EPISODE · Sep 14, 2026 · 10 MIN
119. Galdrar - nornir - álög
from Hið yfirnáttúrulega
Í þessum þætti tölum við um galdra, hreinsanir, hugarfar og ásetning. Hvað við erum að gera og galdra fram þessa dagana og förum yfir í extreme nornir og nornamenningu sem finnst að mestu erlendis.Galdrar, álög og bölvanir hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og endurspegla ríka þörf mannsins fyrir að skilja, stjórna eða hafa áhrif á umhverfi sitt með yfirnáttúrulegum leiðum.Nútímanornir eru oftast andlegir leiðbeinendur sem vinna með náttúruna, kristalla, jurtir og heilunar orku til að hjálpa fólki í daglegu lífi. En svo eru aðrar "nornir" sem fara aðeins lengra og vilja vinna með dekkri öfl, þær eru ekki að þessu að heillindum og gera allskonar til þess að hafa pening af fólki og setja smá skugga á orðið norn.Sumar af þessum sem starfa sem norn og eru bara atvinnunornir þær hafa farið aðeins út af veginum og fara galdrarnir að snúast um að setja á álög fyrir viðskiptavini, sem í nútímasamhengi þýðir að beina orku og ásetning á ákveðinn farveg fyrir fólk.Algengt er að nornir séu fengnar til að framkvæma ástargaldra, laða að peninga og velgengni í viðskiptum, eða búa til sérstaka varnargaldra fyrir heimili.Á sama tíma er jafnvel enn stærri markaður í því að setja á OG taka af álög og bölvanir og taka fúlgu fjár fyrir.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
Embed this episode
Ready to play
119. Galdrar - nornir - álög
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.