136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika episode artwork

EPISODE · Feb 18, 2023 · 40 MIN

136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika

from Heimskviður

Þemaþættir Heimskviða halda áfram og að þessu sinni er sjónum beint að svæði sem er hinum megin á jarðkringlunni, Nýja Sjálandi og eyríkinu Tuvalu. Stjórnmálakonur sem hafa notið mikillar hylli alþjóðlega hverfa nú á braut ein af annarri, og segja álagið og atganginn sem fylgi nútímastjórnmálum helstu ástæðuna. Við ætlum að rýna í stöðu kvenleiðtoga og ástæður þess að aðeins tíu prósent þjóðarleiðtoga eru konur. Jacinda Ardern lét af embætti forsætisráðherra Nýja-Sjálands í síðustu viku. Afsögnin setur allt á hliðina í nýsjálenskum stjórnmálum, en kosið verður í haust og þegar ljóst að eftirmaður hennar og félagar hans ná aldrei að fara með flokkinn nærri þeim hæðum sem Jacinda Ardern gerði, en hún naut gríðarlega vinsælda, bæði í Nýja-Sjálandi en líka alþjóðlega. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið. Eyríkið Tuvalu í Kyrrahafi er eitt friðsælasta land í heimi. Þrátt fyrir það eru miklar líkur á að á næstu áratugum verði hver og einn einasti íbúi eyjanna að leggja á flótta. Gangi verstu spár um hækkandi sjávarmál eftir flæðir yfir eyjarnar og þær verða óbyggilegar. Túvalúar eru samheldnir og þó að þeir eigi líklega eftir að setjast að víða um heim ætla þeir að reyna að halda hópinn. Það ætla þeir að gera í sýndarveruleika, því hugmyndin er að endurskapa eyríkið þar og að hver og einn Túvalúi verði persóna í sýndarveruleikanum. Dagný Hulda Erlendsdóttir segir okkur frá þessum áhugaverðu framtíðarplönum.

NOW PLAYING

136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on February 18, 2023.

What is this episode about?

Þemaþættir Heimskviða halda áfram og að þessu sinni er sjónum beint að svæði sem er hinum megin á jarðkringlunni, Nýja Sjálandi og eyríkinu Tuvalu. Stjórnmálakonur sem hafa notið mikillar hylli alþjóðlega hverfa nú á braut ein af annarri, og segja...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!