145| Borgarastríð og misskilinn Dalai Lama episode artwork

EPISODE · Apr 29, 2023 · 40 MIN

145| Borgarastríð og misskilinn Dalai Lama

from Heimskviður

Í þættinum í dag eru umfjöllunarefnin tvö, annars vegar borgarastyrjaldir og hins vegar meintur misskilningur á hvað átti sér stað þegar trúarleiðtoginn Dalai Lama bað ungan dreng að sjúga á sér tunguna á dögunum. Nokkur óeining hefur ríkt síðustu misseri um framtíðarstjórnskipan eins stærsta og fjölmennasta ríkis Afríku, Súdan. Súdanar eru því vanir, enda eru valdarán og stríðsátök reglulegir viðburðir í landinu. Þó voru fáir sem spáðu því að ágreiningur tveggja herforingja í Súdan um framtíð landsins myndi þróast á versta veg. Því miður gengu svörtustu spár eftir um miðjan mánuðinn, þegar íbúar í höfuðborginni Khartoum vöknuðu við sprengjugný og skothvelli. Oddur Þórðarson fjallar um ástandið í Súdan og um borgarastyrjaldir almennt. Hver er skilgreiningin á borgarastyrjöld og hvar geysa þær í heiminum? Beiðni hins næstum níræða Dalai Lama við lítinn dreng nýverið um að sleikja á sér tunguna vöktu hörð viðbrögð víða en atvikið náðist á myndband. Þegar allt varð vitlaust, baðst hann afsökunar en sagði gagnrýnendur vera að misskilja. Þarna væri á ferðinni góðlátlegur brandari, sem vesturlöndin skilja ekki vegna menningarmunar. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem menningarlegur misskilningur er sögð ástæða gagnrýni á umdeild ummæli þessa merkilega trúarleiðtoga. Sunna Valgerðardóttir setti sig í lótusstellingar og skoðaði Dalai Lama, búddismann og það sem er sagt vera útbreiddur misskilningur almennings. Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

NOW PLAYING

145| Borgarastríð og misskilinn Dalai Lama

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on April 29, 2023.

What is this episode about?

Í þættinum í dag eru umfjöllunarefnin tvö, annars vegar borgarastyrjaldir og hins vegar meintur misskilningur á hvað átti sér stað þegar trúarleiðtoginn Dalai Lama bað ungan dreng að sjúga á sér tunguna á dögunum. Nokkur óeining hefur ríkt síðustu...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!