137| Plastmengun á Norðurslóðum og málsókn Nígeríumanna gegn Shell episode artwork

EPISODE · Feb 25, 2023 · 40 MIN

137| Plastmengun á Norðurslóðum og málsókn Nígeríumanna gegn Shell

from Heimskviður

Þó plastmengun í hafi sé heldur lítil á Norðurslóðum miðað við til dæmis Miðjarðarhafið þá er hún að aukast. Og hvaðan kemur þessi plastmengun á svæðinu sem sárafáir búa á? Það er mikið til úr sjávarútveginum, en sömuleiðis áhrif frá okkur, til dæmis úr dekkjakurli og í plastþráðum úr útivistarfatnaði sem losna úr þeim við þvott og komast þannig út í umhverfið. Hallgrímur Indriðason var á ráðstefnu Arctic frontiers á dögunum, þar sem plastmengun á Norðurslóðum var meðal annars til umfjöllunar. Tæplega fjórtán þúsund íbúar Nígeríu hafa höfðað mál fyrir dómstólum í London gegn olíurisanum Shell fyrir gengdarlausa og áratuga langa olíuvinnslu í landinu með tilheyrandi mengunarslysum og lekum. Íbúarnir tilheyra Ogale og Billie sem eru landbúnaðar- og veiðisamfélög sem búa við ósa Nígerfljóts í suðurhluta landsins. Þeir saka Shell um gríðarlega mengun í vatnsuppsprettum og eyðileggingu á vistkerfum, sem hefur dregið úr lífsgæðum og umturnað lífinu á svæðinu. Kröfurnar eru settar fram bæði í nafni einstaklinga en einnig stofnana eins og kirkna og skóla. Fólkið krefst þess að olíufyrirtækið axli ábyrgð og sjái um það umfangsmikla hreinsunarstarf sem nauðsynlegt er til þess að endurheimta sómasamlegt líf við ósana. Einnig gerir fólk kröfu um skaðabætur fyrir hörmungarnar sem olíuvinnslan hefur valdið fyrir fiskveiðar og landbúnað. Forystumenn Shell halda fast í þá skoðun að kröfurnar séu tilhæfulausar. Það segist ekki bera ábyrgð á þjófnaði og skemmdarverkum skipulagðrar glæpastarfsemi sem það segir hafi valdið stórum hluta slysanna. Þessi átök teygja sig eins og svo víða annars staðar í Afríku aftur til nýlendutímans og málaferlin eru aðeins einn kafli í flókinni sögu olíuvinnslu Shell í Nígeríu, sem nú hyggst hætta vinnslu þar eftir langa viðveru. Jóhannes Ólafsson fjallar um málið. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

NOW PLAYING

137| Plastmengun á Norðurslóðum og málsókn Nígeríumanna gegn Shell

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on February 25, 2023.

What is this episode about?

Þó plastmengun í hafi sé heldur lítil á Norðurslóðum miðað við til dæmis Miðjarðarhafið þá er hún að aukast. Og hvaðan kemur þessi plastmengun á svæðinu sem sárafáir búa á? Það er mikið til úr sjávarútveginum, en sömuleiðis áhrif frá okkur, til...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!