126| Jarðsprengjur í Úkraínu, kókaínfjall í Evrópu og ofbeldi í Afríku episode artwork

EPISODE · Nov 26, 2022 · 40 MIN

126| Jarðsprengjur í Úkraínu, kókaínfjall í Evrópu og ofbeldi í Afríku

from Heimskviður

Rússar eru sagðir hafa breytt kornökrum víða um Úkraínu í jarðsprengjuakra. Talið er að svæði sem er jafnstórt og rúmlega eitt og hálft Ísland sé þakið þessum skaðræðisvopnum. Sérfræðingur segir að það eigi eftir að taka tuttugu ár að hreinsa jarðveginn. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið og ræðir meðal annars við Alistair Moir sem hefur yfir tíu ára reynslu af umsjón með sprengjuleit, svo sem í Suður-Súdan, Sómalíu, Kambódíu, Mjanmar og Sri Lanka og Kataryna Templeton, verkefnastjóra yfir Úkraínu hjá MAG eða The Mines Advisory Group, sem eru samtök sem sérhæfa sig í leit að jarðsprengjum og fræðslu fyrir íbúa stríðshrjáðra svæða. Morð, mútugreiðslur og óöld áratuganna fyrir aldamót í mörgum ríkjum Suður-Ameríku eru orðin hluti daglegs lífs í sumum hafnarborgum Evrópu. Kókaíni er smyglað til meginlandsins sem aldrei fyrr og uppgjafar gætir í stríðinu gegn eiturlyfjum, sem enn er háð beggja vegna Atlantshafsins, þar sem flestir hafa þegar játað ósigur. Nýr forseti Kólumbíu vill hætta stríðsrekstrinum sem hafi litlu skilað. Eiturlyfjaiðnaðurinn sé orðinn öflugri nú en á tímum kókaínbarónsins Pablos Escobars. Bjarni Pétur segir okkur frá. Albínismi er algengari í Afríku en víða annars staðar en fólk með þetta genafrávik er mjög útsett fyrir ofbeldi og áreitni víða í álfunni. Því er enn trúað að bein þeirra hafi lækningarmátt og færi lukku. Birta skoðaði málið. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

NOW PLAYING

126| Jarðsprengjur í Úkraínu, kókaínfjall í Evrópu og ofbeldi í Afríku

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on November 26, 2022.

What is this episode about?

Rússar eru sagðir hafa breytt kornökrum víða um Úkraínu í jarðsprengjuakra. Talið er að svæði sem er jafnstórt og rúmlega eitt og hálft Ísland sé þakið þessum skaðræðisvopnum. Sérfræðingur segir að það eigi eftir að taka tuttugu ár að hreinsa...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!