108 | Eftirspurn eftir úkraínskum konum og dauðarefsingar í Íran episode artwork

EPISODE · May 14, 2022 · 30 MIN

108 | Eftirspurn eftir úkraínskum konum og dauðarefsingar í Íran

from Heimskviður

Þar sem er stríð, þar er kynferðislegu ofbeldi sömuleiðis beitt. Það virðist því miður vera einhverskonar lögmál, meira að segja enn þann dag í dag þrátt fyrir að aðgerðir gegn kynferðisofbeldi séu meira í umræðunni. Hluti af hjálparstarfi vegna stríðsins í Úkraínu miðar eingöngu að því að hjálpa konum á flótta undan mögulegu mansali, vændi eða öðru kynferðisofbeldi, og alveg ljóst að ekki er vanþörf á. Leit af úkraínskum konum í kynferðislegum tilgangi á netinu jókst um 200-600% strax eftir innrás Rússa í Úkraínu. Mjög víða, meira að segja hér á landi, hafa einhleypir karlmenn boðist til að hýsa ungar og huggulegar konur á flótta undan stríðsátökum í heimalandinu. Birta ræddi við Valiant Richie, sérfræðing hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, sem fer fyrir þeirri deild stofnunarinnar sem berst gegn mansali og kynferðisofbeldi í stríði. Læknirinn og fræðimaðurinn Ahmadreza Djalali, sem hefur verið í haldi í Íran frá árinu 2016, getur á hverri stundu búist við því að vera tekinn af lífi fyrir sakir sem mannréttindasamtök telja að eigi ekki við rök að styðjast. Djalali, sem er með íranskt og sænskt ríkisfang, er einn af fjölmörgum í haldi íranskra stjórnvalda sem eru með tvöfalt ríkisfang, annað þeirra íranskt. Þessir fangar virðast flestir nýttir til að beita pólitískum þrýstingi á önnur lönd. Hallgrímur Indriðason fjallar um málið. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

NOW PLAYING

108 | Eftirspurn eftir úkraínskum konum og dauðarefsingar í Íran

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 30 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on May 14, 2022.

What is this episode about?

Þar sem er stríð, þar er kynferðislegu ofbeldi sömuleiðis beitt. Það virðist því miður vera einhverskonar lögmál, meira að segja enn þann dag í dag þrátt fyrir að aðgerðir gegn kynferðisofbeldi séu meira í umræðunni. Hluti af hjálparstarfi vegna...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!