113 | Sundrung í Bandaríkjunum og Mormónar í Utah episode artwork

EPISODE · Aug 27, 2022 · 43 MIN

113 | Sundrung í Bandaríkjunum og Mormónar í Utah

from Heimskviður

Ótal fréttir hafa verið sagðar undanfarin misseri af sundrungu í bandarískum stjórnmálum og samfélagi. Skotvopnaeign, löggjöf um þungunarrof, lögregluofbeldi gegn svörtum, brottflutningur bandaríska hersins frá Afganistan, innrásin í þinghúsið í Washington og um það bil allt sem Donald Trump segir og gerir. Já þau hafa verið ófá þrætueplin þar vestra. Sundrung í Bandaríkjunum hins vegar er ekki ný af nálinni, heldur á sér miklu lengri sögu sem Donald Trump ber sannarlega ekki einn ábyrgð á, segir Leonard Steinhorn sem er stjórnmálaskýrandi hjá CBS sjónvarpsstöðinni. Birta Björnsdóttir hitti Steinhorn á dögunum. Safnaðarmeðlimir Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu, mormónarnir bandarísku, hafa ekki beint átt sjö dagana sæla undanfarið. Þó að sértrúarsöfnuðir undan Mormónakirkjunni hafi lengi verið undir smásjánni hjá stjórnvöldum í Bandaríkjunum, reyndar í um það bil 130 ár, þá er eins og fjölmiðlar vestanhafs hafi núverið tekið til við að dusta rykið af gömlu hneykslismálunum, kynferðisbrotunum, sértrúarsafnaðarleiðtogunum og ógeðinu sem fékk að grassera undir niðri, eins og svo oft, í nafni trúar. Nú tróna sjónvarpsseríur um mormóna á toppum vinsældarlista streymisveita, fréttastofan AP afhjúpaði gróft kynferðisbrotamál gegn börnum innan mormónakirkjunnar fyrr í mánuðinum og lög sem bönnuðu fjölkvæni verið milduð all verulega í Utah, heimaríki þeirra sem vilja eiga fleiri en eina eiginkonu, eða eiginmann eftir atvikum. Þetta hjúskaparform hefur þó lengi fengið að viðgangast undir rós, nokkuð lengi verandi eiginlega tvær aldir. Sunna Valgerðardóttir kynnti sér málið. Í Heimskviðum er fjallað um allt það sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

NOW PLAYING

113 | Sundrung í Bandaríkjunum og Mormónar í Utah

0:00 43:37

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 43 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on August 27, 2022.

What is this episode about?

Ótal fréttir hafa verið sagðar undanfarin misseri af sundrungu í bandarískum stjórnmálum og samfélagi. Skotvopnaeign, löggjöf um þungunarrof, lögregluofbeldi gegn svörtum, brottflutningur bandaríska hersins frá Afganistan, innrásin í þinghúsið í...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!