EPISODE · Oct 16, 2019 · 55 MIN
14. Viðtal við Teacher Tom
from Virðing í uppeldi · host medvitadirforeldrar
Í þessum fjórtánda þætti náði Guðrún Inga Torfadóttir tali af Tom Hobson sem staddur var á Íslandi til að taka þátt í ráðstefnunni Play Iceland á dögunum. Hann gaf sér góðan tíma til að setjast niður og ræða í upptöku um hversu mikið hann dáist að íslenskum leikskólum og leikskólabörnum. Þá ræddi hann um leikskólann sem hann starfar í og sér um að reka ásamt foreldrum barnanna sem ganga í skólann og hvernig börnin setja sér reglur sjálf, fá að reyna á sig í áhættusömum leik og hvaða hlutverki hann gegnir sem eini launaði leikskólakennarinn í skólanum. Þá kom hann inn á skoðun sína um menntun leikskólakennara og þátttöku foreldra í leikskólastarfi, stefnurnar sem hann hefur fengið innblástur úr í sínu starfi sem leikskólakennari, áhrif hróss og afskipta fullorðinna af leik barna, lestrarkennslu, sjónvarpsáhorf og skjánotkun og ýmislegt fleira. Þátturinn er á ensku.
Embed this episode
NOW PLAYING
14. Viðtal við Teacher Tom
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.