13. Mataruppeldi með Ebbu Guðnýju og Ásu Regins o.fl. episode artwork

EPISODE · Oct 9, 2019 · 2H 10M

13. Mataruppeldi með Ebbu Guðnýju og Ásu Regins o.fl.

from Virðing í uppeldi · host medvitadirforeldrar

Í þessum þætti hlaðvarpsins var rætt um mataruppeldi. Guðrún Inga Torfadóttir stjórnaði upptökum og spurði misgáfulegra spurninga, með spekingum úr hópi Meðvitaðra foreldra, þeim Guðrúnu Björnsdóttur og Svövu Margréti Sigurðardóttur. En í hópi sérfræðinga voru það Ása María Reginsdóttir og Ebba Guðný Guðmundsdóttir sem heiðruðu okkur með nærveru sinni. Sigrún Þorsteinsdóttir barna- og heilsusálfræðingur sendi okkur jafnframt vandað innslag um rannsóknarverkefnið Bragðlaukaþjálfun sem fer fram um þessar mundir við Háskóla Íslands og deildi með okkur frábærum ráðum.Við ætluðum okkur ólík hlutverk í þessum þætti. Við fórum yfir hvernig RIE-fræðin og kenning Ellyn Satter hafa gefið okkur frelsi og frið í matmálstímunum á okkar heimilum. Ebba og Ása gáfu góð ráð við val á matvælum og fóru yfir kosti ólívuolíunnar og Omega 3 olía. Við fórum yfir mataruppeldið sem við ólumst upp við sjálfar. Við ræddum sérkenni íslensku matarmenningarinnar, þar sem sykur er allsráðandi á laugardögum og í afmælum, og hvort hægt sé að mæla með því að gefa börnum svonefndar skvísur. Við fórum yfir gerð boosta. Þá var farið yfir „barnið borðar sjálft“ aðferðina við að gefa ungabörnum mat. Við ræddum um hvernig erfitt getur reynst að rjúfa samhengið sem við búum til á milli sætinda og þess að hafa gaman og sýna væntumþykju og hvernig við setjum sæt matvæli upp á stall gagnvart leiðinlegum hollum kostum. Þá ræddum við hvernig við tæklum aðra fjölskyldumeðlimi og vini sem vilja gefa börnum okkar sæta og gómsæta kosti sem við sem foreldrar myndum ekki velja alla jafna.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 9, 2019

Embed this episode

NOW PLAYING

13. Mataruppeldi með Ebbu Guðnýju og Ásu Regins o.fl.

0:00 2:10:22

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Virðing í uppeldi?

This episode is 2 hours and 10 minutes long.

When was this Virðing í uppeldi episode published?

This episode was published on October 9, 2019.

Can I download this Virðing í uppeldi episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!