KISS Army Iceland Podcast
by KISS ARMY ICELAND
Þrír miðaldra karlmenn fjalla um allt á milli himins og jarðar.....bara svo lengi sem það er um hljómsveitina KISS. Heiðar Aðaldal Jónsson (forseti KISS ARMY ICELAND), Atli Hergeirsson og Páll Jakob Líndal eru allir forfallnir aðdáendur hljómsveitarinnar KISS og taka hér fyrir hin ýmsu málefni tengd bandinu.
Episodes
-
099 - Djúpnetið
Peter okkar Criss gaf út sína fyrstu sólóplötu í 18 ár þann 19.desember s.l. aðeins einum degi áður en hann fagnaði 80 ára afmæli sínu. Plötuna er erfitt að nálgast í netheimum en þættinum tókst það þó og hér förum við yfir þessa plötu sem sennilegast er hans síðasta afurð. Við dustum líka rykið…
more -
098 - Ace Frehley 1951-2025
Við komum saman eftir nokkuð langt hlé og að beiðni forseta, til að fara yfir andlát elsku Ace Frehley og öllu sem því tengist.
-
097 - Útpressa
Við sáum okkur knúna til að henda í einn neyðarþátt þar sem margt er að grasserast í KISS heimum þessa dagana. Okkar menn eru að koma saman á ný og halda þannig upp á 50 ára afmæli KISS ARMY í Vegas síðar á þessu ári, 2025. Við höfum nú slegið á þráðinn til Bill Starkey af minna tilefni. Við…
more -
096 - The Broken Crack (1979 - seinni hluti)
Við höldum hér yfirferð okkar áfram um sögu KISS þar sem við skellum henni að venju í takt við tíðaranda þess tíma sem fjallað er um hverju sinni. Þegar Dessarinn og Kramerinn trufluðu okkur vorum við rétt búnir að klára fyrri part ársins 1979. Eins og við komum inn á í þeim þætti (og við vissum...
-
095 - Eddie "Fokking" Kramer
Eddie Kramer er nafn sem allir KISS aðdáendur þekkja, og reyndar mun fleiri til enda á hann alveg ótrúlegan feril að baki. Burt séð frá störfum hans með Led Zeppelin, The Beatles, Jimi Hendrix og þeirri staðreynd að hann var sá sem hljóðritaði Woodstock hátíðina árið 1969 þá gerði þessi maður…
more -
094 - Desmond Child / Christmas Special
Jóla-Special í ár er ansi stór biti krakkar mínir. Einkaviðtal við sjálfan Desmond Child. Allir KISS aðdáendur þekkja þetta nafn. Hann samdi "I was made for loving you" með Paul, hann samdi "Heaven´s on fire" með Paul og sirka 14 lög í viðbót. Svo auðvitað samdi hann "Poison" með Alice Cooper og...
-
093 - Norður-Amerískar Mýrarkanínur (1979 - fyrri hluti)
Árið 1978 mokaði KISS samsteypan inn seðlum eins og enginn væri morgundagurinn. Það var því nóg til þegar árið 1979 gekk loks í garð. En þegar hér er komið sögu var farið að hrikta verulega í stoðunum og samstarfið gekk ekkert frábærlega hjá okkar mönnum. Frægð og frami hafði verið draumurinn sem...
-
092 - "Rað í punginn"
Loks var komið að því óumflýjanlega. Við vissum að þessi dagur kæmi. Þetta var erfitt á marga vegu en við teljum okkur hafa komist nokkuð vel frá þessu, annað en herra Stanley reyndar. Það þurfti nánast að draga forsetann okkar inn í Stúdíó Sannleikans fyrir þessar upptökur. En þegar hann loks...
-
091 - Rúllustigar (1978 - seinni hluti)
Hér tökum við fyrir seinni hluta ársins 1978. Þetta var ekki fjörugasta árið í KISSögunni, en þó gerðist nú nokkuð hjá okkar mönnum. Sólóplöturnar fjórar litu dagsins ljós ásamt auðvitað sjónvarpsmyndinni KISS: Meets The Phantom Of The Park sem frumsýnd var á NBC sjónvarpsstöðinni þar sem nánast...
-
090 - Soja Salúýt (1978 - fyrri hluti)
Við erum komnir að árinu 1978. Í þessum þætti tökum við fyrir fyrri hluta þessa ágæta árs í KISSSögunni sem við svo berum auðvitað saman við hina almennu sögu. Á þessu ári var lítið um túralíf hjá okkar mönnum svona miðað við fyrri ár hið minnsta, en aðeins var um leyfar af ALIVE II túrnum að…
more -
089 - Miklu meira en spenntir!
Ace Frehley gaf út sína tíundu sólóplötu á dögunum. Þar sem hann er orðinn 73 ára gæti vel farið svo að um svanasöng Ása sé að ræða, hver veit? Er þessi plata nægilega góð til að vera hans síðasta? Hér förum við yfir það allt saman og hendum meira að segja í stigagjöf upp á gamla mátann. Við...
-
088 - Føroyskur Forsetur í Gøtu? (1977 - seinni hluti)
Hér tökum við fyrir seinni hluta ársins 1977 hjá okkar mönnum. Þetta er árið sem þeir toppuðu og áttu heiminn, enda á yfirborðinu var ekkert nema bjart framundan. Yfirferð okkar í hinu sögulega ljósi heldur hér áfram. Forsetinn kemur með sláandi "fréttir" og Starpower gluggar í Tímann og segir...
-
087 - Tugur, tólf & tríó (1977 - fyrri hluti)
Við erum komin að árinu 1977 í þessari sögulegu yfirferð okkar um KISSÖGUNA. Sennilega er þetta ár það ár sem okkar menn eru algerlega á toppnum á sínum ferli. En þetta er líka árið þar sem maskínan fer að liðast í sundur. KISS fá sín fyrstu verðlaun á ferlinum og það fyrir lagið Beth. Spurning...
-
086 - Vilhjálmur Starkaðsson
KISS hafa lagt árar í bát eftir 50 farsæl ár. Á lokatónleikum sínum í MSG, NY þann 2.desember 2023 kynntu þeir þó nýtt upphaf með orðunum "A New Era Begins" þar sem þeir ætla sér að notast við gervigreindina á komandi árum. Í þessum þætti förum við yfir það allt saman og reynum að koma okkar…
more -
085 - Vasaprentari (1976 - seinni hluti)
Seinni hluti þessa stóra og mikilvæga árs í KISSÖGUNNI, 1976. Okkar menn halda áfram túrnum sem nú breyttist í "Spirit of ´76 tour". Þeir drita frá sér smáskífum og fara í Star Theatre ásamt Eddie "effing" Kramer til að taka upp næstu plötu. Vélin er farin af stað og verður að fá olíu. Endalausa...
-
084 - Bandaríkjafólkið (1976 - fyrri hluti)
Við gerðum heiðarlega tilraun til að koma árinu 1976 fyrir í einum þætti. Það var bara ekki hægt, þannig að við skiptum upp þessu ári í tvo þætti. Seinni hlutinn er svo væntanlegur um viku síðar. Það gekk nefnilega ofboðslega mikið á hjá KISS á árinu 1976. Við erum að tala um að á árinu komu þrír...
-
083 - Gulur bíll!
Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí ætlum við að hita upp fyrir veturinn. Það hefur margt gerst í KISS heimum á meðan við vorum í fríinu þannig að við tökum sér þátt um það í þetta skiptið áður en lengra er haldið með ártölin góðu. Við tvískiptum þættinum og í fyrri hlutanum skoðum við hvað…
more -
082 - Prins Póló (1975)
Við erum komin að árinu 1975. KISS senda frá sér tvær plötur þetta ágæta ár. Dressed to kill kemur í mars en síðar á árinu mætir fyrsta tónleikaplatan þeirra, platan sem öllu breytti. ALIVE! Þetta og svo mikið og miklu meira í þessum þætti þar sem við höldum einnig áfram að gera tilraun til að...
-
081 - Daylight Saving (1974)
Við höldum áfram að fara yfir KISSÖGUNA. Við erum komin á fyrsta heila KISS-árið, 1974. Okkar menn senda frá sér tvær breiðskífur þetta ár en hvorugar seldust sérlega vel. Bill Aucoin og Neil Bogart höfðu þó sterka trú á verkefninu og lögðu allt undir, sér í lagi umboðsmaðurinn Bill ásamt…
more -
080 - Þorskageit (1973)
Í þessum fyrsta þætti í nýju fyrirkomulagi þáttarins tökum við fyrir árið sem bandið var stofnað. Upphafið. Árið er 1973. Ace kemur til liðs við tríóið sem skipað var Gene, Paul & Peter og bandið varð fullmótað. Við skoðum hvað var að gerast í tónlistarsenunni á þessum tíma? Voru augljósir...
-
079 - Dísel músin
Fyrsta „læf“ plata okkar manna, KISS ALIVE! bjargaði ferli þeirra. Önnur „læf“ platan, ALIVE II, festi þá í sessi sem stórstjörnur á heimsvísu og sú þriðja sannaði að þeir gætu náð árangri og gert gott mót án tveggja upprunalegra meðlima og án frægu andlitsmálningar sinnar. Svo hvað gæti KISS...
-
078 - Fimmtíu ár!
Við ákváðum að skella í einn aukaþátt sem við getum kallað "örþátt" (enda ekki nema rétt yfir klukkustund að lengd), og ekki að ástæðulausu góðir hálsar. Því daginn sem þátturinn kemur út (þann 30. janúar) eru einmitt 50 ár upp á dag síðan KISS spiluðu á sínum fyrstu tónleikum á Coventry klúbbnum...
-
077 - Ættarmótið
Herra Paul Stanley fagnaði 71 árs afmæli sínu nýverið og því fögnum við öll, meðal annars í þessum fyrsta þætti ársins 2023. Það er af nægu að taka enda heillangt síðan síðast. Mál málanna í þættinum að þessu sinni eru þó störf okkar manna með öðrum listamönnum, en sem meðlimir KISS á sama tíma....
-
076 - Spirit of ´76
Við lofuðum JÓLA-SPECIAL og við stöndum við það. Og ekki bara það, við tjöldum öllu til í þetta skiptið enda komnir í hátíðarskap. Við áttum stórkostlegt spjall við hinn eina sanna Jean Beauvoir þar sem við fórum um víðan völl en þó að sjálfsögðu með áhersluna á KISS. Eins og hlustendur vita þá...
-
075 - Opinn Hi-Hat
Í þessum síðasta þætti KISS ARMY ICELAND PODCAST (the touring band) sem er númer 75 í röðinni tökum við fyrir KISS ALIVE! síðan 1975. Platan sem breytti öllu fyrir Gene, Paul, Ace og Peter. Þátturinn sem tekinn var upp ALIVE með gesti í sal laugardagskvöldið 8.október 2022 er með örlítið breyttu...
-
074 - Kakó með rjóma
Þessi misserin eru 49 ár síðan fjórir ungir piltar skröltu saman inn í BELL SOUND hljóðverið í New York til að taka upp sína fyrstu plötu. Kannski sína einu? Því enginn vissi þá hvað næstu 50 árin myndu gefa af sér. Í febrúar árið eftir kom þessi frumburður þeirra út og síðar það sama ár leit svo...
-
073 - Viðsjárverðir tímar
Þann 15.september árið 2009 sendi sjálfur Ace Frehley frá sér plötuna Anomaly, sem var hans fyrsta plata í 20 ár! Alveg frá því að Trouble Walkin´ kom út þarna árið 1989 var lítið að frétta nefnilega af kallinum fyrir utan að KISS komu jú auðvitað saman á ný þarna árið 1996. Eftir að því ævintýri...
-
072 - McLauglogohlin
WARNING! AÐEINS FYRIR GEGNHEILA KISS AÐDÁENDUR !!! Fimmta sólóplata Peter Criss ber heitið "One for all" og er hún að öllum líkindnum svanasöngur Kattarins hvað sólóplötur varðar. Hún kom út sumarið 2007 og geymir hún 12 lög. TÓLF! Þættinum bar skylda til að fara yfir þessa plötu og reyndist það...
-
071 - Hundurinn
Space-Ace og Kötturinn hafa verið duglegir að gefa út sólóplötur eftir sína bestu KISS daga. En hefur "Hundurinn" gert slíkt hið sama? Eeeehhhhh.....já! Bruce Kulick hefur sent frá sér þrjár sólóplötur eftir sína KISS daga. En er eitthvað varið í þær? Eeeehhhhhh......við skulum sjá. Það var löngu...
-
070 - Illuminati
Í þessum tímamótaþætti sem er númer 70 í röðinni lítum við örlítið um öxl. Við ákváðum nefnilega í tilefni dagsins að gera eins og í "gamla daga" og koma með tvö málefni og svo gamla góða jókerinn að borðinu í þetta skiptið, það tókst skítsæmilega að við höldum. Þá kynntum við okkur aðeins…
more -
069 - Bobbari sannleikans
Árið er 2014 og KISS eru á miðjum 40 ára afmælistúr sínum um heiminn. Tvö ár eru þarna síðan okkar menn gáfu út hljóðversplötu síðast sem einnig var mjög sennilega sú síðasta í röðinni. En gítarguðinn Ace Frehley var hins vegar ekki hættur að senda frá sér nýtt efni því þetta ár sendi Space-Ace…
more -
068 - Killers, Platinum & Hits
Okkar menn hafa gefið út fjölmargar safnplötur í gegnum árin og þá oft til að halda lífi í glóðinni þegar engin er breiðskífan sem fylgja skal eftir. Þá hafa nokkrum sinnum verið sett ný lög inn á þessar plötur eða jafnvel nýjar upptökur af eldri lögum. Væntanlega hefur það verið gert til að auka...
-
067 - Forvitni drepur ekki
KISS voru í þokkalegri lægð þarna um miðjan tíunda áratug síðustu aldar, þ.e áður en allt fór af stað á ný í kjölfarið á MTV Unplugged tónleikum þeirra sem fram fóru sumarið 1995. Ári fyrr, eða sumarið 1994 stóðu okkar menn í útgáfu á plötunni KISS MY ASS sem innihélt hina ýmsu KISS slagara í...
-
066 - Amsterdans
Fyrsti þáttur eftir gott sumarfrí er mættur! Þátturinn fór í vettvangsferð á dögunum til Amsterdam. Um var að ræða lokatónleika okkar manna í Evrópu sem fram fóru í Ziggo Dome á sjálfan afmælisdag forsetans, 21.júlí 2022. Ekki er hægt að segja að þáttastjórnendum hafi leiðst mikið í þeirri för…
more -
065 - Númason Group
Síðasti þátturinn okkar fyrir sumarfrí var settur á uppboð og seldist hann á skrilljón trilljónir. Kaupandinn var "Númason Group" með Jóhannes Geir Númason í forsvari en hann hefur verið dyggur hlustandi frá upphafi. Jóhannes mætti því í stúdíóið og var sérstakur heiðursgestur og gestastjórnandi...
-
064 - Snurða á þræði
Tuttugasta hljóðversplata KISS geymir 12 lög og kom hún út þann 9.október 2012. Gott fólk, hún er 10 ára gömul í ár. Það er ansi líklegt að hér sé einnig um að ræða þeirra síðustu plötu, eða okkur er farið að gruna það sterklega hið minnsta, sem er allt í lagi bara. Plata númer 20 varð auðvitað…
more -
063 - Ótroðnir
Þegar árið 1980 gekk í garð fóru okkar menn að vinna sína næstu plötu sem yrði þá fyrsta platan án allra fjögurra meðlima sveitarinnar. Þarna var Peter hættur í KISS og sló því ekki högg á plötunni og söng ekki eitt einasta lag. Meðlimir voru hér nokkuð hræddir við hvað aðdáendur myndu segja ef...
-
062 - Karlsöngvarinn
Þann 13.október árið 1989 aðeins 4 dögum áður en KISS gáfu út sína 15.hljóðversplötu (Hot in the shade) sendi Ace Frehley frá sér sína fjórðu sólóplötu sem var í raun sú þriðja í röðinni eftir daga hans innan KISS. Hér var okkar maður búinn að leggja Frehley´s Comet nafninu og gaf núna út undir...
-
061 - Eighty Kramer
Í yfir 50 ár hefur Eddie Kramer sett fingraför sín á sögu rokksins sem um munar, enda unnið með nokkrum af stærstu nöfnum þessarar sögu. Má þar nefna; The Rolling Stones, Eric Clapton, David Bowie, Bad Company, The Beatles og svo miklu, miklu fleiri. Kramer er þó hvað þekktastur fyrir þrjú...
-
060 - Sumardagurinn fyrsti
Sumarið 1982, eða á sama tíma og okkar menn í KISS stóðu í upptökum á plötunni „Creatures of the night“ gaf fyrrum trommari þeirra, sjálfur Peter Criss, út sína þriðju sólóplötu. Það má eiginlega segja að framboðið hafi alltaf verið talsvert meira en eftirspurnin þegar kemur að sólóefni frá herra...
-
059 - 750+150=1000
KISS fóru í hljóðverið enn á ný í lok árs 1995 til að hljóðrita sína næstu plötu sem yrði sú 17. í röðinni, og stóðu þær upptökur fram í febrúar 1996. Gene vildi að allar KISS reglurnar yrðu brotnar í þessum upptökum í tilraun bandsins til að gera þá meira „current“ en eins og við vitum var þessi...
-
058 - Eiríkur Fjalar?
Árið er 1985 og Paul situr í bílstjórasætinu eins og nokkur fyrri árin og stýrir rútunni. Uppstillingin á KISS virðist vera tiltölulega laus við allt rugl og drama fyrir utan það að Gene hefur ekki mikinn tíma fyrir hljómsveitina, enda á fullu að reyna fyrir sér við kvikmyndaleik. En tilkoma…
more -
057 - "Upp á dag"
Bob Ezrin hefur verið maðurinn á bak við tjöldin við upptökur margra sígildra platna, þar á meðal og bara svo við nefnum eitthvað þá sat hann við mixerinn og stýrði REC takkanum þegar plöturnar „Billion Dollar Babies“ með Alice Cooper, „The Wall“ með Pink Floyd og auðvitað „Destroyer“ með KISS…
more -
056 - Boðberi sannleikans
Í janúar 1979 eða um fjórum mánuðum eftir útkomu þeirra margumtöluðu sólóplatna í september 1978, hentu KISS sér aftur í stúdíóið til að hefja upptökur á sinni sjöundu hljóðversplötu. Sú plata átti að marka „ENDURKOMU KISS“ eða „THE RETURN OF KISS“ enda hafði ekki komið breiðskífa frá bandinu sem...
-
055 - Það stendur hér
Tíundi áratugurinn var ekki sá farsælasti fyrir okkar menn sem er í raun algjör synd, því það var þá sem liðsmenn KISS voru í einu sínu besta formi, ef ekki bara því besta. Sveitin hugsaði út fyrir kassann árið 1995 þegar bandið fór svokallaðan „Convention Tour“ um Bandaríkin og Ástralíu auk...
-
054 - President Starkey
Hvað er KISS ARMY? Hvaðan er KISS ARMY? Hver stofnaði KISS ARMY og hvers vegna? Við fáum svör við þessu öllu ásamt fleiru í þættinum í dag. Þegar Bill Starkey var 17 ára gamall uppgötvaði hann KISS sem um leið varð hans uppáhalds hljómsveit. Útvarpsstöðin heima í Terre Haute í Indiana,...
-
053 - Pallborðsumræður
Í þættinum bjóðum við upp á opnar pallborðsumræður þar sem hin og þessi mál ber á góma. Má þar nefna Bítlana, Aerosmith, Eddie Van Halen, KISS Army, hina alræmdu Frægðarhöll Rokksins, 20 ára starfsafmæli nokkuð, hinn ýmsa KISS varning, hljóðvegginn góða, stórmyndina KISS Meets The Phantom Of The...
-
052 - Donahue
Á sama tíma og KISS voru að klára upptökur á sinni áttundu hljóðversplötu árið 1980 var Peter Criss mættur í hljóðverið sjálfur ásamt Stan sínum Penridge til að taka upp sína aðra sólóplötu. Okkar menn gáfu svo út Unmasked þann 20.maí 1980 og þrátt fyrir að Peter bregði fyrir á framhlið plötunnar...
-
051 - 1 árs
Við fögnuðum 1 árs afmæli þáttarins frammi fyrir fullum sal af áhorfendum í Slippbíó á Icelandair Hotel Marina laugardagskvöldið 12.febrúar 2022 þar sem upptökur fóru fram. Málefnið var hreint ekki af verri endanum, frumburður okkar manna sem ber einfaldlega heitið KISS. Sú plata á einmitt 48 ára...
-
050 - Helgarpósturinn
Sumarið 1983 fóru KISS í hljóðverið til að taka upp sína 11. hljóðversplötu, plötu sem átti að fylgja þeirri sem á undan kom (Creatures of the night) fast á eftir. Aftur var Michael James Jackson við stjórnvölinn en hann skilaði af sér flottu starfi á fyrrnefndri plötu og náði hreint út sagt...
About this show
Þrír miðaldra karlmenn fjalla um allt á milli himins og jarðar.....bara svo lengi sem það er um hljómsveitina KISS. Heiðar Aðaldal Jónsson (forseti KISS ARMY ICELAND), Atli Hergeirsson og Páll Jakob Líndal eru allir forfallnir aðdáendur hljómsveitarinnar KISS og taka hér fyrir hin ýmsu málefni tengd bandinu.
Hosted by
KISS ARMY ICELAND
Categories