16. júl - fjárhundar, Lambhagi, Fréttir, Sigga Eyrún episode artwork

EPISODE · Jul 16, 2021 · 1H 41M

16. júl - fjárhundar, Lambhagi, Fréttir, Sigga Eyrún

from Morgunútvarpið · host Snorri Gylfason

Umsjón Felix Bergsson og Drífa Viðarsdóttir Sunnudaginn 18. júlí n.k. verður Dagur íslenska fjárhundsins haldinn hátíðlegur í sjötta sinn. Eigendur íslenskra fjárhunda munu að venju koma saman í stærri og smærri hópum og njóta dagsins með ferfættum vinum sínum. Stærri viðburðir verða í Árbæjarsafni og svo er eitthvað í gangi í Skagafirðinum líka. Við heyrðum í einum skipuleggjenda Þórhildi Bjartmarz Lambhagi gróðrarstöð hefur tekið í notkun nýtt gróðurhús að Lundi í Mosfellssbæ. Húsið er 7000 fm að stærð og eitt það fullkomnasta á Norðurlöndum. Hafberg Þórisson bóndi og garðyrkjumaður, stofnaði Lambhaga árið 1979 og hefur hann hannað ný færibönd og vinnslulínu í nýju stöðinni ásamt dönsku fyrirtæki. Götubitahátið Íslands 2021 ásamt stærstu götubita keppni í heimi ? ?European Street Food Awards? fer nú fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavik nú um helgina 17-18 júlí. Á hátíðinni verður að finna alla helstu matarvagna og götubita söluaðila á Íslandi. Keppnin er haldin víðsvegar um Evrópu og mun Ísland því vera með fulltrúa í loka keppninni erlendis (þegar takmörkunum linnir erlendis) Fréttir vikunnar verða á sínum stað og að þessu sinni kom til okkar frækinn blaðamaður, Erla Gunnarsdóttir á Bændablaðinu. Enn er ótrúlega mikið í fréttum miðað við sumartíma og því margt að ræða. Það eru líkur til þess að eftirmálar EM, ástandið í Suður Afríku, fjöldagrafir í Kanada, já og fjölgun kórónuveiru smita komu við sögu auk alls hins sem nauðsynlegt var að ræða. Það verður sumargleðisprengja sem kom okkur inn í helgina því söngkonan skemmtilega Sigga Eyrún Friðriksdóttir kom með glænýjan sumarsmell í farteskinu sem hún vann með eiginmanninum Karli Olgeirssyni. Landið er að rísa hjá listamönnum og við heyrðum af framtíðarverkefnum þeirra hjóna og hvernig sumarið hefur leikið fjölskylduna sísyngjandi.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jul 16, 2021

Embed this episode

NOW PLAYING

16. júl - fjárhundar, Lambhagi, Fréttir, Sigga Eyrún

0:00 1:41:50

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Morgunútvarpið?

This episode is 1 hour and 41 minutes long.

When was this Morgunútvarpið episode published?

This episode was published on July 16, 2021.

Can I download this Morgunútvarpið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!