átt erfitt með að vakna á morgnanna. Þá ræðir hún mataræði, orkudrykki, og fleira sem hefur áhrif á svefninn okkar og hvað við getum gert til að bæta svefninn. Það og fleira um svefn. Þá eru þau með appið SheSleep sem hjálpar fólki að mappa svefninn sinn, en einnig ræðir Erla aðeins Breytingarskeiðið og svefn. Mátt endilega ýta á "subscribe" nú og kannski skella í "rate the show". Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @betrisvefn@[email protected]@siljaulfars
-
62
Hreiðar Haraldsson - Hugarþjálfari
Hreiðar hjá Haus Hugarþjálfun aðstoðar íþróttafólk, foreldra og þjálfara að byggja upp hugarfarslega þætti eins og sjálfstraust, einbeitingu og liðsheild. Hugarþjálfun er eitthvað sem íþróttafólk ætti að skoða. Hreiðar ræðir þægindahringinn og hvernig við stækkum hann, hvernig við eigum að fókusa á það sem við stjórnum, hvernig hugrekki skiptir máli, þá fer hann yfir kvíða, stress og segir frá sinni nálgun í markmiðasetningu með íþróttafólki.Hvetjum þig til að hlusta. Frekari upplýsingar finnur þú á Haus.is.Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]@siljaulfars
-
61
Baldur Þór Ragnarsson – Körfuboltaþjálfari og Íslandsmeistari
Nýkrýndur þjálfari Íslandsmeistari karla í Körfubolta mætti í Klefann og fór víða, Baldur fór yfir þjálfaraferilinn, þjálfun, styrktarþjálfun körfuboltafólks, hugarfarið og hans þjálfara speki. Hvernig hann skapar liðsheildina, teymið í kringum liðið, traust milli þjálfara og leikmanna, hlutverk þeirra, foreldravandamál og margt fleira. Þá fór hann með okkur yfir úrslitarimmuna og hvernig hann skoðaði leikina og lagði áherslur á. Hann sagði okkur hvernig hann nýtti umfjöllunina til að búa til sviðsmynd fyrir leikmenn þar sem þeir voru "underdogs" í þessu Playoffs.Leikmenn segja hann góðan að sjá veikleika og að hann tækli það strax innan liðsins, "ef það eru vandræði, þá leysir hann það strax."Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @baldurragn@[email protected]@siljaulfars
-
60
Birgir Sverrisson - Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands
Birgir Sverrisson framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands er sestur hjá mér og við ætlum að ræða lyfjamál. Á heimasíðu Lyfjaeftirlitsins stendur að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að vernda hreint íþróttafólk og standa vörð um að íþróttir séu iðkaðar á jafnréttisgrundvelli. LyfjaprófBannlistarADHD lyfFæðubótaefniog margt fleiraÞá er einnig farið inn á hagræðingu úrslita og veðmál sem það tengist heilindum í íþróttum eins og lyfjamálin. Þetta er klárlega þáttur sem íþróttafólk og/eða foreldrar ættu að hlusta á og hafa á hreinu.Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @klefinn.is@siljaulfars
-
59
Davíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍ
Davíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla kom í Klefann og ræddi starfsemi KSÍ og hugmyndafræði þeirra varðandi uppbyggingu leikmanna frá unga aldri upp í atvinnumennsku.Davíð hefur starfað sem þjálfari hjá Leikni, allt frá yngri flokkum upp í meistaraflokk. Þá hefur Davíð þjálfað yngri landslið Íslands og er nú aðstoðarþjálfari A-landsliðsins, en hann er með KSÍ Pro gráðuna sem gerir honum kleift að þjálfa á efsta stigi.Davíð ræðir þróunina sem hefur verið hjá KSÍ síðustu ár, hvernig Lars Lagerback og Heimir Hallgríms lögðu grunninn að hugmyndafræðinni sem KSÍ er að vinna með og hvernig það er verið að byggja ofan á þann grunn og unnið að því að efla landsliðs starfið á öllum stigum. Við fáum að skyggnast inn í víðamikla starfsemi KSÍ, hvernig þau byggja upp íslensk landslið frá yngri leikmönnum til atvinnumanna. Hann deilir með okkur hvernig skipulagið er í æfinga- og keppnisferðum allt frá yngri flokkum og upp í A-landsliðin. Davíð talar mikið um mikilvægi þess að byggja upp sterka liðsheild, hvernig leikmenn læra helstu áherslur þar sem öll þurfa að vera á sömu blaðsíðu og svo margt fleira. Þess má geta að í video upptökum þáttarins á Spotify eða YouTube má sjá glærur úr fyrirlestri frá honum. Ef þú hefur áhuga á fótbolta, þjálfun og vita hvað þarf til að komast á toppinn þá ættir þú að hlusta. Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @davidsnorri@[email protected]@siljaulfars
-
58
Ólafur Loftsson - Afreksstjóri GSÍ
Ólafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi.Í spjallinu fer hann yfir:Vegferð sína sem afrekskylfings, reynslu hans á bandaríska háskólakerfinu og hvernig hann aðstoðar ungt afreksfólk við að komast í skóla með golfstyrk.Hlutverk PGA á Íslandi og þróun golfíþróttarinnar hér heima.Starf hans sem afreksstjóri GSÍ, markmið sambandsins og verkefni á sviði afreksmála.Stærstu verkefni og mót sumarsins, bæði heima og erlendis.Golf14 verkefnið og mikilvægi fjölbreyttrar íþróttaiðkunar hjá börnum.Andlega og líkamlega þáttinn.Ráð til bæði kylfinga um hvernig bæta má leik sinn í sumar.Þáttur sem enginn golfáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Peppið var svo mikið að Silja fór að skoða golfkennara eftir þetta spjall.Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]@siljaulfars
-
57
Jimmy Ekstedt - fyrrum landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins
Jimmy Ekstedt er Svíi með sterkar tengingar við Ísland, hann þjálfar hér á landi og er giftur íslenskri konu og saman eiga þau tvær stúlkur. Þegar þátturinn var tekinn var hann landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins en hefur nú sagt upp störfum þar og tekið að sér verkefni á Íslandi.Þótt Jimmy komi úr fimleikunum þá hefur hann þjálfað íþróttafólk úr öllum íþróttum, þátturinn er því fyrir fólk sem hefur áhuga á íþróttum unglinga og afreksfólks! Jimmy ræðir þjálfarahlutverkið, hvað gerir góðan þjálfara og mikilvægi þess að skapa jákvætt umhverfi fyrir íþróttafólk og framtíð íþróttaþjálfunar. Tíðahringur íþróttafólksins, kynþroskaskeiðið, hvenær á að byrja að sérhæfa sig, íþróttaforeldrar og eru íþróttir barnanna orðið að fjölskyldu "business"? Hann segir hvernig Svíar skoða meiðslasögu íþróttafólksins þegar kemur að landsliðsvali, næringu íþróttafólk, mikilvægi þess að fylgja skipulögðu æfingaplani og að ná markmiðunum sínum. Þá segir hann frá nýju concepti í Svíþjóð sem er Íþrótta áhalda banki (Sport equipment bank). Jimmy hefur áhyggjur að íþróttir á Íslandi séu að dragast aftur úr, hvort við séum stöðnuð og spyr hvar eru fyrirmyndirnar, því þær hvetja jú til íþróttaiðkunar. Skelltu þér í göngutúr og taktu Jimmy Ekstedt með þér. Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]@siljaulfars--- Jimmy Ekstedt Former national team director of Swedish gymnasticsIn this conversation, Jimmy discusses his journey as a coach in gymnastics, the importance of creating a positive environment for athletes, and the role of nutrition and parental support in sports. He emphasizes the need for self-determination among athletes and the significance of following a structured plan to achieve their goals. The discussion also touches on injury prevention, the evolution of coaching philosophies, and the future of sports coaching.A good coach sets boundaries and creates a fun environment. Creating a safe and enjoyable environment helps retain athletes. Education for coaches is essential for athlete development. Parents should support their children without interfering. Injury prevention is a priority in gymnastics training. Athletes should follow a structured plan to achieve their goals.
-
56
Gestur Pálmason - Stjórnendaþjálfari
Gestur Pálma hefur komið víða við, hann er meðal annars fyrrum sérsveitarmaður og segir okkur frá því ferli. Í dag starfar hann sem stjórnenda þjálfari hjá Complete og sagði okkur frá áhugaverði nálgun stjórnenda.Gestur hefur unnið með mikið af íþróttafólki og þá hefur hann aðstoðað hlaupara í bakgarðinum og ræðir sumar áskoranir þeirra.Gestur ræðir leiðtoga og hvernig þú færð liðið til að vinna vel saman og svo er hann að vinna með Formúlu 1 liði og segir okkur aðeins frá því. Streita, startegía og margt fleira, hvetjum þig til að hlustaSamstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]@siljaulfars
-
55
Perla Ruth Albertsdóttir - Landsliðskona í handbolta
Perla Ruth Albertsdóttir er landsliðskona í handbolta, hún mætti á sína fyrstu handboltaæfingu 17 ára og segir okkur frá því þegar hún byrjaði, hvernig hún æfði með yngri flokkum til að fá verkefni við hæfi og eyddi mörgum kvöldum að henda bolta í vegg til að læra grunnatriðin. Perla segir frá vegferð sinni í landsliðið eftir að hafa byrjað frekar seint í handbolta, en hún á 157 leiki með íslenska landsliðinu og hefur skorað í þeim 138 mörk. Í gær tilkynnti hún að hún væri ólétt af sínu öðru barni og keppir því ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni HM núna í vikunni. Landsliðið mætir Ísrael í tveimur leikjum þann 9. og 10. apríl, sigurvegarinn í þessum tveimur leikjum tryggir sér sæti á HM. Vegna öryggisástæðna verður leikurinn lokaður áhorfendum, hægt verður að horfa á leikinn í sjónvarpinu.Þá eiga þær Perla og Sandra Erlings saman fyrirtækið P.S.Árangur þar sem þær aðstoða fólk við næringar og lífstíls ráðgjöf. Hvetjum ykkur til að hlusta - Áfram Ísland.Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]@klefinn.is@siljaulfars
-
54
Pétur Rúnar Heimisson - Markaðsmál íþróttafélaga
Pétur Rúnar Heimisson er markaðs- og þjónustustjóri hjá fasteignafélaginu Heimum.Pétur hvetur íþróttafélög til að leggja meira áherslu á markaðsmál því það muni skila sér á endanum til félagsins. Núna er úrslitakeppnin hafin í handbolta og körfubolta og knattspyrnu tímabilið að hefjast, hvað eru íþróttafélögin að gera á samfélagsmiðlum. "Vörumerki íþróttafélaga eru með þeim verðmætustu á Íslandi. Á sama tíma er markaðsstarfi þeirra stýrt af sjálfboðaliðum."Farið víðan völl í þættinum- Vörumerki- Hugverkastofa og skráð vörumerki- Samskipti við foreldra- Að móta stefnu í markaðsmálum- Markaðsmál er meira en bara samfélagsmiðlar- Íþróttaliðin á instagramSamstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]@siljaulfars
-
53
Sigrún Haraldsdóttir - Happy Hips og bandvefslosun
Sigrún Haraldsdóttir er eigandi Happy Hips, sem er æfingakerfi þar sem hún blandar saman bandvefsnudd, hreyfiflæði, teygjur og slökun til að fá sem mest út úr líkamanum. Hún mætti með Beinu með sér og við skoðuðum líkamann og hvernig við getum látið hann vinna með okkur. Sigrún fór yfir margt í þættinum eins og: Hvernig við rúllum okkur og hvað gerist í líkamanumHvernig bolta viljum við frekar og af hverjuHvenær á ungt fólk að byrja að rúlla sigHvað er bandvefur (spiderman gallinn) og hvað gerir hann?Trigger punktar, hvað er það og hvernig vinnum við á þeim?Hvernig þú ættir að rúlla fyrir æfingar og hvernig eftirÞau sem stækka hrattHvað er sogæðakerfi og taugakerfi og hvernig hefur að rúlla áhrif á það tvennt.Vagus taugin (flökku taugin) Vöðvabólga, beinhimnabólga, IT bandið, Osgood Schlatter, hvernig við nuddum iljarnarDjúpteygjur og hvernig er gott að teygja?og ýmislegt fleira! Það var svo margt nytsamt sem kom þarna fram, þú verður hreinlega að hlusta, eða helst að horfa (getur það á youtube eða á Spotify)! Við getum glatt ykkur að fljótlega tökum við svo upp þætti með svona "rúllu tímum" og þú getur þá nýtt þér eða kíkt á Sigrúnu á Happyhips.is og fengið ítarlegri leiðbeiningar. Samstarfsaðilar Klefans eru: Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]@siljaulfars
-
52
Viran Morros - retired Spanish handball player
Viran Morros þykir einn besti varnarmaðurinn í handbolta síðustu 20 ára. Viran er spænskur 41 árs retired handboltamaður sem lék meðal annars með Barcelona Ciudad Real, Paris saint-germain, Fuchse Berlin og fleirum. Viran á bronz frá Ólympíuleikunum, þrjár medalíur frá Heimsmeistaramótinu og fjórar frá Evrópumeistaramótinu, þá hefur hann þrisvar sinnum unnið Meistaradeild Evrópu með Barcelona. Viran hefur meðal annars spilað með Ólafi Stefáns, Guðjóni Val, Aroni Pálmars og Sigfúsi Sigurðssyni og hann talar um þá reglulega í þættinum. Talant Dujshebaev þjálfari kom til tals og í lokin þá má heyra hljóðskilaboð frá Talant sjálfum þar sem hann ræðir Viran. Viran er að undirbúa handboltanámskeið á Íslandi í sumar - frekari upplýsingar koma inn síðar - en þú finnur frekari upplýsingar hér @international.handball. Í þættinum þá fer hann yfir íslendingana sem hann lék með og gegn, liðin sem hann lék með, hann ræðir varnar vinnu sem hann er sérfræðingur í, handbolta unglinga, spænska landsliðið og margt fleira. Spurningar til hans komu frá þjálfurum, foreldrum og metnaðarfullum handbolta iðkendum á öllum aldri.Njótið vel.Samstarfsaðilar Klefans eru: Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @[email protected]. @[email protected]ímalína Í grófum dráttum4:20 - Handball Camp in Iceland in June14:10 - Icelandic players - Youth training- Icelandic national team - More about the Icelandic players46:20 - Growing up in FC Barcelona53:00 - Ciudad Real and Talant Dujshebaev57:27 - What made you the best defender? 1:07:55 - Spanish National Team- New way of handball? - Would you change any rules in handball? 1:20:48 - Let´s talk defense1:37:30 - Questions from young players 1:50:00 - Message from Talant Dujshebaev
-
51
Kristinn Jónasson - Skattamál íþróttafélaga og körfubolti
Kristinn Jónasson er lögmaður og eigandi hjá KPMG Law. Kristinn er einnig formaður körfuboltans í Haukum, en sjálfur lék hann með Haukum lengi. Þá er hann einnig einn af stofnendum körfuboltaliðs Hauka Special Olympics liðsins. Undanfarið hefur verið rætt um skattalegt regluverk í tengslu m við íþróttafélög, sem er mikið áhyggjuefni innan íþróttahreyfingarinnar. Kristinn skrifaði grein "Íþróttahreyfingin glímir við skattyfirvöld" og hélt fyrirlestur um viðfangsefnið. Þetta snertir íþróttalífið í landinu svo hann kom og ræddi skattamálin í Klefanum. Launþegar vs. verktakar, hvernig er gervigreindin að koma inn í þetta, áhrifin sem þetta getur haft á starf sjálfboðaliða, launa umhverfi hópíþrótta, gervi verktakagreiðslur, auglsýingaskiltin og margt fleira! Samstarfsaðilar Klefans eru: Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @klefinn.is
-
50
Unnar Helgason - Osteopati
Unnar Helgason er Osteopati og þjálfari, hann segir okkur frá samvinnu hans og Gunnars Nelsons sem á nú bardaga í mars. Þá vinnur hann með Eygló Fanndal sem keppir í Ólympískum lyftingum og hefur komið einmitt í Klefann. Þá hefur hann einnig unnið með fólki frá Hollywood þegar þau eru í tökum hér á landi og segir okkur aðeins frá því. Unnar fer yfir ýmislegt tengt líkamanum, axlaræfingar, mjaðmir, kálfar og fleira. Þá segir hann okkur hvað Osteopadia er og hvað hann gerir með sínum kúnnum. Þá ræðir hann einnig hvernig þú þjálfar elite íþróttafólk, static teygjur, hreyfiteygjur, pnf teygjur, Power Leak, Core æfingar, Zone æfingar og að vinna með einkenni þar sem sársaukinn er viðnám og margt fleira. Hvetjum þig til að hlusta! Samstarfsaðilar Klefans eru: Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. Þú finnur frekari upplýsingar um Unnar hér - @unnarh. @[email protected]@siljaulfars
-
49
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Landsliðskona í knattspyrnu
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 23 ára er leikmaður leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, en er á láni frá Bayern Munich. Karólína er ein af lykil leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins, hún hefur leikið um 50 leiki með landsliðinu og ræðir EM sem fer fram í Sviss í sumar og stemmninguna í landsliðinu. Karólína fer yfir ferilinn og leiðina að atvinnumannaferlinum í Þýskalandi, hvernig gekk að aðlagast og hvernig æfingavikurnar eru uppsettar. Hún ræðir mótlæti og að það geti verið krefjandi þegar spilað er kerfi sem hentar ekki þínum leikstíl. Karólína svarar spurningum frá næstu kynslóð og margt fleira. Samstarfsaðilar Klefans eru Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun. Endilega fylgist með Karólínu Leu á instagram @[email protected]@siljaulfars
-
48
Dr. Birna Varðardóttir - REDs - Orkuskortur í íþróttum
Dr. Birna Varðardóttir hefur síðustu 10 ár verið að mennta sig í því sem tengist næringu og þjálfun, þá hefur hún mikið verið að skoða hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, eða það sem við köllum REDs (Relative Energy Deficiency in sport). Á sínum tíma glímdi Birna við átröskun og þar af leiðandi langaði hana að skilja betur hvað gerðist í líkamanum og hvers vegna. Birna gerði doktorsverkefnið sitt um REDs og fer aðeins yfir niðurstöðurnar ásamt því að ræða um átröskun, endurheimt, næringu og fleira. Samstarfsaðilar Klefans eru Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun. Endilega fylgist með Birnu á @sportbitarnir@birnavardar
-
47
Remix: Aron Pálmars & Logi Geirs
Bæði Logi Geirs og Aron Pálma hafa kíkt í Klefann og rætt sinn feril, margt svipað með þeim og greinilegt að Logi hafði allskonar áhrif á Aron. Það er fyndið að bera saman sumar sögurnar þeirra, hér eru einhverjar sögurnar klipptar saman.Hlustaðu hér á Loga Geirsson.Hlustaðu hér á Aron Pálmarsson.Nú eru þeir í sviðsljósinu á HM á sitthvorum vettvangnum og þá er gaman að rifja upp eitt og annað. Ég hef nú ekki áður tekið svona saman, en væri gaman að heyra hvort þið hafið gaman af - sendu mér endilega skilaboð á @siljaulfars eða @klefinn.is.Samstarfsaðilar Klefans eru - Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.
-
46
Aron Pálmarsson - Landsliðsfyrirliði
Aron Pálmarsson einn besti handboltamaður Íslands og jafnvel einn sá besti í heimi. Aron hefur leikið með mörgum af bestu liðum heims eins og Kiel, Veszprém, Barcelona, Álaborg og FH. Aron hefur unnið marga af helstu titlum í Evrópu, verið íþróttamaður ársins, rookie of the year í Þýskalandi, valinn í All Star Team á Ólympíuleikunum, MVP í Championship league og fleira. Aron fer yfir ferilinn, segir okkur sögur frá hverjum stað, eins og þegar öfuga jólatréð mætti til Kiel og að það borgi sig ekki að stanga Alfreð Gíslason. Einnig segir hann frá vandræðunum hjá Veszprem þegar hann fór þaðan síðast og hvernig það kom til að hann er kominn þangað aftur í dag. Nú er HM að hefjast og Aron fer yfir landsliðsferilinn, mótið, markmið, formið og fleira. Þá svaraði hann spurningum úr sal mjög samviskulega. Hvetjum ykkur til að hlusta og Áfram Ísland.Tímaramminn5:40 - Hvernig HM leggst í Aron14:15 - Formið og keppnisþyngdin16:00 - Íþróttir á yngri árum21:20 - Logi Geirsson24:15 - Kiel og fyrstu árin í atvinnumennskunni31:25 - Öfuga jólatréð mætti til Kiel34:30 - Veszprém38:25 - Stormasamur viðskilnaður við Veszprém45:45 - Fer aftur til Vesprém 2024 - sögustund55:27 - Barcelona og Aalborg 57:30 - Nútíma handboltamenn - þróun59:35 - Auglýsingahlé í boði Bæjarbakari1:02:03 - Íslenska landsliðið1:03:20 - London 2012 - 5. sæti - mikil vonbrigði1:05:50 - Markmiðið fyrir HM 251:08:40 - af hverju ertu ekki bara alltaf góður? 1:11:10 - Snorri þjálfari og Aron fyrirliði1:14:15 - Að spila fyrir Ísland og pressan1:22:00 - Recovery gamla mannsinsVeikleikar, styrkleikar, mótlæti, hverju ertu stoltastur yfir og hver eru næstu skref. Samstarfsaðilar Klefans eru Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun, þá þökkum við Bæjarbakarí sérstaklega [email protected]@aronpalm@siljaulfars
-
45
Elísabet Gunnarsdóttir - Knattspyrnuþjálfari
Elísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu kvenna knattspyrnu. 2023 hætti hún hjá Kristianstad til að róa á önnur mið og við bíðum spennt að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur. Elísabet segir frá sínum fyrstu skrefum sem þjálfari, ræðir liðin og áskoranirnar sem hún hefur upplifað, og hvað hún myndi gera öðruvísi í dag sem yngri flokka þjálfari. Hún ræðir mistökin sem þroskuðu hana sem þjálfara og af hverju henni finnst Besta Deildin hafa þróast of hægt á síðustu 16 ár. Elísabet ræðir möguleika kvennalandsliðsins á EM í sumar og fer yfir það sem hún telur styrkleika og veikleika liðsins. Þá ræðir hún einnig hvort hún vilji þjálfa karlalið og að hún hefði elskað það challenge að taka til í karlaliði Vals í sumar.Elísabet hefur skemmtilega sýn á að búa til samhelt lið, einhverjir myndu næstum kalla það sértrúarsöfnuð. Hún ræðir hvaða eiginleika leikmenn þurfa að hafa og hvernig hún notar litríkt excel skjal með dass af "Flow" til að velja í liðið sitt. Hún notar mismunandi nálganir á leikmenn, ræðir sjálfstraust þeirra og þjálfara.Elísabet segir söguna þegar hún plataði milljónamæring á fund til að ræða styrktar umhverfi íþróttafélaga og hvernig það þurfi að vera win win fyrir klúbbinn og samfélagið. Hún gefur ráð til þjálfara og íþróttafólks og margt fleira. Hvetjum ykkur til að hlusta og fylgjast vel með Elísubetu 2025!@[email protected]@Siljaulfars
-
44
Eygló Fanndal Sturludóttir - Ólympískar lyftingar
Eygló Fanndal Sturludóttir er 23 ára læknanemi og ein sú besta í Ólympískum Lyftingum í -71 kg flokki. Í ár hefur Eygló sannað sig sem eitt af framtíðarstjörnum í Ólympískum lyftingum, hún varð Norðurlandameistari, Íslandsmeistari, Evrópumeistari U23 og í 4rða sæti á Heimsmeistaramótinu núna í desember. Þá var hún hársbreidd frá því að komast inn á Ólympíuleikana og ræðir um áætlanir hennar fram að 2028 Ólympíuleikunum. Í Ólympískum lyftingum er keppt í Snörun og Jafnhendingu (clean & jerk), en keppt er í samanlögðum árangri í þessum greinum. Í þættinum ræðir hún hvernig æfingavikan er sett upp, tæknin sem þarf að huga að og fleira. Einnig ræðum við mikilvægi næringar og endurheimtar.Við þökkum samstarfsaðilum Klefans, Auður, Hafið fiskverslun, Lemon, og Nutrilenk fyrir stuðninginn. Hvetjum ykkur til að hlusta og fylgjast vel með Eygló 2025!@[email protected]@Siljaulfars
-
43
Guðbjörg Gunnarsdóttir - Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsins
Guðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi.Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri landsliðum sænska knattspyrnusambandsins, ásamt því að halda í fyrirlestra fyrir sænska sambandið sem snúast um markmannsþjálfun, þróun markvarða og hvernig best er að leggja upp æfingar fyrir markmenn. Þá sér hún einning um gæðastjórnun í menntun markvarðarþjálfara hjá Knattspyrnusamböndum Stokkhólms og Gotlands. Guðbjörg ræðir um áherslur í markmannsþjálfun í Svíþjóð, innihald á æfingum og hvernig hægt er að vinna í andlegum þætti markvarða ásamt mörgu öðru.Þátturinn er í boði Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Velkomið að senda á hana skilaboð ef þú hefur spurningar 👉🏼@[email protected]@Siljaulfars
-
42
Snorri Steinn Guðjónsson - Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður
Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri Steinn spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi. Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræðir ferilinn, silfurverðlaunin og deilir reynslu sinni af mótlæti, meðal annars að klikka á mikilvægu víti á Ólympíuleikunum.Þá fengum við spurningar frá ungu íþróttafólki sem Snorri vandaði sig að svara. Snorri hvetur alla til að nenna að leggja sig fram og ná sínum markmiðum.Þátturinn er í boði Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun. 3:15 - Undirbúningur fyrir HM og vona að leikmenn meiðist ekki.8:25 - Þjálfa Val - hvernig það hlutverk er öðruvísi10:35 - Traust til leikmanna og að landsliðsmenn skilji sín hlutverk13:20 - Mótlætið og fara í fílu, "ég er mikill fan af mótlætinu, ég held að það gerist ekkert gott nema með mótlætinu".14:20 - Hvaða áhrif að klúðra vítinu á ÓL hafði á Snorra18:20 - Undirbúningurinn fyrir HM og æfingar fyrir HM21:30 - Aron Pálmarsson fór aftur út til Veszprem23:44 - Að velja lokahópinn fyrir HM26:20 - ráð til yngri flokka sem komast ekki í hópinn29:26 - Svekktur með hefbundinn undirbúning fyrir HM og ræðir hvernig mótið leggst í hann32:50 - Að vera í sigurliði34:25 - Hvernig býrðu til lið úr einstaklingum?39:06 - Dagskrá landsliðsins úti48:00 - Að upplifa gagnrýni54:00 - Hvað er mikilvægt fyrir ungt íþróttafólk að huga að til að ná sem lengst?57:10 - Að æfa fleiri íþróttagreinar, "því meira því betra". 1:00:40 - ræddi um Val og liðin sem hann var í1:08:15- "blautur bak við eyrum og hélt ég væri frábær þjálfari".1:16:20 - Hæfileikamótun og menntaskólaaldurinn1:23:10 - Spurningar frá yngri kynslóðinni @Klefinn.is@Siljaulfars
-
41
XJ - Arnar Páll Gunnlaugsson
Arnar Páll Gunnlaugsson frá Sósíalistaflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:4:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 13:05 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi18:15 - Brottfall og stytting menntaskóla24:10 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn25:50 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@meistariarnar@siljaulfars@sosialistaflokkurinn
-
40
XB - Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason frá Framsókn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: (Ásmundur snertir þessi atriði út um allt í þættinum en tímalínan er gróf).15:55 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 33:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi40:15 - Brottfall og stytting menntaskóla48:42 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn58:35 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@asmundureinar@siljaulfars@framsokn
-
39
XP - Theodór Ingi Ólafsson
Theodór Ingi Ólafsson frá Pírötum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:8:25 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:10 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi21:25 - Brottfall og stytting menntaskóla26:20 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn28:05 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@teddilebig@siljaulfars@piratar
-
38
XS - Hannes S. Jónsson
Hannes S. Jónsson frá Samfylkingunni kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:12:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 31:45 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi37:37 - Brottfall og stytting menntaskóla45:30 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn50:50 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@hannes_sigurbjorn@siljaulfars@xs_samfylkingin
-
37
XC - Hanna Katrín Friðriksson
Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Hér má sjá stefnu Viðreisnar um Íþróttir og tómstundir. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 7:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 23:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi29:25 - Brottfall og stytting menntaskóla37:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn40:35 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@hannakatrinfridriks@siljaulfars@vidreisn
-
36
XV - Bjarki Hjörleifsson
Bjarki Hjörleifsson frá Vinstri Grænum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 5:10 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 14:20 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi23:40 - Brottfall og stytting menntaskóla31:14 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn35:52 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@bjarkihj@siljaulfars@vinstrigraen
-
35
XM - Anton Sveinn McKee
Anton Sveinn McKee frá Miðflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:8:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 20:30 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi25:00 - Brottfall og stytting menntaskóla27:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn29:30 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@antonmckee@siljaulfars@midflokkurinn
-
34
XD - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 5:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:40 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi25:45 - Brottfall og stytting menntaskóla32:00 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn34:20 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@aslaugarna@siljaulfars@sjalfstaedis
-
33
Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?
Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að skrifa niður markmiðið og endurskoða þau reglulega. Markmiðasetning hefur víðtæk áhrif á íþróttafólk, á jákvæðan hátt, þá er gott að skoða sig og þekkja sína styrkleika og veikleika. Margrét Lára fer yfir muninn á mismunandi markmiðumFrammistöðumarkmið Færnimarkmið Niðurstöðutengd markmið„Hlutir geta farið í allar áttir, ef maður er samviskusamur og tekur þetta föstum tökum og gerir sitt besta þá getur maður alltaf verið sáttur við niðurstöðuna,“ segir Margrét Lára. Mælum með að þú takir glósur, gefi þér tíma að skoða hvað þú þarft að vinna í til að ná þínum markmiðum og hefjist svo handa. Gangi þér velÞátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@[email protected]@Siljaulfars
-
32
Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur
Margrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni. Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin sín, lærdóminn og meiðslin sem höfðu mikil áhrif á hana. Margrét lék með öllum landsliðum Íslands á sama tíma, en í dag myndi hún gera þetta öðruvísi. Þá segir hún frá upplifuninni þegar hún sleit krossböndin rétt fyrir EM og hvernig hún vann sig í gegnum það. Sálfræðingurinn Margrét Lára gefur einnig góð ráð og smá innsýn inn í huga íþróttafólks, hún ræðir meiðsli og óttanum sem getur fylgt þeim, kvíðann, félagskvíðann, að hafa hugrekki, hvernig við bætum sjálfstraust og hvernig þjálfarar geta aðstoðað íþróttafólkið sitt. Þá gefur hún einnig góð ráð til foreldra og hvetur ungt fólk til að vera í fjölbreyttri hreyfingu og hafa hugrekki.Þetta og fullt annað í þessum þætti, en á fimmtudag kemur út markmiðaþáttur með Margréti Láru. Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@[email protected]@Siljaulfars4:00 - knattspyrnuferillinn8:30 - Meiðslin12:20 - Íþróttamaður ársins15:35 - Landsleikir og að spila með öllum landsliðunum22:20 - Afreksmiðuð of snemma og fjölbreyttar íþróttir29:20 - Heil Heilsumiðstöð33:50 - Meiðsli íþróttafólks og óttinn sem fylgir40:20 - Forgangsröðun, Menntaskólarnir og brottfall42:45 - Meiðsli og hlutverk þjálfara43:45 - Krossbandaslit fyrir EM 47:00 - Hvað geta þjálfarar gert? 51:20 - Kvíði íþróttafólks52:30 - Koma aftur eftir barnseignir55:35 - Ótti og kvíði, félagskvíði, hverjir eru triggerarnir1:02:10 - Þjálfarar og samtal við íþróttafólkið1:04:40 - Félagskvíði og að fara inn í aðstæður 1:17:15 - Andlegur styrkur1:21:10 - hlutverk foreldra1:24:45 - Halda börnum í íþróttum, höfnun og fleira1:28:00 - Hver er þín hleðsla?1:36:55 - Imposter Syndrome1:41:20 - Sjálfstraust og sjálfstal
-
31
Erlingur Richardsson - handboltaþjálfari
Í þessum þætti ræðum við við Erling Richardsson íþróttafræðing og handboltaþjálfara Austuríska liðsins Mödling og akademíunnar í Vestmannaeyjum. Erlingur ræðir þjálfaraferilinn, reynslu sína að þjálfa í nýju umhverfi, að setja saman teymið sitt, velja fyrirliðann og að byggja upp skipulagða þjálfun fyrir ungt íþróttafólk. Erlingur talar um mikilvægi þess að æfa fleiri íþróttir og seinka sérhæfingu íþróttafólks, þá ræðir hann einnig hugmyndir um hvernig sé hægt að efla íþróttakennslu, mikilvægi fjölbreytni í íþróttum og hreyfingu fyrir börn og hvernig er hægt að búa til betra umhverfi fyrir ungt íþróttafólk. Erum við á réttri leið með akademíur, afreksstefnu og sérhæfingu unga íþróttafólksins okkar? 2:00 – Mödling þjálfara verkefnið19:40 – Akademían í Vestmannaeyjum23:40 – Íþrótta akademíur – niðurstöður sláandi25:20 – Leikfimikennsla31:00 – Þjálfun erlendis34:20 – Að finna góðan fyrirliða44:30 – Saudi Arabía49:15 – Sérhæfing ungs íþróttafólks – barnastjarna eða afreksmaður1:02:00 – Rannsóknir, Belgía, og fleira.1:05;40 – Ef Erling mætti ráða, hvernig myndi hann setja þetta upp1:11:50 – FjölskyldanÞátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á [email protected]@Siljaulfars
-
30
Arnar Sölvi - Íþróttanæringarfræðingur
Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur. Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira. Margt kom fram í þættinum meðal annars: Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og eftir æfingar MorgunæfingarFæðubótaefni, prótein, kreatín og fleiri fæðubótaefniLíkamssamsetning, þyngjast, léttast og fleira.15% afsláttur á Hreysti.is með kóðanum KLEFINN - hvetjum þig til að nýta ykkur afsláttinn.Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@[email protected]@Siljaulfars
-
29
Lára Hafliðadóttir - Þjálfun kvenna og tíðahringurinn
Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar. Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og að konur ættu að tracka tíðahringinn sinn, þá fer hún einnig yfir hormónabreytingar, getnaðarvarnir og fleira. Það er mikilvægt að opna umræðuna um blæðingar því það er eitthvað sem allar konur upplifa, þá er mikilvægt að karlar og þjálfarar þekki þetta einnig. Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@[email protected]@Siljaulfars
-
28
Brynjar Benediktsson - Soccer & Education USA
Brynjar Benediktsson kom í Klefann og sagði okkur hvernig ungt íþróttafólk getur farið út til Bandaríkjanna á háskólastyrk. Brynjar er eigandi Soccer and Education USA ásamt konu sinni Jónu Kristínu Hauksdóttur. Árlega aðstoða þau um 80 íþróttafólk að fá skólastyrk til Bandaríkjanna í fótbolta, körfubolta, frjálsum, sundi og golfi. Brynjar segir okkur frá ferlinu til að komast út, hann gefur góð ráð fyrir undirbúninginn og hleypir okkur betur inn í þennan Bandaríska heim. Það er gott að huga að þessu snemma og við hvetjum ykkur til að hlusta á þennan þátt og fara strax að elta draumana ykkar. Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@[email protected]@Siljaulfars
-
27
Kristín Þórhallsdóttir - Kraftlyftingakona
Kristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet. Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð, þá fer hún aðeins yfir Kraftlyftingarnar, en þar er keppt í samanlögðum árangri í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ef þú ert að spá í tölum Kristínar þá á hún 230 kg í hnébeygju, 125 kg í bekkpressu, 240 kg í réttstöðulyftu.Kristín er dýralæknir og tveggja barna móðir, en annar strákurinn hennar er langveikur með sjaldgæft heilkenni. Hvetjum þig til að hlusta, það er greinilega aldrei of seint að byrja á nýju áhugamáli! Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@[email protected]@Siljaulfars
-
26
EM í götuhjólreiðum
Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september. Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km. Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambands Íslands sagði okkur frá mótinu og umstanginu í kringum það, þá heyrðum við í Elite keppendunum ásamt Davíði sem keppir í U23. Í þættinum ræða þau meðal annars undirbúninginn, næringuna, olnbogana, hvað þarf að huga að og hvernig svona keppni fer fram.Þátturinn er í boði Útilífs, Auður, Lemon, Hafið fiskverslun og NutrilenkHvetjum ykkur til að hlusta og til að styðja við íþróttafólkið, en þú finnur þau hér:EliteBríet Kristý GunnarsdóttirHafdís SigurðardóttirKristinn JónssonSilja JóhannesdóttirU23Björgvin Haukur Bjarnason Breki Gunnarsson Daníel Freyr Steinarsson Davíð JónssonÞú finnur okkur á [email protected]@siljaulfars@icelandcycling
-
25
Anton Sveinn Mckee - sundmaður og Ólympíufari
Anton Sveinn McKee sundmaður og fjórfaldur Ólympíufari settist hjá Silju og fóru yfir það hvað er að vera afreksíþróttamaður. Anton gerði upp Ólympíuleikana hvað var öðruvísi og truflaði keppendur einnig ræddi hann hvað er frammundan þegar skýlan nálgast hilluna. Þá sagði hann okkur ítarlega frá hvernig hann setur markmið og hvernig hann brýtur þau niður og hvað hann gerir til að ná þeim, hvernig vinnur hann í andlega þættinum og notar dagbók og sjónmyndaþjálfun. Næringin, æfingarnar og lyftingarnar. Þetta er áhugaverður þáttur fyrir allt íþróttafólk sem vill ná árangri. Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@[email protected]@Siljaulfars
-
24
Ingeborg Eide - kastari og Paralympics fari
Ingeborg Eide Garðarsdóttirer kúluvarpari úr Ármanni og keppir í flokki F37 í kúluvarpi, en hún er ein af fimm sem keppa fyrir Íslands hönd á Paralympics sem fer fram í París dagana 28. ágúst - 8. september. Ingeborg á Íslandsmetið í kúluvarpi sem er 9.83 m og þá á hún einnig íslandsmetið í kringlukasti. Hún keppir á Paralympics þann 31. ágúst í kúluvarpi. Ingeborg þekkir stórmótin vel en hún á bronz frá Evrópumeistaramótinu 2021 og endaði í 4. sæti á HM í maí. Ingeborg ræðir sinn íþróttaferil, æfingarnar og vegferðina að Paralympics ásamt markmiðunum þar. Einnig útskýrir hún flokkana og prófin sem þau fara í til að setja þau í rétta flokka, þá ræðir hún hvernig á að þjálfa fatlaða einstaklinga og er með skilaboð til foreldra fatlaðra barna. Hvetjum ykkur til að hlusta á þessa mögnuðu íþróttakonu. Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram @[email protected]@Siljaulfars@npciceland
-
23
Frjálsíþrótta Ólympíu þáttur
Ólympíuleikarnir eru á fullu og það styttist í frjálsíþróttaveisluna. Silja settist niður og tók saman 4 frjálsíþróttafréttir sem henni finnst áhugaverðar sem snúa að frjálsum á Ólympíuleikunum. 4:30 mín - Purple Speed King9:30 mín - Repechage / endurtekningar umferð14:00 mín - leiðin að Ól … eða ekki19:30 mín - Ólympíu verðlauna afhending 12 árum seinna... skellur!Klefinn er í boði Nutrilenk, Útilíf, Hafið fiskverslun og Lemon. Endilega fylgdu Klefanum á instagram.
-
22
Vésteinn Hafsteinsson - Afreksstjóri ÍSÍ
Vésteinn Hafsteinsson er einn sigursælasti þjálfari okkar Íslendinga og nú er hann fluttur heim og starfar sem Afreksstjóri ÍSÍ. Sem þjálfari þá hefur Vésteinn þjálfað 56 einstaklinga frá 10 löndum sem hafa samanlagt náð í 20 verðlaun á alþjóðlegum stórmótum - þar af 5 verðlaun á ÓL. Hann er nú á leið á sína 11 Ólympíuleika en í nýju hlutverki, hann hefur farið áður sem íþróttamaður, þjálfari og nú sem afreksstjóri og yfir farastjóri. Vésteinn ræðir í þættinum árangur, hugarfar, framtíðina, hvað einkennir góðan íþróttamann og þjálfara og fleira, hvetjum ykkur til að hlusta. Þátturinn er í boði Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á [email protected]@siljaulfars
-
21
Hlaupaspjall Klefans í Útilíf
Þann 25. júní vorum við með hlaupaspjall í Útilíf þar sem Afreksfólk Útilífs settist niður með Silju. Þorsteinn Roy og Andrea Kolbeinsdóttir hlauparar svöruðu ýmsum spurningum um hlaup, undirbúning og fleira, þá var einnig Hildur Kristín sjúkraþjálfari með og svaraði spurningum um hlaupara meiðsli og gaf ráðleggingar..Í þættinum ræða þau upphitun, recovery aðferðir, hreyfiflæði, hlaupaskó, meiðsli og annað sem er gott að hafa í huga. Þetta er klárlega þáttur fyrir hlaupara og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref. Gangi þér vel á hlaupum og endilega taggaðu okkur. Þátturinn er í boði Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun. Þú finnur okkur á instagram: @klefinn.is@thorsteinnroy@andreakolbeins@hildurksveinsdottir@siljaulfars
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...