155| Líf í geimnum og ólíft á ferðamannastöðum episode artwork

EPISODE · Sep 23, 2023 · 40 MIN

155| Líf í geimnum og ólíft á ferðamannastöðum

from Heimskviður

Við reynum að svara erfiðum spurningum í Heimskviðum í dag, um líf á öðrum hnöttum og hvers vegna við hópumst öll á sömu örfáu ferðamannastaðina. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna - NASA - vill breyta umræðu um fljúgandi furðuhluti og færa á hærra plan. Nær vísindum og frá æsingu og samsæriskenningum. Og liður í því er einmitt að hætta að kalla þessi óþekktu fyrirbæri fljúgandi furðuhluti. NASA birti nýverið skýrslu um þessi óútskýrðu fyrirbæri, Ólöf Ragnarsdóttir kafaði ofan í hana og við spyrjum; Er sannleikurinn þarna úti. Svo fjöllum við afleiðingar massatúrisma og hvaða leiðir yfirvöld á vinsælustu ferðamannastöðunum eru að skoða til að bregðast við honum. Borgaryfirvöld í Feneyjum ætla á næsta ári að byrja að rukka ferðamenn fyrir að koma. Þar hefur íbúum fækkað hratt síðustu áratugi á meðan ferðamönnum sem koma til borgarinnar bara fjölgar. Viðkomustaðirnir eru fleiri en Feneyjar, meðal annars alpaþorpið Hallstatt. Þar búa átta hundruð manns en þangað koma stundum rúmlega tíu þúsund ferðamenn á dag yfir sumarið. Heimamenn hafa haft horn í síðu ferðamanna lengi, því þorpið er lítið og þolir illa þennan mikla áhuga og áganginn sem honum fylgir. Og þar er líka verið að grípa til aðgerða. En það þarf að finna milliveg því margir íbúar lifi á ferðaþjónustunni, og án hennar myndi harðna á dalnum í Hallstatt og í Feneyjum og fleiri vinsælum ferðamannastöðum um allan heim. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

155| Líf í geimnum og ólíft á ferðamannastöðum

0:00 40:31

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on September 23, 2023.

What is this episode about?

Við reynum að svara erfiðum spurningum í Heimskviðum í dag, um líf á öðrum hnöttum og hvers vegna við hópumst öll á sömu örfáu ferðamannastaðina. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna - NASA - vill breyta umræðu um fljúgandi furðuhluti og færa á hærra...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!