PODCAST · news
Hið yfirnáttúrulega
by Ghost Network®
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega.Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum.Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls.Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
-
119
119. Galdrar - nornir - álög
Í þessum þætti tölum við um galdra, hreinsanir, hugarfar og ásetning. Hvað við erum að gera og galdra fram þessa dagana og förum yfir í extreme nornir og nornamenningu sem finnst að mestu erlendis.Galdrar, álög og bölvanir hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og endurspegla ríka þörf mannsins fyrir að skilja, stjórna eða hafa áhrif á umhverfi sitt með yfirnáttúrulegum leiðum.Nútímanornir eru oftast andlegir leiðbeinendur sem vinna með náttúruna, kristalla, jurtir og heilunar orku til að hjálpa fólki í daglegu lífi. En svo eru aðrar "nornir" sem fara aðeins lengra og vilja vinna með dekkri öfl, þær eru ekki að þessu að heillindum og gera allskonar til þess að hafa pening af fólki og setja smá skugga á orðið norn.Sumar af þessum sem starfa sem norn og eru bara atvinnunornir þær hafa farið aðeins út af veginum og fara galdrarnir að snúast um að setja á álög fyrir viðskiptavini, sem í nútímasamhengi þýðir að beina orku og ásetning á ákveðinn farveg fyrir fólk.Algengt er að nornir séu fengnar til að framkvæma ástargaldra, laða að peninga og velgengni í viðskiptum, eða búa til sérstaka varnargaldra fyrir heimili.Á sama tíma er jafnvel enn stærri markaður í því að setja á OG taka af álög og bölvanir og taka fúlgu fjár fyrir.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
118
118. Íslenskar draugasögur - Poltregeist draugar
Íslenskar draugasögur eiga sér djúpar rætur í þjóðarsálinni og endurspegla lifnaðarhætti, einangrun og harðbýla náttúru landsins í gegnum aldirnar. En sumir draugar skilja eftir sig meiri spurningar en aðrir og eru eftirminnilegri.Vorið 1964 á sveitabænum Saurum í Austur Húnavatnssýslu gerðist eitthvað sem skók allt íslenska samfélagið. Þetta var ekki hefðbundin sending í leit að hefnd, heldur fágætt og ofsafengið dæmi um ærsladraug eða poltergeist á íslenskum sveitabæ.Draugagangurinn var svakalegur og vitnin mörg, þetta mál varð að algeru fjölmiðlafári og varð rannsóknarefni. Hlutir flugu um loftið, þungir skápar ultu um koll og ískaldur gustur fyllti baðstofuna á meðan fjölmiðlar, prestar og sálarrannsakendur fylgdust agndofa með.Í þættinum í dag köfum við ofan í magnaðasta draugagang nútímasögunnar á Íslandi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
117
117. Sólgos, sólmyrkvi, fullt tungl - Jörðin er að ganga í gegnum mikla orkubreytingu.
Jörðin og alheimurinn eru að ganga í gegnum gríðarlega orkubreytingu!Við höfum nýlega upplifað bæði sólmyrkva og tunglsmyrkva, en í yfirnáttúrulegum skilningi eru þetta ekki bara stjarnfræðilegir atburðir heldur öflugar gáttir. Sólmyrkvinn táknar dramatísk þáttaskil þar sem ljósið víkur augnablik fyrir skugganum, sem neyðir okkur til að horfast í augu við okkar eigin dökku hliðar og loka gömlum dyrum. Tunglsmyrkvinn fylgir svo í kjölfarið með tilfinningalega úthreinsun, þar sem hlutir sem hafa verið faldir í undirdjúpunum koma upp á yfirborðið.Á sama tíma er eitthvað stórfellt að gerast í hinu ósýnilega orkusviði jarðarinnar. Schumann resonance, sem oft er kölluð hjartsláttur jarðar, hefur verið að sýna óvenjulega tinda og sveiflur. Þessi náttúrulega rafsegultíðni jarðar, sem venjulega slær í rólegum 7,83 hertzum, virðist vera að rjúka upp, og margir trúa því að jörðin sé að hækka tíðni sína. Þegar þessi tæknilegi hjartsláttur jarðar mætir kosmísku orkunni frá smyrkvanum, þá finnum við það beint á eigin skinni. Það lýsir sér í skrýtnum draumum, skyndilegri þreytu, höfuðverk eða tilfinningu um að tíma brenglun.Við erum bókstaflega að tengjast nýrri orku, endurforrita okkar eigin tíðni og stíga inn í hærra meðvitundarstig. Spurningin er bara: hefur þú fundið fyrir orkunni?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
116
116. Andlegt trúnó
Við erum á persónulegum nótum i þessum þætti og segjum frá hvað við höfum verið að upplifa frá okkar andlegu hlið og ástundun í sumar. Lífið er allskonar og suma daga er maður í geggjuðu jafnvægi og með allt á hreinu, aðra daga er maður með allt niður um sig, í lárri tíðni að reyna að koma sér á andlega vagninn aftur og lyfta sér upp.Okkur finnst mikilvægt að lýsa raunveruleikanum eins og hann er hverju sinni og tala í einlægni.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegap.s. Við vonumst til að sjá ykkur á Heimsljósi 19-20 september!Linkur á Heimsljós:https://heimsljos.is/
-
115
115. Gunnar Dan - Ufo 202, kómísk uppljóstrun með Dr Phil og allt milli himins og jarðar.
Gunnar Dan vinur okkar hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum enda er hann aðal upplýsingaveita Íslendinga um það sem er að gerast í Ufo heiminum. Hann var að gefa út bókina sína Ufo 102 sem er hreint út sagt stórkostleg og full af fróðleik!Gunnar hefur upplifað margt í lífinu og andlega vakningin er að koma til hans af miklum krafti og tenging við hinn æðri mátt, hver sem þessi máttur er. Í þessum þætti förum við um víðan völl, ræðum um stýrðu uppljóstrnunina sem er vægast sagt kómísk þegar enginn annar en Dr Phil er kominn á settið. Við ræðum um Dmt og Ayahuasca í andlegum tilgangi og margt fleira.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaVið mælum svo sannarlega með að þið fylgist með honum Gunnari og Geimsýrunni þar sem hann segir okkur nánast daglega frá nýjum fréttum.Bókina Ufo 101 og Ufo 102 er að finna í öllum helstu bókasölum og bókasöfnum.Þið getið fylgt Gunnari á facebook og fengið nýjustu fréttir þar:https://www.facebook.com/gunnar.wiiumGeimsýran á youtube:https://www.youtube.com/@vottahusi1119Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskrift
-
114
114. Afhverju eru þessir vísindamenn að deyja?
Rúmlega tíu toppvísindamenn með háleynilega öryggisvottun í geimvísindum og kjarnorkutækni hverfa eða finnast látnir við furðulegar aðstæður, spyrja netverjar sig, er þetta tilviljun? Sú staðreynd að eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings og FBI þurftu að skerast í leikinn þykir mörgum sanna að stjórnvöld séu að reyna að stýra umræðunni og hylma yfir sannleikanum.Nýjasta tilvikið er hann Joe Felz sem lést núna í sumar, hann safnaði og skjalfesti sjaldgæf fornrit og gamlar biblíur, sem vöktu mikla athygli.Það sem margir þessara vísindamanna og uppljóstrara eiga sameiginlegt er það að margir hafa gert yfirlýsingar um það að þau hafi ekki verið í sjálfsvígshugleiðingum og ef þau myndu finnast látin þá væri það ekki á þeirra vegum heldur einhver annar sem var þeim að bana. Það er stór undarlegt að margir þessara vísindamanna höfðu svipaðar sögur að segja, t.d. með það að fylgst hafi verið með þeim, sum höfðu verið fyrir hljóðbylgju árásum eða verið elt á röndum í einhvern tíma til þess mögulega að láta þau hljóma og líta út fyrir að hafa misst vitið og síðan "framið sjálfsvíg".Er þetta tilviljun? Eru þau öll látin? Eða er mögulega djúpríkið með þau í haldi að plotta eitthvað svakalegt.....?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
113
113. Tvífarar
Eigum við okkur öll tvífara? Einhver sem gengur um á jörðinni sem er alveg eins en hefur ekki hugmynd um það?Í þessum þætti ætlum við að tala um tvífara. Er þetta fyrirbæri bara algjörlega tilviljunarkennt eða er eitthvað yfirnáttúrulegt á bakvið það?Paul McCartney lenti í slæmu bílslysi Þegar Bítlarnir voru á hátindi frægðar sinnar og vilja margir meina að hann hafi látist í slysinu og var fenginn tvífari til að taka við. Stórt samsærismál hefur verið um söngkonuna Avril Lavigne að hún hafi í raun látist ung og að tvífari hafi tekið hennar stað.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
112
112. Er jörðin flöt?
Í þessum áskriftarþætti ætlum við að tala um jörðina. Er jörðin stór blár hnöttur eða er hún mögulega eins og risastór pönnukaka með glerhvelfingu yfir sér? Er ísveggurinn á suðurpólnum að passa upp á að við förum ekki fram af jörðinni og leynast mögulega löngu horfnir mengingaheimar á bak við hann?Við ætlum að ræða allar þessar pælingar og margar fleiri Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
111
111. Voru risaeðlur kannski bara drekar?
Við vorum að keyra frá Blönduósi til Reykjavíkur og vorum í svo miklu stuði að ræða um allskonar yfirnáttúrulega hluti að við ákváðum að skella í þátt á leiðinni. Hljóðgæðin eru því ekki þau bestu, en þetta er hrár og ótrúlega skemmtilegur þáttur þar sem við ræðum um stóru spurninguna.....Voru risaeðlur mögulega bara drekar?Ef við setjum upp samsærisgleraugun og skoðum söguna út frá þeirri kenningu að risaeðlur og drekar hafi verið sama fyrirbærið, þá breytist opinbera tímalínan algjörlega. Samsæriskenningin gengur út á það að risaeðlur hafi ekki dáið út fyrir 66 milljónum ára, heldur hafi vísindasamfélagið hulið þann sannleika að menn og risaeðlur lifðu hlið við hlið fram á miðaldir og að þessi dýr hafi einfaldlega verið kölluð „drekar“.Sterkasta vopn þessarar kenningar er sú staðreynd að nánast allir menningarheimar sögunnar, sem höfðu engin samskipti sín á milli, eiga sjálfstæðar sögur og myndir af risavöxnum eðlum. Frá Kína til Evrópu, og frá frumbyggjum Ameríku til Egyptalands, teiknaði fólk skriðdýr með langa hálsa, sterka hala og ógnvænlegar klær löngu áður en nútíma steingerfingafræði hófst á 19. öld. Spurningin sem samsæriskenningamenn spyrja er: Hvernig gátu allar þessar ólíku þjóðir lýst sömu dýrunum svona nákvæmlega ef þær sáu þær aldrei lifandi?Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
110
110. Þórunn - Nornin í þér
Þórunn Kristín lýsir sér sjálfri sem rammíslenskri norn. Hún hefur iðkað þessi fræði lengi og er höfundur bókarinnar Nornin í þér þar sem hún deilir m.a. eigin reynslu og þeirri andlegu þekkingu sem hefur fylgt mönnunum í gegnum aldirnar.Við ræðum allt milli himins og jarðar, hvernig hún fann innri nornina í sér og hvað varð til þess að hún virkjaði næmnina og byrjaði að sjá heiminn í gegnum augu nornarinnar og svörum spurningunni hvað er að vera norn?Bókin er leiðarvísir sem á að hjálpa lesendum að finna sinn innri styrk, tengjast náttúrunni og hleypa „norninni“ innra með sér út. Þórunn lítur á nornir sem heilara, grasalækna og fólk sem vill skilja eftir sig fallegt ljós í heiminum. Í stað þess að fjalla um galdra sem einhverja óraunverulega bíómyndatöfra, kennir bókin hvernig hægt er að nýta ásetning, galdra og helgisiði við hversdagslegar athafnir til að bæta líf sitt og auka sjálfstraust.Nornin í þér er svo falleg bók sem allar nornir ættu að eiga!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
109
109. Nauralink og Ai
Í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að tækninni sem gæti breytt mannkyninu að eilífu og byrjum á því að skoða Neuralink. Þetta fyrirtæki Elon Musk vinnur að því að græða örsmáan tölvukubb beint í mannsheilann, sem í fyrstu á að hjálpa lömuðu fólki en stefnir á að tengja huga okkar beint við stafræna heiminn. Hinn helmingurinn af þessari jöfnu er gervigreindin, eða AI, sem er að þróast á ógnarhraða og á samkvæmt Musk eftir að verða manninum yfirsterkari nema við finnum leið til að hugsa og vinna á ljóshraða með henni. Þegar þessi tvö risastóru öfl mætast kvikna hinar hrollvekjandi samsæriskenningar sem við ræðum í þættinum. Við veltum fyrir okkur hvort Neuralink og AI verði notuð af stórfyrirtækjum til að ná algjörri hugarstýringu og fylgjast með hverri einustu hugsun okkar, og spyrjum hvað gerist ef tölvuþrjótar geta bókstaflega „hakkað“ meðvitund fólks. Erum við að horfa á stærsta framfaraspor sögunnar eða upphafið að dökku tækniræði þar sem frjáls vilji heyrir sögunni til?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
108
108. Cern og áhrif þess á okkur.
Í dag ætlum við að kafa ofan í einn dularfyllsta og umtalaðasta stað jarðarinnar: CERN, Evrópsku kjarnorkurannsóknastofnunina í Sviss. Þar neðanjarðar hvílir stærsti eindahraðall heims, þetta eru 27 kílómetra löng rör ofan í jörðinni þar sem vísindamenn láta atóm rekast saman á nánast ljóshraða til að skilja uppruna alheimsins og finna hina svokölluðu „guðseind“.En einmitt vegna þess hve rannsóknirnar eru flóknar og framandi, hefur CERN orðið að algjörri gróðrarstíu fyrir villtar samsæriskenningar. Sú lífsegasta segir að verið sé að opna gáttir yfir í aðrar víddir eða samhliða alheima, sem sumir telja þessi vísindatilraun sé að breyta tímalínunni okkar og gæti verið útskýringin á Mandela-effekt. En aðrir óttast að tilraunirnar skapi svarthol sem gætu gleypt jörðina, eða að vísindamennirnir séu að fást við myrk andleg öfl en kenningarnar fengu rækilega byr undir vængi þegar stytta af hindúaguðinum Shiva, guði eyðingarinnar, var reist fyrir utan höfuðstöðvarnar.Hvaða áhrif ætli Cern hafi á jörðina og okkur mannfólkið? Nú hefur verið slökkt á þessu tæki vegna "viðhalds" næstu 4 árin...... og telja margir að það muni valda því að allskonar erfiðir atburðir munu eiga sér stað og að þetta hafi mun meiri áhrif á okkur en vísindamenn vilja meina.Þú getur hlustað á þáttinn í fullri lengd inn á Patreon með því að gerast áskrifandi.www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
107
107. Oliver Tree, suðurskautið og samsæri innan tónlistarbransans.
Í þessum þætti segir Selma okkur frá tónlistamanninum Oliver Tree en honum tengjast nokkrar samsæriskenningar.Hann reyndi að slíta sig lausan úr elítunni og um leið og hann náði að slíta plötusamningi sínum lést hann í furðulegu þyrluslysi.Oliver gaf út heimildamynd um Suðurskautslandið og dvaldi þar í rúmt ár og sagðist hafa séð ótrúlegustu hluti þar og ekki jarðneska!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í ásrkiftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
106
106. Að falla í trans - transheilun, transmiðlun ofl.
Í þessum þætti ætlum við að ræða aðeins meira ýtarlega um hvað það er að falla í Trans hvort sem það ertengt miðlun eða heilun.Við ræðum örlítið ítarlegra okkar upplifun og svo fjöllum við einnig um nokkra fræga Trans miðla sem gerðu ótrúlega hluti í trans ástandi.Helen Duncan: Síðasta konan sem var dæmd fyrir að vera norn! Hún var öflugur transmiðill og svokallaður efnismiðill. Hún gat látið andana sem hún var að tengjast birtast fyrir framan sig og lenti í vandræðum þegar hún uppljóstraði óvart leynilegum hernaðar leyndarmálum.Chico Xavier Skrifaði 450 bækur á meðan hann var í Trans. Hann leysti meðal annars morðmál og var tilnefndur til Friðarverðlauna Nobels.Listinn yfir magna Transmilðla er klárlega langur og munum við eflaust taka fleirri þætti um þetta málefni.Komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
105
105. Akashic skrárnar og heilun með Stellu Levy
Í þessum þætti fáum við að vita ALLT um Akashic skrárnar, hvernig þær virka og hvernig unnið er með að heila þær og okkur. Við erum báðar í heilunarmeðferð hjá Stellu þar sem hún skoðaði okkar Akashic skrár og förum við yfir hvernig þetta virkar allt saman. Að okkar mati er þetta mögnuð og heildræn heilun á fyrrilífum og karma.Akashic skráin þín, eða sálarbókin þín, er eins og lifandi gagnagrunnur sem inniheldur ekki aðeins upplýsingar um þitt núverandi líf, eða upplýsingar um öll þau líf sem þú hefur lifað í fortíðinni og/eða hvað þú ætlar þér í framtíðinni, heldur allar aðrar tímalínur, allar leiðir sem ekki hafa verið nýttar og öll möguleg tækifæri þar á milli.Akashic skrárnar eru geymdar í eins konar (orku) bókasafni, í 5. víddinni, með upplýsingum sem innihalda allar upplýsingar um sál þína og ferðalag hennar frá upphafi. Þær spanna fyrri líf, núverandi holdgervinga og framtíðarmöguleika.Ansi mörg okkar eru með einhverskonar stíflur,lokur eða hindranir sem gefa okkur ekki fulla yfirsýn yfir val og ákvarðanir okkar og/eða hegðun. Þessar lokur gætu hafa verið gagnlegar á einhverjum tímapunkti í lífi okkar til að dafna, líða vel eða hreinlega til að geta lifað af, en eins mikið og þeir hjálpuðu okkur á einum tímapunkti, gætu þeir verið að hindra okkur núna. Að fá lestur á Akashic skránum getur á gætilegan og kærleiksríkan hátt fjarlægt þessar lokur og stíflur og minnt þig á sannleikann þinn á þínu sálarstigi, hver þú ert í raun og veru, ekki hver þú varðst vegna þrýstings frá fólki og/eða samfélagi.Akashic skrárnar hjálpa þér að læra, að skilja og heila tilfinningalegan sársauka. Og þannig getur sálin losað sig við marga hlekki, skugga, strengi og annað slíkt sem heldur aftur af henni og haldið áfram að þroskast og þannig færst nær næstu orkuvídd í þroska.Þú getur bókað tíma í heilun hjá Stellu hér:https://akashicheilun.com/Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
104
104. Stella Levy
Hin magnaða Stella kom í viðtal til okkar alla leið frá Noregi. Hún er norn af guðs náð og hefur sankað að sér allskonar námi í andlegum málefnum gegnum tíðinaHún hefur lært Usui reiki, angelic reiki (englaheilun) og dreka- og einhyrningaheilun. Einnig les hún í Akashic skrárnar (alheimsskrár sálarinnar). Hún leggur og les í tarot spil, talnaspeki og pendúl. Hún er vægast sagt alger viskubrunnur og það er okkur heiður að fá að kafa ofan í hennar visku, fræðast og læra!Stella hefur alla tíð verið skygn og næm og kippir sér ekkert upp við það að sjá ljósveru standa yfir sér í sturtunni. Hún er tengd drekaorku og segir okkur allt um þetta í þessum þætti.Stella er alger kærleiskmoli, ljósvera og nærveran hennar er svo heilandi.https://akashicheilun.com/Fylgist með henni á Tiktok undir notendanafninu: 19stella75https://www.instagram.com/stellajorunn/Komdu í áskrift og fáðu enn meira yfirnáttúrulegt efni til að hlusta á og fræðast umwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkarFáðu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt. Nýr þáttur alla mánudaga og ýmis aukaefni. GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
103
103. Samsæri tengt world cup, geimverur og allt það undarlega sem er í gangi þessa dagana.
hæÞað er allskonar stór undarlegt í gangi þessa dagana og er stemningin í loftinu bara pínu skrítin að okkar mati. Maður veit ekkert hverju maður á að trúa lengur og sögusagnir og samsæri spretta fram úr öllum áttum, geimveru fréttir hjá þingmönnum og opinberum starfsmönnum, svakaleg vakning og allskonar, það er eiginlega bara allt í gangi!Við förum um víðan völl í þessum þætti, ræðum m.a. samsæriskenningar um world cup sem var að byrja og þar eru heldur betur dramatískar kenningar sem spennandi verður að sjá hvort munu rætast eður ey. Við tökum öllu með fyrirvara en skemmtum okkur konunglega að ræða þessi stór undarlegu og yfirnáttúrulegu mál.Komdu í áskrift og fáðu þætti í hverru viku!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
102
102. Draugagangur í Arthur Findlay
Arthur Findlay College sem er staðsettur í hinu glæsilega Stansted Hall á Englandi, er ekki aðeins þekktur fyrir kennslu í miðlun og andlegum málefnum heldur einnig fyrir að vera talið eitt af svokölluðum “hot spots” andlegra upplifana. Margir sem heimsækja staðinn lýsa honum sem „charged place“ eins og andrúmsloftið sé hlaðið sérstakri orku sem erfitt sé að útskýra.Í gegnum árin hafa nemendur og gestir sagt frá alls kyns furðulegum atvikum og upplifað allskonar skemmtilegan draugagang: ljós sem blikka án skýringar, skyndilegum kulda sem leggst yfir ákveðin svæði, óútskýrð hljóð og jafnvel húsgög sem hafa hreyfst af sjálfu sér. Aðrir hafa fundið fyrir nærveru ósýnilegra gesta eða séð skugga bregða fyrir.Við upplifðum allskonar yfirnáttúrulegt í skólanum og bekkjafélagar okkar urðu vitni af ótrúlegum draugagangi! Við segjum frá öllu þessu í þessum þætti.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
101
101. Ufo og alien disclosure - Hvað er verið að plana?
Undanfarið hefur umræðan um UFO og opinbera birtingu og allskonar upplýsingar um geimverur aukist til muna, en á bak við tjöldin gæti verið að krauma dularfullt plan djúpríkisins og eru uppljóstrarar að segja að árið 2027 mun þetta "plan" koma upp á yfirborðið og þá hefst í raun leiksýningin.Það hefur verið talað um að djúpríkið sé búið að vera hægt og rólega að setja upp sviðsmynd og planta fræum í okkur "venjulega fólkið" og nú árið 2027 muni koma „innrás“ úr geimnum. Um er að ræða mögulega manngerða aðgerð þar sem valdamiklir aðilar nýta leynilega tækni (mögulega frá geimverum) til þess að sviðsetja alheimsógn úr geimnum.Markmiðið? Að skapa samfélagslegan ótta, sameina þjóðir undir eina stjórn og herða eftirlit með almenningi. Í þessum þætti skoðum við þetta og spyrjum okkur hvort árið 2027 verði stærsta tæknibrella sögunnar eða blákaldur veruleiki?Komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
100
100. Andleg árás – Spiritual Attack
Andleg árás kemur fyrir flesta hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Það er mikilvægt að þekkja merkin og ná að breyta þessari neiðkvæðu orku áður en það nær tökum á þér.Þegar fólk byrjar að vakna andlega, styrkja innsæið sitt og tengjast hærri orku er oft sagt að það geti orðið næmara fyrir neikvæðum áhrifum sem reyna að skapa ótta, efa og orkuleysi.Andleg árás getur byrjað sem neikvæðar hugsanir, sjálfsefi, kvíði eða tilfinning eins og allt fari á versta veg. Sumir upplifa martraðir, orkuleisi eða að þeir missi tengingu við eigin kraft og ljós. Í andlegum kenningum er talað um að markmiðið sé að halda manneskju fasti í lágri tíðni svo hún nái ekki að vaxa andlega eða sjá eigin styrk.Margir trúa því að því meira ljós sem einstaklingur ber í sér, því meiri andleg átök geti hann upplifað. Þess vegna leggja margir áherslu á að vernda orkuna sína með hugleiðslu, bænum, orkubreinsun og því að forðast neikvæð áhrif. Einnig er talað um mikilvægi þess að hlusta á innsæið sitt og styrkja tenginguna við sjálfan sig og jákvæða orku.Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? Komdu í áksrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
99
99. Fyrrilífs upplifun Dagný
Í þessum þætti segir Dagný okkur frá sinni mögnuðu lífsreynslu eftir fyrrilífs dáleiðslu og heilun hjá hinni mögnuðu Vigdísi. Það er ótrúlegt að heyra það sem hún upplifði í þessum tíma og hvað það hjálpaði henni mikið!Selma horfði á og ekki er það sýðri upplifun að vera vitni af svona fyrrilífs dáleiðslu og heilun. Það er magnað hvað sálin man og getur tekið með sér allskonar úr fyrrilífum inn í þetta líf sem við lifum núna og oft erum við að burðast með hluti sem við getum losnað við.Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
98
98. Ufo sightings í Hafnarfirði
Selma var í göngutúr í Hafnarfirði um helgina og varð hún og sunor hennar vitni að mjög undarlegum fljúgandi furðurhlut. Á himninum birtist hlutur sem hafði fyrst kassalaga form, en á nokkrum sekúntum áður en hún gat byrjað að taka upp video þá breytti þetta um form og varð hringur. Hreyfingar voru óvenjulegar og erfitt var að bera þær saman við hefðbundnar flugvélar, þyrlur eða dróna. Á köflum leit út fyrir að hluturinn afmyndaðist eða flökti, eins og hann væri ekki með fasta lögun.Í fyrstu var hún alveg viss um að þetta væri bara gasblaðra eða ruslapoki, en heilinn á okkur á það til að reyna að finna rökrétta útskýringu og efast um það sem maður er að sjá.Hvað sem þetta var á himninum þá var þetta fljúgandi furðuhlutur, mögulega ufo eða bara eitthvað sem á sér eðlilega skýringu eins og ruslapoki eða blaðra. En ef þið skoðið videoið og myndirnar þá hafa nákvæmlega svona furðuhlutir verið að birtast út um allan heim! Hvað haldið þið að þetta geti verið?Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
-
97
97. Andleg vegferð er allskonar
Andleg vegferð er eitthvað sem flestir fara í gegnum á einn eða annan hátt, jafnvel þó fólk noti mismunandi orð yfir hana. Fyrir suma tengist hún trú, fyrir aðra sjálfsþekkingu, tilfinningum, lífsreynslu eða tengingu við hinn andlega heim. Andleg vegferð snýst í grunnin um að læra að skilja sjálfan sig betur og hjálpa við að finna innri frið.Oft halda margir að andlegt fólk þurfi að vera í hörklæðnaði, sitja í hugleiðslu allan daginn eða vera eins og jóga gúrú eða munkur. En andleiki snýst ekki um útlit eða ákveðinn lífsstíl. Maður þarf ekki að fylgja einhverri sérstakri ímynd til að teljast andlegur. Andlegur einstaklingur getur alveg verið venjuleg manneskja sem vinnur venjulega vinnu, hlustar á tónlist, hittir vini sína og lifir sínu daglega lífi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
96
96. Vadíkanið
Vatíkanið hefur lengi verið eitt dularfyllsta og áhrifamesta ríki heims, bæði vegna trúarlegs valds og sögulegrar arfleifðar. Sem miðstöð Rómversk-kaþólska kirkjan gegnir það lykilhlutverki í lífi milljóna manna, en jafnframt hefur það verið uppspretta fjölmargra samsæriskenninga og sögusagna í gegnum tíðina.Ein þekktasta kenningin snýr að leyniskjölum sem eiga að vera geymd í Vatíkanleyndarsafnið. Þar er talið að finna skjöl sem kirkjan vill ekki að almenningur sjái, til dæmis um raunverulegan uppruna kristni, mögulegar tengingar við utanjarðarlíf eða jafnvel sönnunargögn sem gætu kollvarpað hefðbundnum trúarkenningum. Þó safnið sé raunverulega til og innihaldi mikilvæg söguleg gögn, er aðgangur mjög takmarkaður, sem hefur ýtt undir vangaveltur og grunsemdir.Sumir halda því fram að Vatíkanið búi yfir leyndum þekkingum eða gripum sem tengjast yfirnáttúrulegum fyrirbærum. Þar má nefna sögur um „tímavél“ sem kallast Chronovisor, tæki sem á að geta sýnt atburði úr fortíðinni.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
-
95
95. Innsæið
Innsæi er oft eitthvað sem við upplifum sem svona „innri tilfinningu“ eins og lítil rödd eða gut feeling sem segir okkur hvað sé rétt eða rangt, jafnvel áður en við höfum hugsað málið almennilega í gegn. Sumir líta á innsæi sem eins konar tengingu við eitthvað meira en bara okkur sjálf eins og við séum að „túna okkur inn“ á stærri orku eða vitund. Þá getur innsæið birst sem sterk tilfinning, hugboð eða jafnvel tilfinning fyrir því að vita eitthvað án þess að geta útskýrt af hverju.Fólk sem vill styrkja innsæið sitt reynir oft að hægja á sér, vera meira í núinu og hlusta betur inn á við, til dæmis með kyrrð eða hugleiðslu. Þá verður auðveldara að greina á milli þess hvað er bara hávaði og hvað er þessi rólega, innri tilfinning.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
94
94. Arthur Findlay collage - okkar reynsla
Við erum komnar heim frá Arthur Findlay og erum ekekrt smá ánægðar með þessa geggjuðu ferð! Við lærðum svo mikið og höfum tekið rosalegan vaxtarkipp í andlega heiminum. Þetta var ótrúlega skemmtilegt en á sama tíma mjög krefjandi og lærdómsríkt.Við förum aðeins yfir þetta í þessum þætti, hvað við lærðum og hvernig okkur fannst skólinn og námið. Við vorum að læra trans heilun í 7 daga í geggjuðu umhverfi með yndislegu fólki. Við mælum með að kíkja á þennan skóla!!! Við eigum pott þétt eftir að fara aftur mjög fljótlega enda verður fólk háð því að fara þangað, við vorum með þeim örfáu sem voru að fara í fyrsta skiptið.p.s. Þetta er alls ekki dýrt, 7 dagar í gistingu, námið og fullt fæði á um 140þús á mann (fyrir utan flug) https://www.arthurfindlaycollege.org/Komdu og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkarwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
93
93. Samsæriskenningar um Tunglið
Samsæriskenningar um tunglið eru ansi margar. Sumir halda að tunglið sé ekki náttúrulegt heldur gervihnöttur eða jafnvel geimstöð sem fylgist með jörðinni og jafnvel stýri henni að hluta til. Aðrar kenningar eins og það að tunglið sé mögulega holt að innan eða innihaldi mannvirki sem hafi áhrif á jörðina og mannkynið og að leyndarmál séu falin á tunglinu eins og byggingar eða geimverur.Ein frægasta samsæriskenningin um Tunglið er að lendingin í Apollo 11 Moon Landing hafi verið sviðsett og að tunglferðir manna hafi aldrei átt sér stað og þessar ferðir hafa allar verið sviðsettar. Talsmenn þessarar kenningar benda á meintar „ósamræmi“ í myndum og myndböndum.Okkur finnst mjög skemmtilegt að velta þessum kenningum fyrir okkur og leifa ýmyndunaraflinu að taka okkur; "út fyrir endamörk alheimsins"!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
92
92. Geimfréttir með Gunnari Dan
Við fengum að vita það allra nýjasta og heitasta slúðrið úr geimfréttum með Gunnari Dan. Það er svo mikið að gerast í þessum málaflokk að það er eiginlega bara vandræðanlegt!En við ræddum m.a. um dularfullu morðin og mannshvörfin á vísindamönnunum sem flestir hafa tekið eftir í fjölmiðlum síðustu vikur og mánuði. Við snertum aðeins á samsæriskenningum um Epstein skjölin og Covid sem komið er á yfirborðið og margt margt fleira.Það er alltaf gaman að hitta Gunnar og fræðast um geimfréttir!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
91
91. Heilun - Trans heilun
Heilun snýst um að endurheimta þetta jafnvægi. Með því að vinna með orku og ásetning er markmiðið að styðja við náttúrulega getu líkamans til að stilla sig af. Aðferðir eins og Reiki, Englareiki, kristallaheilun og transheilun nálgast þetta á mismunandi hátt, en eiga það sameiginlegt að leitast við að róa taugakerfið, hreinsa orkuflæði og efla innri frið. Heilun þykir okkur magnað tól sem hjálpar okkur að ná ró og létta á orkulíkamanum, losa um orkustíflur og bæta flæðið og þá líður okkur betur.Í transheilun er lögð áhersla á að fara í djúpt meðvitundarástand þar sem heilari stillir sig á tíðni og verður jarðsamband fyrir ljósverur og "lækna að handan". Unnið er með skýrum ásetningi um að fá heilun sem hentar fyrir þyggjandann á þessum tímapunkti og ávallt er unnið með orku eða ljósverum sem eru tengdar hæðstu tíðni, hinum æðsta kærleika og vinnum með ljósinu.Sá sem er að heila er ekki heilarinn, heldur einungis millistykkið. Við tengjum okkur eins og útvarpsrás á ákveðna tíðni og gefum ljósverum aðgang að því að nota okkar líkama og orku til að koma heilun í gegn á þann sem á að taka við heiluninni. Þetta hljómar skrítið, en flestir hafa eflaust heyrt um "læknamiðla" en þetta er það sama nema við köllum þetta trans heilun, við ábyrgjumst aldrei lækningu og hvetjum fólk að leita til alvöru læknis ef það er eitthvað vandamál, en trans heilunin og þeir læknar að handan sem koma að heiluninni geta gert ansi mikið og margt, stundum kraftaverki líkast, en allt er orka, þeir jafna út orku og vinna með orkuflæði líkamans og oft á tíðum ef það hefur fest mikil neikvæð orka inn í líkamanum okkar þá getur það valdið sjúkdómum. Orkuvinna er því mjög mikilvæg til að halda öllu kerfinu í jafnvægi.Markmiðið er ekki að „laga“ eitthvað, heldur að styðja líkamann og orkukerfið við að finna sitt eigið náttúrulega jafnvægi.Taka skal fram að ALLIR hafa þennan hæfileika að geta heilað, þú getur heilað sjálfan þig. Það er ekkert eitt rétt og rangt í þessu, allt snýst þetta um ásetning, kraft og mátt hugans og orkuflæðið í líkamanum. Við getum læknað ansi margt í líkamanum okkar einungis með því að breyta hugsunum! Pælum aðeins í því!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
90
90. Búálfar
Búálfar eru ekki aðeins hluti af íslenskri þjóðtrú, heldur finnast svipaðar verur í sögum og menningu víða um heim. Þó að nöfnin og smáatriðin breytist milli landa, eiga þessar verur oft margt sameiginlegt.Á Norðurlöndum eru álfar og huldufólk talin búa í steinum, hólum og fjöllum. Þeir eru oft líkir mönnum í útliti en lifa aðskildu lífi og fylgja eigin reglum. Í keltneskri þjóðtrú, til dæmis á Írlandi og í Skotlandi, finnast verur sem kallast „fairies“.Í Þýskalandi og öðrum hlutum Mið-Evrópu eru til sögur af smáum verum sem líkjast búálfum og búa á heimilum fólks. Þær hjálpa stundum til við heimilisstörf á nóttunni, en aðeins ef þeim er sýnd virðing. Ef þær eru móðgaðar geta þær hins vegar valdið usla. Svipaðar hugmyndir má finna á fleiri stöðum út um allan heim, þar sem „domovoi“ eru heimilisandar sem vernda hús og fjölskyldur.Þessar sögur sýna að hugmyndin um hulduverur er nær alþjóðleg. Búálfar og skyldar verur endurspegla oft tengsl mannsins við náttúruna, óttann við hið óþekkta og löngunina til að útskýra það sem ekki er auðvelt að skilja. Hvort sem fólk trúir á þær eða ekki, lifa þessar verur áfram í menningu, sögum og ímyndunarafli fólks um allan heim.Komdu í áskrift á:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
89
89. Appalachia fjöllin
Appalachia fjöllin eru ein af elstu fjallakeðjum heims og hafa ríka sögu bæði jarðfræðilega og menningarlega. Fjöllin eru þekkt fyrir fallegt landslag, stóra skóga og fjölbreytt lífríki sem hefur varðveist í þúsundir ára.Hið dularfulla við Appalachia er margþætt. Fyrst ber að nefna náttúruna sjálfa. Þykku skógarnir, dimma dali sem skapa ævintýralega stemningu. Þar hafa fundist margir fornir hellar, falin vötn og ósnortin svæði sem minna á að menn eru aðeins gestir í þessari miklu náttúru. Þessar afskekktu byggðir hafa oft verið staðir goðsagna, þar sem sögur af huldufólki og fleiri dularfullum verum hafa lifað frá kynslóð til kynslóðar.En Appalachia er einnig staður þar sem yfirnáttúrulegir hlutir eiga sér stað. Þarna hafa orðið endalaus dularfull mannshvörf, skinwalkers, big foot, geimverur, mannætur, draugar, portals og í raun og veru allt sem þú getur ýmyndað þér er á þessu svæði!Þetta hefur gefið svæðinu orðspor sem eitt af „yfirnáttúrulegastu fjallasvæðum“ Bandaríkjanna.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
88
88. Dark web
The dark web er hluti af internetinu sem er ekki aðgengilegur með hefðbundnum vöfrum eins og Chrome eða Safari. Til að komast inn á það þarf sérstakan hugbúnað, til dæmis Tor, sem felur auðkenni notenda og gerir þeim kleift að vafra um nafnlaust.Dark web er þekkt fyrir ólöglega starfsemi. Þar má finna markaði fyrir fíkniefni, stolnar upplýsingar, fölsuð skilríki, morð, mannakjöt og allskonar ólöglega þjónustu. Vegna nafnleyndarinnar er erfitt fyrir yfirvöld að rekja notendur, sem gerir svæðið aðlaðandi fyrir glæpastarfsemi.Fólk fer á dark web af mjög mismunandi ástæðum og það er mikilvægt að skilja að ekki allir sem nota dark web hafa slæman ásetning. Fyrir suma snýst þetta um nafnleynd og frelsi eins og í löndum þar sem tjáningarfrelsi er takmarkað þá getur dark web verið eina leiðin til að nálgast upplýsingar, tala frjálst eða hafa samband við umheiminn án eftirlits. Blaðamenn og uppljóstrarar nota það stundum til að vernda heimildir sínar og sjálfa sig.Vertu hluti af yfirnttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
87
87. Fyrrilífs dáleiðsla - upplifun!
Eftir að við tókum viðtalið við hina mögnuðu Vigdísi þá fór Selma í fyrrilífs dáleiðslu til hennar um daginn og auðvitað kom Dagný með og fylgdist með.Þetta var vægast sagt MÖGNUÐ upplifun! Við förum yfir þetta allt í þessum þætti og Selma fer á persónulegu nóturnar og opnar sig upp á gátt. Þessi upplifun var svo áhrifarík og blandar Vigdís öflugri heilun saman við fyrrilífs dáleiðsluna og vinnur þannig með líkamanum, losar og heilar.
-
86
86. Mandela effect
Mandela Effect er eitt af þessum fyrirbærum sem fær mann til að efast um sjálfa raunveruleikann. Hugtakið er kennt við Nelson Mandela, því margir muna eftir því að hann hafi dáið í fangelsi á níunda áratugnum, þó að hann hafi í raun lifað lengi eftir það. Þetta er ekki bara einföld minnisvilla hjá einum einstaklingi, heldur eitthvað sem virðist tengja saman heila hópa fólks sem deila sömu „röngu“ minningunni.En hvað ef þetta er ekki bara mistök í heilanum? Hvað ef þetta er eitthvað meira?Í yfirnáttúrulegri umræðu er Mandela Effect oft túlkað sem merki um að raunveruleikinn sé ekki eins stöðugur og við höldum. Sumir telja að við séum að upplifa skörun á milli mismunandi tímalína eða jafnvel parallel heima. Í slíkri hugmynd gæti eitthvað hafa breyst, lítil smáatriði eins og nöfn, setningar eða útlit hluta og við sem höfum einhvern veginn „minningar“ úr annarri útgáfu af veruleikanum tökum eftir því.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
85
85. Arthur Findlay "nornaskóli"
Við erum svo spenntar að segja ykkur frá því að núna 10. apríl erum við á leiðinni til Arthur Findlay collage að læra trans heilun!Í þessum þætti ræðum við um þennan spiritual skóla og söguna á bak við hann. Við komum svo fullar af fróðleik tilbaka og hlökkum til að segja ykkur allt af létta frá okkar upplifunum, hvað við lærðum og hvernig var í þessum magnaða skóla.komud í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
84
84. Mount Shasta - Yfirnáttúrulegt fjall
Mount Shasta er fjall í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum sem hefur lengi verið talið eitt af dularfyllstu og andlegu stöðum heims. Fyrir marga er það ekki aðeins náttúruundur heldur einnig orkustaður þar sem tenging við andlega heima er sterkari en annars staðar. Fjallið hefur laðað að sér leitendur, hugleiðendur og andlega kennara sem telja að þar sé að finna sérstaka tíðni eða vitund sem hægt er að tengjast.Í kringum Mount Shasta hafa myndast margar sögur og trúarhugmyndir, og ein sú þekktasta tengist Lemúríu. Lemúría er talin vera fornt og háþróað samfélag eða heimsálfa sem átti að hafa sokkið í hafið fyrir þúsundum ára. Nú er sagt að Lemúríu búar hafi byggt sér neðanjarðar borg undir Mount Sjasta og búa saman í djúpri sátt við náttúruna og höfðu þróað með sér mikla andlega visku og hæfileika sem nútímamaðurinn hefur að mestu gleymt.Sagan segir að hluti af íbúum Lemúríu hafi sloppið undan eyðingu heimsálfunnar og fundið sér skjól undir Mount Shasta. Þar eigi þeir að hafa byggt upp falda borg, oft kölluð Telos, þar sem þeir lifa enn í dag á hærra meðvitundarstigi. Þeir eru sagðir vera friðsælir, upplýstir og vinna að því að hjálpa mannkyninu að þróast andlega, þó þeir birtist sjaldan beint.Fyrir þá sem trúa á þessar hugmyndir er Mount Shasta eins konar hlið milli heima staður þar sem efnislegi og andlegi veruleikinn mætast. Margir sem heimsækja fjallið segja frá sterkum upplifunum, eins og auknu innsæi, djúpri ró eða tilfinningu fyrir tengingu við eitthvað stærra en sjálfa sig. Aðrir líta á þetta sem táknrænar sögur sem endurspegla þrá mannsins eftir uppruna, tilgangi og andlegri vakningu.Hvort sem litið er á Lemúríu sem sögulega staðreynd, goðsögn eða andlega myndlíkingu, þá hefur þessi saga haft djúp áhrif á nútíma andlega menningu. Hún minnir á möguleikann á öðrum leiðum til að lifa í meiri samhljómi við náttúruna, hvort annað og eigin innri visku.Þetta magnaða fjall er einnig einn helsti UFO hot spot í Bandaríkjunum. Geimskip hafa sést koma inn og út úr fjallinu.Komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
83
83. Vigdís Steinþórsdóttir - seinni hluti (fyrrilífs dáleiðsla)
Við höldum áfram að ræða við hana mögnuðu Vigdísi um fyrrilífs dáleiðslur og hvernir karma og fyrrilífin hafa áhrif á okkur í þessu lífi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
82
82. Vigdís Steinþórsdóttir - Fyrrilífs dáleiðari, heilari og hjúkrunarfræðingur.
Gestur dagsins er engin önnur en Vigdís Steinþórsdóttir. En þessi magnaða kona er hjúkrunarfræðingur, heilari, fyrralífs dáleiðari og hreint út sagt alveg mögnuð kona.Vigdís er hokin af reynslu, alger norn af náttúrunnar hendi, ótrúlega næm og mikil ljósvera.Hún heldur kærleiksdaga út um allt land sem er nærandi samvera fyrir líkama og sál.Einnig er hún með Heimsljós messuna og Heilunar guðþjónustur.Þetta er fyrrihlutinn af tveimur þáttur með henni Vigdísi.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
81
81. Drekar
Drekar hafa um aldir verið meðal dularfyllstu og kraftmestu veranna í goðsögnum og trúarhefðum heimsins. Þeir birtast í ólíkum myndum eftir menningarheimum.Margir í dag upplifa sterka tengingu við svokallaða drekaorku og líta á hana sem hluta af eigin andlegu ferðalagi. Fyrir þeim er þetta ekki bókstafleg trú á líkamlega dreka, heldur tilfinning fyrir ákveðinni orku eða meðvitund sem tengist styrk, vernd og umbreytingu. Drekaorkan er oft lýst sem kraftmikil, djúp og stundum eldfim orka sem getur bæði byggt upp og brotið niður, eftir því hvernig henni er beint.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
80
80. Samskiptaleiðir framliðna
Margar frásagnir víðs vegar um heiminn benda til þess að framliðnir geti, með ýmsum hætti reynt að senda skilaboð til okkar.Ein algengasta leiðin er í gegnum drauma. Fólk lýsir því oft að hafa séð látna ástvini í draumi sem virðast óvenju raunverulegir, næstum eins og heimsókn frekar en ímyndun. Í slíkum draumum koma oft framliðnir með skilaboð til dreymanda.Önnur algeng leið er svona rafræn truflun þar sem framliðnir geta haft áhrif á rafmagnstæki, látið ljós blikka eða hljóð sem birtast upp úr engu.Einnig eru til sögur af því að framliðnir noti umhverfið til að vekja athygli, hlutir sem hreyfast, hurðir sem opnast eða lokast og jafnvel skyndileg breyting á hitastigi í herbergi. Fyrir þá sem upplifa slíkt getur það verið bæði ógnvekjandi og heillandi á sama tíma.En hvernig eigum við að skynja slík samskipti? Sumir telja að lykillinn liggi í næmni okkar sjálfra. Fólk talar um innsæi sem getur hjálpað okkur að taka eftir því sem annars fer framhjá okkur. Þetta getur birst sem sterk tilfinning um nærveru, kuldahrollur án augljósrar ástæðu eða skyndileg tilfinning um að vera ekki einn.Komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
-
79
79. Andaglas, Pendúll og Rods prik - samskiptatæki við framliðna.
Í gegnum aldir hafa fólk notað ýmis verkfæri til að reyna að fá svör við spurningum eða jafnvel hafa samband við andaheiminn. Við skoðum þrjú samskiptartæki við hina látnu, andaglas, pendúl og rods prikin.Andaglas er borð sem yfirleitt er merkt með stöfum, tölum og orðunum „já“ og „nei“. Þegar það er notað setja þátttakendur fingurna létt á lítið glas eða planchette sem er sett á borðið. Síðan eru spurningar spurðar og glerið virðist hreyfast yfir stafi til að mynda orð eða svör.Pendúl er annað tæki sem oft er notað í svipuðum tilgangi. Pendúl er einfaldlega lítill hlutur, til dæmis kristall eða hringur, sem hangir í keðju eða snúru. Sá sem notar pendúlinn heldur honum kyrrum yfir höndinni eða yfir ákveðnu svæði og spyr spurninga. Hreyfingar pendúlsins eru síðan túlkaðar sem svör. Til dæmis getur hreyfing fram og til baka táknað „já“, en hreyfing frá hlið til hliðar „nei“. Sumir nota pendúl til að reyna að finna hluti, fá svör við spurningum eða skynja orku.Rods eru tvö L-laga málmprik sem haldin eru í höndum. Prikin skynja orku og hreyfst í kross eða til hliðar. Í gegnum söguna hafa sumir notað þessi prik til að reyna að finna vatn undir jörðu, málma eða aðrar falnar auðlindir. Í paranormal samhengi telja sumir að prikin geti líka brugðist við orku eða jafnvel nærveru anda.Við erum á persónulegu nótunum þegar við ræðum um Rods prikin þar sem við upplifðum svo magnaða hluti saman í gegnum prikin að við urðum eiginlega orðlausar yfir því sem kom í gegn og við urðum að deila því með ykkur!Komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
78
78. Klón
Klónun er ekki vísindaskáldskapur, Klón er tækni sem notuð í heiminum í dag!Frá því að sauðkindin Dolly var klónuð árið 1996 breyttist allt. Vísindamenn sýndu að hægt væri að endurskapa líf úr einni frumu. En spurningin er ekki bara hvernig er klónað heldur afhverju er verið að klóna?Hver var raunverulegur tilgangur klónunar? Er það til þess að bjarga dýrategundum, eða til þess að þróa lækningar, Eða eitthvað miklu dularfyllra en það.....?Sumir velta því fyrir sér hvort klón þekkingin hafi komið hraðar en hún ætti að gera og mögulega tæknileg viska frá ójarðnenskum verum.Í þessum þætti skoðum við staðreyndirnar um klónun, tilgang hennar og þær dularfullu spurningar sem fylgja henni. Við köfum í samsæriskenningar um klónin í Hollywood og hverjir eru taldir vera klónaðir, eru þeir sem eru á bak við klónun á fólki mögulega Iluminati?Stundum er raunveruleikinn bara miklu ótrúlegri en skáldskapurinn.Mentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
77
77. Sálarskipti
Hvað ef sálin er ekki bundin líkamanum?Hvað ef „þú“ ert ekki líkaminn þinn heldur eitthvað sem hægt er að færa?Sálarskipti, eða soul swapping, er hugmynd sem hefur birst í fornum trúarhugmyndum, dulfræðum kenningum og nútíma samsærisumræðu. Sumir trúa því að meðvitund sé orka sem hægt sé að flytja á milli líkama. og að það sé til tækni sem getur tekið persónuleika, minningar, taugakerfið ofl. og fært það allt saman yfir í annan líkama og halda áfram að lifa í þeim líkama!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
76
76. Ýmsar yfirnáttúrulegar verur
Í dag ætlum við að kafa inn í heim yfirnáttúrulegra vera, furðulegra, dularfullra og stundum ógnvekjandi fyrirbæra sem hafa fylgt mannkyninu í gegnum aldirnar.Við kynnumst m.a. verum sem kallast Selkies úr Íslenskum þjóðsögum, en þetta eru selir sem geta farið úr ham sínum og breyst í menn.Fresno Nightkrawler er undarleg vera sem er eiginlega bara hægt að lýsa sem krúttlegir hvítir fætur og án frekari útlima. Árið 2007 náði öryggismyndavél í borginni Fresno undarlegu fyrirbæri á filmu sem síðar fékk nafnið Fresno Nightcrawler.Kentár er hálfur hestur og hálfur maður, þessi vera kemur úr grískri goðafræði. Kentárar bjuggu í fjöllum og skógum og voru oft taldir villtir, drykkfelldir og óstýrilátir. Þeir tákna oft frumkraft, dýrslegt eðli og togstreitu milli siðmenningar og eðlishvatar.Við kynnumst einnig Fönix fuglinn sem rís úr öskunni, djöfullegri veru sem kallast Keres.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
-
75
75. Geimfréttir með Gunnari Dan - seinni hluti
Við höldum áfram þar sem við hættum með honum Gunnari Dan geimveru sérfræðing.Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum þar sem þú getur keypt bækur! Þetta er svo falleg og vegleg bók sem enginn áhugamaður um ójarðnensk öfl og verur ætti að láta fram hjá sér fara!Ufo 101:Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.
-
74
74. Geimfréttir með Gunnari Dan - fyrsti hluti
Í þessum þætti förum við um víðan völl og fáum að vita allt það heitasta og nýjasta í geimfréttum. Það er ekkert skemmtilegra en að kíkja í kaffi til Gunnars og heyra æsifréttirnar í ufo og geimveru heiminum!Gunnar er okkar helsti geimveru sérfræðingur og var hann að gefa út bókina Ufo 101 og er önnur bók í smíðum og kemur út í haust.Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum sem selja bækur! Við mælum svo sannarlega með að þið tryggið ykkur eintak eða leigið á bókasafni og kíkið á þessa mögnuðu bók!Ufo 101:Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
-
73
73. Brottnáms upplifanir eða hvað?
Í þættinum í dag köfum við ofan í bresku heimildarmyndina Confessions of an Alien Abductee, þar sem fylgst var með fólki sem taldi sig hafa verið brottnumið ítrekað yfir ævina.Í þáttunum eru m.a. lýsingar frá manni sem heldur því fram að hann eigi móður sem er geimvera og einnig að hann hafi átt í nánu og kynferðislegu sambandi við veru utan úr geimnum, samband sem hann lýsir sem bæði líkamlegu og tilfinningalegu.Við kynnumst einnig einstaklingum sem lýsa endurteknum heimsóknum og æknisfræðilegum „aðgerðum“ um borð í óþekktum farartækjum.Sumir viðmælendurnir líta á þessar upplifanir sem köllun eða sérstakt hlutverk í stærra kosmísku samhengi. Aðrir lýsa djúpum ótta, skömm og einangrun og baráttu við að fá einhvern til að trúa sér.Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
-
72
72. Svefnrofalömun eða sleep paralysis
Svefnlömun er ástand þar sem heilinn er vakandi en líkaminn er enn í djúpsvefni og þú getur ekki hreyft líkamann. Þetta gerist vegna þess að í REM-svefni slakar líkaminn á vöðvum til að koma í veg fyrir að við framkvæmum draumana okkar. Stundum vaknar meðvitundin áður en þessi vöðvalömun hverfur og þá upplifir einstaklingurinn að hann sé vakandi en fastur í eigin líkama.Margir sem upplifa svefnlömun segja að hún geti verið mjög ógnvekjandi. Algengt er að finna fyrir þrýstingi á brjósti, erfiðleikum við að anda og sterkri tilfinningu um ótta. Sumir upplifa einnig ofskynjanir, það er að sjá, heyra eða skynja hluti sem eru ekki raunverulega til staðar.Fólk sem hefur upplifað svefnrofalömun lýsa flest svipuðum hræðilegum verum sem þau sjá í þessu ástandi, þar má nefna: skuggaveru sem stendur í horni herbergisins eða við rúmið, púka eða djöfullegar verur, gamla konu sem er hræðileg, geimverur og allskonar hræðilegar verur.Önnur algeng lýsing er vera sem situr á brjósti viðkomandi. Fólk finnur þá fyrir miklum þrýstingi á bringunni og á erfitt með að anda.Sumir upplifa að veran hvísli, gefi frá sér hljóð eða reyni jafnvel að snerta þá. Í nútímanum tengja sumir slíkar upplifanir við geimverur eða svokallaðar „alien abductions“ þar sem fólk upplifir að vera rannsakað eða numið brott.Svefnlömun er í sjálfu sér ekki hættuleg, en hún getur verið mjög raunveruleg og skelfileg fyrir þann sem upplifir hana.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
-
71
71. The Glimmer man
Í dag ætlum við að fjalla um dularfullt fyrirbæri sem kallast The Glimmer Man. Við viljum taka fram að það var mikill galsi og gleði í þessari upptöku! En okkur þykir bara svoooooo gaman að taka svona undarleg mál fyrir og erfitt að vera ekki í smá hláturskassti á meðan...ENThe Glimmer man er heiti sem sumir nota yfir yfirnáttúrulega veru eða skugga sem fólk segist hafa séð, en sem er ekki alveg sýnilegur. Fólk sem lýsir The Glimmer Man segir oft að fyrirbærið líti út eins og mannslaga skuggi sem er gegnsær en með glóandi augu.Það eru margar kenningar um hvað þetta gæti verið. Sumir halda að þetta séu andar eða aðrar yfirnáttúrulegar verur. Aðrir telja að um geti verið að ræða geimverur með háþróaða tækni sem gerir þær ósýnilegar. Enn aðrir nefna möguleikann á verum úr annarri vídd. Hins vegar eru engar vísindalegar sannanir sem styðja þessar hugmyndir.
-
70
70. Remote viewing
Remote viewing er lýst sem aðferð þar sem einstaklingur reynir að fá upplýsingar um fjarlægan stað, hlut eða atburð án þess að vera líkamlega til staðar, og án þess að nota hefðbundin skynfæri.Hugmyndin byggir á því að vitundin sé ekki bundin við tíma og rúm, heldur geti hún ferðast, skynjað og upplifað veruleika sem liggur utan hefðbundinna skynfæra. Margir sem hafa stundað remote viewing lýsa upplifunum sem minna á djúpa hugleiðslu, innsæi eða meðvitaða tengingu við stærra svið upplýsinga.Sumir tala um upplifanir þar sem vitundin hefur ferðast til tunglsins, þar sem þeir lýsa landslagi, mannvirkjum eða tilfinningu fyrir nærveru sem þeir telja ekki vera tilviljun. Aðrir segja frá sýnum tengdum svæðum eins og Area 51, þar sem þeir upplifa aðgang að upplýsingum sem eru faldar almenningi, hvort sem það er í formi tákna, mynda eða tilfinninga sem koma fram í djúpu einbeitingarástandi.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega.Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum.Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls.Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
HOSTED BY
Ghost Network®
CATEGORIES
Loading similar podcasts...