Elísabet Gunnarsdóttir - Knattspyrnuþjálfari

EPISODE · Jan 7, 2025 · 1H 36M

Elísabet Gunnarsdóttir - Knattspyrnuþjálfari

from Klefinn með Silju Úlfars · host Silja Úlfars

Elísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu kvenna knattspyrnu. 2023 hætti hún hjá Kristianstad til að róa á önnur mið og við bíðum spennt að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur. Elísabet segir frá sínum fyrstu skrefum sem þjálfari, ræðir liðin og áskoranirnar sem hún hefur upplifað, og hvað hún myndi gera öðruvísi í dag sem yngri flokka þjálfari. Hún ræðir mistökin sem þroskuðu hana sem þjálfara og af hverju henni finnst Besta Deildin hafa þróast of hægt á síðustu 16 ár. Elísabet ræðir möguleika kvennalandsliðsins á EM í sumar og fer yfir það sem hún telur styrkleika og veikleika liðsins. Þá ræðir hún einnig hvort hún vilji þjálfa karlalið og að hún hefði elskað það challenge að taka til í karlaliði Vals í sumar.Elísabet hefur skemmtilega sýn á að búa til samhelt lið, einhverjir myndu næstum kalla það sértrúarsöfnuð. Hún ræðir hvaða eiginleika leikmenn þurfa að hafa og hvernig hún notar litríkt excel skjal með dass af "Flow" til að velja í liðið sitt. Hún notar mismunandi nálganir á leikmenn, ræðir sjálfstraust þeirra og þjálfara.Elísabet segir söguna þegar hún plataði milljónamæring á fund til að ræða styrktar umhverfi íþróttafélaga og hvernig það þurfi að vera win win fyrir klúbbinn og samfélagið.  Hún gefur ráð  til þjálfara og íþróttafólks og margt fleira. Hvetjum ykkur til að hlusta og fylgjast vel með Elísubetu 2025!@[email protected]@Siljaulfars

NOW PLAYING

Elísabet Gunnarsdóttir - Knattspyrnuþjálfari

0:00 1:36:47

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Já OK Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð? Hlaðvarp Myntkaupa Myntkaup Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum.Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store. Sterk saman Tinna Gudrun Barkardottir Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar. Með lífið í lúkunum HeilsuErla Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
URL copied to clipboard!