127| Fjölmiðlakeisarinn Murdoch og milliríkjadeila um númeraplötur episode artwork

EPISODE · Dec 3, 2022 · 43 MIN

127| Fjölmiðlakeisarinn Murdoch og milliríkjadeila um númeraplötur

from Heimskviður

Donald Trump ætlar að reyna að verða aftur forseti Bandaríkjanna. Hann tilkynnti þetta með pompi og prakt á heimilinu sínu í Florida, Mar-O-Lago, um miðjan síðasta mánuð. Marolago er muniði sama hús og alríkislögreglan réðst inn í á dögunum og tók fullt af skjölum sem Trump hafði tekið heldur ófrjálsri hendi í forsetatíð sinni. En, það sem vakti ekki síður athygli þegar Trump lét vita af áformum sínum fyrir þarnæsta ár, var formúlering nokkurra fjölmiðla á þeirri tilkynningu. Nánar tiltekið fjölmiðla sem eru í eigu manns sem studdi forsetann áður, og styður alla jafna frambjóðendur á hægri væng stjórnmálanna, einfaldlega vegna þess að það hentar honum og fyrirtækjum hans vel. Florida man makes anouncement, Maður í Flórída gefur út tilkynningu, sjá blaðsíðu 26, var slengt á bláan borða neðst á forsíðu New York Post, eitt aðalslúðurblað í eigu hins ríflega níræða Ruperts Murdoch. Fjölmiðlakeisarinn, sem á mörg hundruð fjölmiðla um allan heim, gerði með þessu eins lítið úr framboði Trumps og hugsast gat og þessi litli forsíðuborði varð eiginlega stærri frétt en framboðið sjálft. Sem endurspeglast líka í þessum þætti hér, sem fjallar ekki um forsetaframboð Trumps, heldur manninn sem átti stóran þátt í því að greiða götu hans sem forseta hér áður fyrr. Og hann er hættur því. Sunna Valgerðardóttir og Andrés Jónsson almannatengill grófu sig ofan í veruleika þessa merkilega risa, Ruperts Murdoch, og þau áhrif sem hann hefur haft á lýðræðið í hinum vestræna heimi. Hvernig getur deila um númeraplötur næstum því leitt til stríðsátaka? Litlu munaði að það hefði gerst í deilu um þennan að því er virðist hversdagslega hlut milli Serbíu og Kósóvó, áður en samningar afstýrðu því að sinni. Deilan er þó birtingarmynd af mun djúpstæðari vanda í samskiptum þessara þjóða. Hallgrímur Indriðason rýnir í það með aðstoð Urðar Gunnarsdóttur, fyrrverandi starfsmanns ÖSE í Kosovo. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

NOW PLAYING

127| Fjölmiðlakeisarinn Murdoch og milliríkjadeila um númeraplötur

0:00 43:13

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 43 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on December 3, 2022.

What is this episode about?

Donald Trump ætlar að reyna að verða aftur forseti Bandaríkjanna. Hann tilkynnti þetta með pompi og prakt á heimilinu sínu í Florida, Mar-O-Lago, um miðjan síðasta mánuð. Marolago er muniði sama hús og alríkislögreglan réðst inn í á dögunum og tók...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!