EPISODE · Aug 27, 2019 · 29 MIN
#15 Yngriflokkastarf í knattspyrnu
from Taktíkin · host N4
Við tókum stöðuna á yngriflokkaþjálfun í knattspyrnu í þessum þætti af Taktíkinni. Aðalbjörn Hannesson yfirþjálfari yngriflokka hjá KA Andri Hjörvar Albertsson yfirþjálfari yngriflokka hjá Þór mæta hér í settið til þess að ræða yngriflokkastarf í knattspyrnu. Auk þess mæta góðir fulltrúar frá Knattspyrnuakademíu Norðurlands í settið. „Að sjálfsögðu höfum við það hugarfar að fara inní hvern leik til að vinna hann, en þá á réttum forsendum. Ef forsendurnar eru réttar þá erum við ánægð að vinna, en við viljum miklu frekar sjá góða frammistöðu en úrslit,“ sagði Aðalbjörn Hannesson yfirþjálfari yngriflokka hjá KA í knattspyrnu meðal annars. „Þetta er alveg heljar batterí, þegar að maður talar um æfingar yngriflokka, þá eru það ekki bara þjálfarinn og iðkandinn heldur líka allt í kringum það. Foreldrarnir eru líka partur af þessu í blíðu og stríðu, starfsmenn Bogans og íþróttamannvirkjanna og sjálfboðaliðarnir, þetta tengist alltsaman og helst í hendur“ sagði Andri Hjörvar Albertsson yfirþjálfari yngriflokka hjá Þór í knattspyrnu meðal annars. „Hugsunin var að bjóða uppá auka æfingar fyrir virkilega áhugasama einstaklinga, sem vilja bæta sig. Það eru fullt af krökkum sem komast ekki inn í afreksstefnur hjá félögunum, Þór og KA, þannig að við töldum að þarna væri markaður fyrir auka æfingar,“ sagði Ólafur Torfason eigandi Knattspyrnu-Akademíu Norðurlands. Hann var mættur í settið ásamt Donna, aðalþjálfara kvennalis Þór/KA og Söndru Maríu Jessen leikmanni Þór/KA sem eru bæði þjálfarar í Akademíunni.
What this episode covers

NOW PLAYING
#15 Yngriflokkastarf í knattspyrnu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.