159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu episode artwork

EPISODE · Oct 21, 2023 · 41 MIN

159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

from Heimskviður

Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í sögubækurnar, ekki síst fyrir metkosningaþátttöku. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Varsjár síðustu helgi og segir okkur frá. Stjórnvöld í velflestum ríkjum Evrópu hafa sameinast, undir hatti Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins, um að styðja úkraínsk stjórnvöld og milljónir flóttafólks frá Úkraínu hafa fengið skjól í öðrum ríkjum. Innrásin hefur líka haft víðtæk áhrif á hvernig íbúar og stjórnvöld í Evrópuríkjum líta á öryggismál, Finnland lét af áratugalangri stefnu um hlutleysi og fékk aðild að NATO, og Svíþjóð er á sömu vegferð þangað. Háværar raddir innan Evrópusambandsins þrýsta nú á um bjóða fleiri þjóðum, þar á meðal Úkraínu, í þennan klúbb sem upphaflega var stofnaður til að tryggja friðsamleg samskipti þjóða sem iðulega höfðu borist á banaspjótum, síðast fyrir um áttatíu árum. Að þeim tímapunkti ætlum við að beina sjónum okkar í þættinum í dag, nánar tiltekið til Belgíu, á vetrarmánuðum ársins 1944. Okkar maður í Brussel, Björn Malmquist, fór á söguslóðir einnar stærstu einstöku orystu Bandamanna í Evrópu, sem háð var í suðurhluta Belgíu, um það leyti sem jólin voru að ganga í garð fyrir sjötíu og níu árum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

0:00 41:11

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 41 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on October 21, 2023.

What is this episode about?

Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!