12 ára strákur ráðinn skólastjóri og þriðji þýðandi Hobbitans episode artwork

EPISODE · Nov 29, 2025 · 50 MIN

12 ára strákur ráðinn skólastjóri og þriðji þýðandi Hobbitans

from Bara bækur

Tolkien aðdáendur hafa eflaust fengið af því fréttir að í jólabókaflóðinu í ár er ný þýðing á Hobbitanum. Það sætir tíðindum af nokkrum ástæðum. Íslenskar þýðingar á bókum Tolkiens eiga sér svolítið flókna sögu og hef ég rakið það hér í þessum þætti sem og annarsstaðar áður. Í stuttu máli kom hún fyrst út á íslensku um 40 árum eftir upprunalegu útgáfuna árið 1978 í þýðingu feðganna Úlfs Ragnarssonar og Karls Ágústs Úlfssonar, síðan í nýrri þýðingu Þorsteins Thorarensen árið 1997 og loks núna í þriðju þýðingunni eftir Sólveigu Sif Hreiðarsdóttur og með ljóðaþýðingum Braga Valdimars Skúlasonar. Svo hafa útgáfuflækjur valdið því að Hobbitinn og flest allt Tolkien-efni á íslensku hefur lengi verið ill- eða ófáanlegt, enginn hefur tekið það að sér til að kaupa þýðingarréttinn og endurútgefa. Einhver liggur á þeim eins og dreki á gulli. En hobbitinn Bilbó er sum sé snúinn aftur... aftur. Út og heim aftur. Fjöllum um hann í lok þáttar. Kerfisgallar og seinagangur veldur því að 12 ára strákur fær stöðu skólastjóra í bókinni Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson. Upp vakna spurningar um frelsi og vald, hvort eigi að hafa svín í skólastofum og hvort nemendur ættu að hafa lýðræðislegt vald til að reka kennara. Og kannski er erfiðara að vera kennari og skólastjóri en krakka hafði grunað og erfiðara að vera nemendur en kennarar gera sér grein fyrir. SKólastjórinn hlaut bókmenntaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2024 en er nú nýkomin út. Viðmælendur: Ævar Þór Benediktsson, Karl Ágúst Úlfsson, Sólveig Sif Hreiðarsdóttir og Björn Thorarensen. Lesarar: Magnús Guðmundsson, Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

NOW PLAYING

12 ára strákur ráðinn skólastjóri og þriðji þýðandi Hobbitans

0:00 50:35

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on November 29, 2025.

What is this episode about?

Tolkien aðdáendur hafa eflaust fengið af því fréttir að í jólabókaflóðinu í ár er ný þýðing á Hobbitanum. Það sætir tíðindum af nokkrum ástæðum. Íslenskar þýðingar á bókum Tolkiens eiga sér svolítið flókna sögu og hef ég rakið það hér í þessum þætti...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!