156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja episode artwork

EPISODE · Sep 30, 2023 · 40 MIN

156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja

from Heimskviður

Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Robert Fico sem hrökklaðist úr embætti fyrir fimm árum, geti núna komist aftur til valda, og jafnvel tekið með sér öfgahægriflokka í samsteypustjórn. Í kosningabaráttunni hefur Fico ítrekað tekið upp málstað Rússa gagnvart Úkraínu og margt bendir til þess að utanríkisstefna Slóvaíku gæti tekið afdrifaríkum breytingum og jafnvel rofið skarð í samstöðu aðildarríkja Evrópusambandsins gagnvart innrás Rússa í Úkraínu. Kosningabaráttan í Slóvakíu hefur einnig markast af því sem kallað hefur verið upplýsingaóreiða - hundruð netmiðla í landinu pumpa út fölskum upplýsingum, og upplognum sögum og samsæriskenningum sem til dæmis styðja málstað Rússa. Margir leiðtogar stjórnmálaflokka hafa gripið þessar sögur á lofti og blásið þær upp - ekki síst vegna þess að stór hluti kjósenda er móttækilegur. Björn Malmquist hefur verið að fylgjast með kosningabaráttunni í Slóvakíu. Í vikunni voru frumsýndir í Bretlandi nýjir þættir sem fjalla um leit af raðmorðingja á áttunda áratugnum, leit sem er ein sú tímafrekasta og dýrasta í sögu lögreglunnar í Bretlandi. Þrátt fyrir ómælda vinnu lögreglunnar hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í þessu máli, að hafa ekki tekið raðmorðingjann úr umferð fyrr. Hann var kallaður til yfirheyrslu níu sinnum á þeim fimm árum sem rannsóknin stóð yfir. Og það er ekki það eina sem lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir í þessu máli eins og við heyrum hér á eftir og rannsóknaraðferðum í Bretlandi var breytt eftir niðurstöðu skýrslu sem rannsakaði vinnubrögð lögreglu í þessu máli. Birta kynnti sér málið. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on September 30, 2023.

What is this episode about?

Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Robert Fico sem hrökklaðist úr embætti...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!