141| Uppgangur Kína og framtíðarborg byggð á sandi episode artwork

EPISODE · Mar 25, 2023 · 40 MIN

141| Uppgangur Kína og framtíðarborg byggð á sandi

from Heimskviður

Xi Jinping varð nýlega sá fyrsti í áratugi til að vera kjörinn forseti Kína þriðja kjörtímabilið í röð. Stefna hans í utanríkismálum hefur verið að berjast gegn því sem hann hefur talið vera viðleitni Bandaríkjamanna til að halda aftur af Kína. Og til að einangrast ekki frá Vesturlöndum er mikilvægt fyrir Kína að vera í tengslum við Rússland. Kínverjar hafa reynt að tala fyrir friði í Úkraínu en líklega hentar þeim best að stríðið standi sem lengst, segir Helgi Steinar Gunnlaugsson sérfræðingur í málefnum Kína en Hallgrímur Indriðason ræddi við hann og fjallar um stöðu Kína og Xi forseta. Á valdatíma sínum hefur Xi hert tökin heima fyrir en heimsóknin til Rússlands í vikunni bendir til að hann ætli að láta enn frekar að sér kveða á alþjóðavettvangi. Í síðari hluta þáttarins ætlum við að skoða hvernig Sádar nýta olíuauðinn en sádí-arabíska ríkisolíufyrirtækið Aramco skilaði methagnaði í fyrra, sem var jafnvirði 22.500 milljarða íslenskra króna. Það er næstum helmingi meiri hagnaður en í fyrra og hefur aldrei verið meiri. Og eitt af því sem Sádar áforma að reisa er framtíðarborg, 170 kílómetra löng samfelld lína háhýsa og skýjakljúfa þar sem verða engar götur og engir bílar en alls um níu milljónir íbúa. Sunna Valgerðardóttir leit á framtíðaráform olíuþjóðarinnar miklu og ræddi við arkitekt með brennandi áhuga á borgarskipulagi, um línuborgina í eyðimörkinni, sem hljómar eiginlega frekar eins og uppkast að vísindaskáldsögu, heldur en raunhæf áætlun um framtíðarborg þar sem allt á að ganga fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

NOW PLAYING

141| Uppgangur Kína og framtíðarborg byggð á sandi

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on March 25, 2023.

What is this episode about?

Xi Jinping varð nýlega sá fyrsti í áratugi til að vera kjörinn forseti Kína þriðja kjörtímabilið í röð. Stefna hans í utanríkismálum hefur verið að berjast gegn því sem hann hefur talið vera viðleitni Bandaríkjamanna til að halda aftur af Kína. Og...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!