123| Mannskæður troðningur í Seúl og kosningar í Danmörku episode artwork

EPISODE · Nov 5, 2022 · 40 MIN

123| Mannskæður troðningur í Seúl og kosningar í Danmörku

from Heimskviður

Meira en 150 manns, lang mest ungt fólk, krömdust til dauða í miðborg Seúl, höfuðborgar Suður Kóreu, um síðustu helgi. Fólkið var að fagna hrekkjavökunni, höfðu klætt sig upp í búninga að því tilefni og planið var að vera þar sem stuðið var mest. Itaewon hverfið í Seúl er lifandi djammsuðupottur, stútfullt af börum, skemmtistöðum og veitingastöðum - þar eru líka þröngar og sjarmerandi götur eins. Það var seint á aðfaranótt sunnudagsins síðasta, 29. október, sem þessar götur breyttust í dauðagildru. Hátt í hundrað þúsund manns söfnuðust saman á allt of litlu svæði í miðborginni, með hræðilegum afleiðingum. Lögreglan í Seúl hefur beðist afsökunar á því að hafa ekki brugðist rétt við, hafa ekki búið sig undir þennan fjölda, hafa ekki tekið til greina allan þann fjölda neyðarsímtala sem þeim barst frá því snemma um kvöldið um að þarna væri allt að stefna í óefni. Hátt í 200 mann særðust, sum lífshættulega. Þetta er mannskæðasta slys í Suður Kóreu síðan MV Sewol ferjan sökk 2014 með hátt í 500 farþega innanborðs, þar af létust yfir þrjú hundruð manns, mest ungt fólk. Sunna Valgerðardóttir fjallar um málið. Hallgrímur Indriðason er nýkominn frá Danmörku þar sem hann fylgdist með æsispennandi þingkosningum sem fram fóru á þriðjudag. Hallgrímur segir okkur frá kosningabaráttunni, kjördeginum og úrslitum kosninganna, þar sem má finna nokkra sigurvegara og aðra sem riðu ekki jafn feitum hesti frá kosningunum. Í Heimskviðum er fjallað um það sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta BJörnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

NOW PLAYING

123| Mannskæður troðningur í Seúl og kosningar í Danmörku

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on November 5, 2022.

What is this episode about?

Meira en 150 manns, lang mest ungt fólk, krömdust til dauða í miðborg Seúl, höfuðborgar Suður Kóreu, um síðustu helgi. Fólkið var að fagna hrekkjavökunni, höfðu klætt sig upp í búninga að því tilefni og planið var að vera þar sem stuðið var mest....

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!