Skip to content
Heimskviður podcast artwork

PODCAST · news

Heimskviður

by RÚV

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 3, 2026 · Source feed

Episodes

  1. 262 - Graceland og El Niño

    Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir…

    more
  2. 261 - Pólitík í Úkraínu og sumarið sem leið

    Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda...

  3. Sumarheimskviður - Flókin talning og áttræðir rapparar

    Nú fer sumrinu að ljúka og þetta er síðasti þáttur sumarsins. Við byrjum af fullum krafti næsta laugardag með splunknýjar Heimskviður, þar sem við ætlum að gera upp það helsta í fréttum sumarsins á erlendum vettvangi. Í þættinum í dag ætlum við að rifja upp umfjöllun okkar frá því í vor um eitt...

  4. Sumar-Heimskviður - Morð

    Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi...

  5. Sumar-Heimskviður - Barneignir og uppeldi

    Í Sumarheimsviðunum í dag ætlum við að huga að barneignum og barnauppeldi. Byrjum á byrjuninni, það þarf að eignast börnin áður en byrjað er að ala þau upp. En afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í heiminum og hvaða efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur það á komandi árum? Jarðarbúum...

  6. Sumar-Heimskviður - Færeyjar

    Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta. Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri…

    more
  7. Sumar-Heimskviður - Dýrin stór og smá

    Þá eru það dýrin stór og smá sem verða í aðalhlutverki hjá okkur í dag. Við fjölluðum um pöndupólitík fyrr á árinu, en það má eiginlega segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi...

  8. Sumar-Heimskviður - Sjónvarp

    Við ætlum að huga að sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram að rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex borgaði sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru...

  9. Sumar-Heimskviður - Íþróttir

    Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en…

    more
  10. Sumar-Heimskviður - Sala Palomu

    Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr...

  11. Sumar-Heimskviður - Saga Palomu

    Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr...

  12. Sumar-Heimskviður - Breskur aðall

    Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið okkar í dag, manninn sem áður var kallaður Andrés prins, en nú Andrew Mountbatten...

  13. Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla

    World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo eru það…

    more
  14. Sumar-Heimskviður - Afmælisþátturinn

    Við sendum út Heimskviðuþátt númer 250 í mars og héldum upp á það með því að segja örsögur utan úr heimi. Í tilefni dagsins sögðum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en grófum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við...

  15. Sumar-Heimskviður - Netið

    Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið. Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var sýningargripur á nýlistasafninu í New York þegar við fjölluðum um það í október í fyrra.…

    more
  16. Sumar-Heimskviður - Tækni

    Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins?...

  17. 260 - Hraðstefnumót í Heimskviðum

    Þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og hann verður af því tilefni með óhefðbundnu sniði. Við ætlum að kynnast fjölda einstaklinga sem eru eða hafa verið áberandi í heimsmálunum og kynnast þeim betur. Þarna eru meðal annars stjórnmálamenn, sjónvarpslæknar, áhrifavaldar, tónlistarmenn og...

  18. 259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood

    Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum...

  19. 258 - Styr um Starmer, fjölþáttaógnir og þjóðvegur 66

    Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi. Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því að hann verði ekki langlífur í embætti. Ég...

  20. 257 - Staðan í Venesúela og leikvangar fyrir kvennknattspyrnu

    Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir...

  21. 256 - Aldarafmæli Attenborough og áttræðir rapparar

    Þátturinn í dag er eins konar óður til öldunga. Annars vegar fjöllum við um einn virtasta og dáðasta mann samtímans, David Attenborough. Hann veðrur 100 ára þann 8.maí næstkomandi. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough. Og svo eru það Pete og Bas, Bretar sem eru að nálgast...

  22. 255 - Skálmöld í Nígeríu og Læknar án landamæra á ófriðarsvæðum

    Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði úr ofbeldisverkum blossuðu þau upp aftur í fyrra, og nú er ástandið verra en nokkru...

  23. 254 - Kjarnorka, 40 ár frá Chernobyl og Rússar lokka útlendinga á vígvöllinn

    Það styttist í að það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma að fyrir önnur lönd að átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk yfirvöld reyndu að halda slysinu leyndu og það var ekki fyrr en geislavirk efni voru farin…

    more
  24. 253 - Kosningar í Ungverjalandi. manntal á Indlandi og saga JFK yngri

    Það er kjördagur í Ungverjalandi á morgun en þá fara fram einar mest spennandi kosningar í Evrópu í langan tíma. Viktor Orban, sem hefur verið við völd í 16 ár, mælist með minna fylgi samkvæmt könnunum, og Peter Magyar, sem býður sig fram gegn honum gæti orðið næsti forsætisráðherra. Við heyrum…

    more
  25. 252 - Þróunaraðstoð dregst saman og Harry Potter og arfleiðin erfiða

    Þróunaraðstoð hefur dregist mikið saman undanfarið og í raun aldrei minna en á nýliðnu ári. Þjóðir heims forgangsraða þessari aðstoð sífellt aftar á listann. Mest munar þarna um Bandaríkin, sem hafa dregið saman seglin þegar þróunaraðstoð er annars vegar um eina 24 milljarða. Þýskaland…

    more
  26. 251 - Kosningar í Færeyjum og Danmörku og áhyggjur af einkalánum

    Samkvæmt okkar útreikningum voru samtals 4.308.068 Norðurlandabúar á kjörskrá í tvennum kosningum sem fóru fram í vikunni. Það var kosið í Danmörku á þriðjudag og í Færeyjum á fimmtudag. Við ætlum að kafa aðeins í úrslitin í báðum löndum, skoða kosningabaráttuna og fleira. Svo segjum við ykkur…

    more
  27. 250 - Afmælisþáttur - hin hliðin

    Þátturinn í dag er afmælisþáttur en nú eru Heimskviðuþættirnir orðnir 250. Í tilefni dagsins segjum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en gröfum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjöllum um hundakallinn Lars…

    more
  28. 249 - Mannaveiðar með drónum og endurkoma Anthony Kim

    Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við…

    more
  29. 248 - Saga og samfélagið í Íran og flóttamenn þá og nú

    Íran er nú daglega í fréttum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og að þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn...

  30. 247 - Endalok Stranger Things og almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum

    Endalok verða rauður þráður í Heimskviðum í dag. Það eru vægast sagt umdeild endalok þáttaraðarinnar Stranger things, en óhætt að segja að það séu margir ósáttir við þau. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara...

  31. 246 - Trainspotting og óður til MTV

    Kvikmyndin Trainspotting er þrítug um þessar mundir. Hún kom fyrst í kvikmyndahús 23. febrúar 1996 og hefur síðan öðlast sess í kvikmyndasögunni og er að mörgum talin meðal bestu kvikmynda tíunda áratugarins. Myndin fjallar um vinahóp í Edinborg í Skotlandi sem er djúpt sokkinn í heróínneyslu. En...

  32. 245 - Sterar á Ólympíuleikum og þrengt að elítunni í Rússlandi

    Það hefur gengið á ýmsu á vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem hefur verið í umræðunni. Í þættinum ætlum við að fjalla um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í...

  33. 244 - Átök innan Bandaríkjanna og Heated Rivalry

    Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa...

  34. 243 - Nick Fuentes og pöndupólitík

    Nick Fuentes er kristinn þjóðernissinni og kynþáttahatari og vill að hvítir, kristnir karlmenn fari með tögl og hagldir í bandarískum stjórnmálum. Hann hefur sagst vera á móti lýðræði því það steypi saman ólíkum og ósamræmanlegum hagsmunum. Lýðræði leiði alltaf á endanum til þess að þjóðríkið…

    more
  35. 242 - Grænland, færeyska handboltaævintýrið og Beckham fjölskyldan

    Ítrekuð ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi hafa ekki aðeins valdið stjórnmálamönnum þar áhyggjum. Almenningur er líka uggandi, og þó að Trump hafi nú útilokað að beita valdi til að taka yfir Grænland er fólk enn í óvissu um framhaldið. Hallgrímur Indriðason fjallar um...

  36. 241 - Komandi kosningar og framhaldsmyndir

    Árið hófst með hvelli úti í heimi, en hvaða áhrif hafa atburðirnir á komandi kosningar? Kólumbíumenn kjósa á árinu, á meðan Trump reynir að styrkja ítök sín í Suður Ameríku og margir Evrópubúar horfa til kosninga í Ungverjalandi þar sem Viktor Orban hefur haldið um stjórnartauma í 15 ár. 2026...

  37. Heimskviður - hátíðarútgáfan

    Við veljum saman brot af því besta í síðasta þættinum fyrir jól. Við fjölluðum um Sharenting í nóvember og áform yfirvalda á Spáni að setja skorður á það hverju foreldrar megi deila af börnum sínum á netinu og hverju ekki. Og svo reyndum við að svara stærri spurningum, hversu miklu af lífi barna…

    more
  38. 240 - Jákvæðu fréttirnar

    Við verðum á jákvæðum og uppbyggilegum nótum í Heimskviðum í síðasta þættinum fyrir jól. Þátturinn verður því með örlitlu jólaívafi, við skoðum jólamyndir og jólatónlist en fyrst og fremst ætlum við að segja ykkur jákvæðar og skemmtilegar fréttir utan úr heimi. Til dæmis hvernig ástralskur...

  39. 239 - Kínverska kraftaverkið og orð ársins, bræðibeita

    Það eru ekki nema tæp fimmtíu ár síðan kommúnistastjórnin í Kína þar ákvað að opna hagkerfið, leyfa erlendar fjárfestingar og sleppa markaðsöflunum lausum, þó með stífum skilyrðum. Það sem hefur gerst síðan þá er stundum kallað kínverska kraftaverkið: Kína breyttist úr því að vera eitt af…

    more
  40. 238 - Jarðgöng í Færeyjum og lýtaaðgerðir stjarnanna

    Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu...

  41. 237 - Eitrað fyrir eiginmönnum og loftslagsmálin

    Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Þetta gerðist í ungversku þorpi fyrir um hundrað árum síðan. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem…

    more
  42. 236 - Myndbirtingar af börnum á samfélagsmiðlum og mannfjöldaspá á komandi áratugum

    Að deila eða ekki deila, það er spurningin. Hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar eru hætturnar? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur allt um fyrirbæri sem kallast sharenting og stjórnvöld á Spáni vilja setja lög um. Afhverju...

  43. 235 - Gleymda stríðið og svanasöngur Downton Abbey

    Við rýnum í stríðsátökin í Súdan og hrottalegar aftökur sem þeim tengjast í Heimskviðum í dag. Það er stundum kallað gleymda stríðið því fjölmiðlar fjalla mun minna um það en önnur sem hafa geisað síðustu ár og áratugi. Það er þrátt fyrir að þar hafa á annað hundrað þúsund verið drepin,...

  44. 234 - Stríð gegn eiturlyfjum og Airbnb

    Ráðamenn í Barcelona hafa lýst yfir stríði gegn Airbnb og ætla að losa sig við skammtímaleigufyrirtækið á næstu tveimur til þremur árum. Mýmargar íbúðir eru leigðar út til ferðamanna í borginni sem hefur slæm áhrif á húsnæðisverð og þar með íbúa. Svo fjöllum við um stríðið gegn eiturlyfjum.…

    more
  45. 233 - Forsætisráðherrann og prinsinn

    Það bárust söguleg tíðindi þanan í vikunni þegar Sanae Takaichi tók við embætti forsætisráðherra, fyrst kvenna. Hennar helsta fyrirmynd í stjórnmálum er Margaret Thatcher fyrrum forsætisráðherra Bretlands og er hún, líkt og fyrirmyndin, stundum kölluð járnfrúin. Hún þykir litríkur karakter og…

    more
  46. 232 - Harmsaga Palomu Shemirani

    Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata með lyfjameðferð. Móðir hennar, Kate Shemirani, er þekkt í Bretlandi. Hún missti leyfi sitt...

  47. 231 - Friður á Gaza, leiðtogakrísa í Evrópu og @ merkið

    Við fjöllum um vopnahlé á Gaza og langa og grýtta leið til friðar milli Ísraela og Palestínumanna. Við tölum við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlands, um framhaldið og hlutverk Hamas í friðarviðræðunum. Svo fjöllum við um stjórnarkreppuna í Frakklandi og þá erfiðu stöðu sem...

  48. 230 - Fótboltadraumar Kínverja og tækniundur Taívans

    Í Heimskviðum í dag ætlum við til Asíu og fræðast bæði um fótbolta og hálfleiðara. Líklega eru margir að heyra um hálfleiðara í fyrsta sinn en þeir eru nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í...

  49. 229 - Ljósmyndirnar sem breyttu heiminum og upplýsingaáróður í stríði

    World Press Photo fagnar 70 ára afmæli á árinu. Samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræðum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, í þættinum og rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo segir Dagný Hulda...

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

HOSTED BY

RÚV

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Heimskviður have?

Heimskviður currently has 275 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Heimskviður about?

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

How often does Heimskviður release new episodes?

Heimskviður publishes regularly with 275 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Heimskviður?

You can listen to Heimskviður on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Heimskviður?

Heimskviður is created and hosted by RÚV.
URL copied to clipboard!