EPISODE · Apr 16, 2026 · 54 MIN
12. Mannætukóngurinn Sam Altman
Á næstu árum er óhjákvæmilegt að einhver muni þróa stórhættulega ofur-gervigreind. Það er spurning upp á líf og dauða hver það er sem muni stjórna þessari tækni. Sam Altman vill að við treystum honum fyrir því. Það eru þó ekki allir sammála því að stórhættulega ofur-gervigreindin sé óhjákvæmleg og finnst jafnvel önnur vandamál af völdum gervigreindar meira aðkallandi að leysa. Um þetta er fólk innan gervigreindargeirans ekki sammála. Altman er kurteis, strákslegur og hefur sakleysislegt yfirbragð. Hann hefur á undanförnum árum orðið að andliti gervigreindarbyltingarinnar, hann er maðurinn á bakvið OpenAI og spjallmennið ChatGPT. Hann hefur verið kallaður mannætukóngurinn af læriföður sínum.Efni sem við studdumst við við gerð þáttarinsBækurThe Optimist: Sam Altman, OpenAI, and the Race to Invent the Future (2025) eftir Keach HageyEmpire of AI (2025) eftir Karen HaoViðtölDario Amodei hjá New York Times - https://www.youtube.com/watch?v=N5JDzS9MQYI&t=1671sSam Altman hjá Lex Fridman - https://www.youtube.com/watch?v=L_Guz73e6fwEilezer Yudkowsky hjá New York Times - https://www.youtube.com/watch?v=2Nn0-kAE5c0&t=1205sGreinar og bloggBlogg Sam Altman - https://blog.samaltman.com/2279512Vefsíða OpenAI - https://openai.com/charter/New Yorker grein um Sam Altman - https://www.newyorker.com/magazine/2026/04/13/sam-altman-may-control-our-future-can-he-be-trusted Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Embed this episode
NOW PLAYING
12. Mannætukóngurinn Sam Altman
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.