162| Kynferðisofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar og körfuboltastjarna episode artwork

EPISODE · Nov 11, 2023 · 40 MIN

162| Kynferðisofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar og körfuboltastjarna

from Heimskviður

Fyrir fáeinum dögum loguðu fjölmiðlar á Spáni, vegna skýrslu sem leiddi í ljós umfang kynferðisbrota kaþólsku kirkjunnar þar í landi. Þolendur kirkjunnar manna frá því um miðbik síðustu aldra skipta hundruðum þúsunda. Kaþólska kirkjan hefur um áratugaskeið varist ásökunum um að hafa leyft ofbeldinu að þrífast innan veggja hennar, jafnvel þótt stöðugt væri kvartað. Hagur gerendanna, var nær alltaf tekinn framfyrir hag þolenda. Það er ljóst af þessari skýrslu og fleiri slíkum sem gefnar hafa verið út víða um heim. Alls staðar þar sem kaþólska kirkjan er, þar virðist ofbeldi gegn börnum hafa fengið að viðgangast. En hvers vegna loðir þetta svona við þessa aldagömlu og valdamiklu stofnun? Er kirkjunni fært að gera upp við þessa dökku fortíð sína? Svo kynnumst við betur nýjustu stjörnunni í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum. Hann heitir Victor Wembanyama, er nítján ára og 2,24 metrar á hæð. Hann er hæsti leikmaðurinn í deildinni og aldrei áður komið fram leikmaður sem er svona hávaxinn og getur hreyft sig eins og hann. Victor spilar fyrir San Antonio Spurs í Texas í Bandaríkjunum og þar eru miklar væntingar gerðar til hans, en Spurs er gamalt stórveldi sem ætlar aftur að komast á toppinn eins og eftir aldamótin. En Frakkar og franska landsliðið bindur líka miklar vonir við táninginn hávaxna sem hreyfir sig eins og ballerína, því Frakkar stefna að því að breyta silfrinu sem þeir unnu á Ólympíuleikunum í Tokyo í gull á leikunum í París næsta sumar. En það er spurning hvort að of miklar væntingar séu gerðar til franska táningsins. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

162| Kynferðisofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar og körfuboltastjarna

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on November 11, 2023.

What is this episode about?

Fyrir fáeinum dögum loguðu fjölmiðlar á Spáni, vegna skýrslu sem leiddi í ljós umfang kynferðisbrota kaþólsku kirkjunnar þar í landi. Þolendur kirkjunnar manna frá því um miðbik síðustu aldra skipta hundruðum þúsunda. Kaþólska kirkjan hefur um...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!