Skip to content
054 - President Starkey episode artwork

Mar 8, 2022 2 hr 34 min

054 - President Starkey

from KISS Army Iceland Podcast

Hvað er KISS ARMY? Hvaðan er KISS ARMY? Hver stofnaði KISS ARMY og hvers vegna? Við fáum svör við þessu öllu ásamt fleiru í þættinum í dag. Þegar Bill Starkey var 17 ára gamall uppgötvaði hann KISS sem um leið varð hans uppáhalds hljómsveit. Útvarpsstöðin heima í Terre Haute í Indiana, Bandaríkjunum hafði þó ekki sama áhuga á KISS og hinn ungi Bill. Hann tók þá til sinna ráða og ásamt vini sínum Jay Evans stofnuðu þeir eitthvað sem þeir nefndu The KISS ARMY árið 1975. Um var að ræða aðdáendaklúbb sem hafði það hlutverk að þrýsta á útvarpsstöðvar til þess að spila KISS sem og að greiða aðrar götur bandsins eftir fremsta megni. Áður en Bill Starkey vissi af var hann kominn í innsta hring hljómsveitarinnar sem hann hélt svo mikið upp á. KISS flugu honum út um öll Bandaríkin þar sem hann var viðstaddur tónleika þeirra sem og hina ýmsu viðburði á vegum bandsins. Mætti í veislur þeirra, borðaði með þeim, gisti á hótelum með þeim og var ávallt með góðan og gildan baksviðspassa. Þetta var rússíbanareið sem loks tók þó enda eins og allir rússíbanar gera. Það var svo ekki fyrr en á tíunda áratug síðustu aldar sem KISS ARMY lifnaði við á ný fyrir alvöru og það með góðri aðstoð frá sjálfum Tommy Thayer af öllum. Bill Starkey óraði aldrei fyrir því að litli klúbburinn hans sem hann stofnaði þarna fyrir þessum 47 árum myndi verða að því alheims fyrirbæri sem það er. KISS ARMY er viðurkenndur aðdáendaklúbbur KISS og er í dag starfræktur í tugum landa út um allan heim og meðlimir eru mörg þúsund. Þó að Bill Starkey sé stofnandi klúbbsins (og sé þannig forseti forsetanna) þá er hann ekki við stjórnvölin í dag. Þau völd missti hann ungur að árum þarna þegar rússíbaninn stöðvaðist. Við hringdum til Indianapolis og áttum einstakt spjall við herra Bill Starkey þar sem hann fór yfir þetta allt með okkur og svaraði nokkrum vel völdum spurningum. Afar ánægjulegur þáttur.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

054 - President Starkey

0:00 2:34:20

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of KISS Army Iceland Podcast?

This episode is 2 hours and 34 minutes long.

When was this KISS Army Iceland Podcast episode published?

This episode was published on March 8, 2022.

Can I download this KISS Army Iceland Podcast episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.