163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar episode artwork

EPISODE · Nov 18, 2023 · 40 MIN

163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar

from Heimskviður

Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um meirihlutastjórn. Sanchez er þannig búinn að púsla saman átta flokka meirihluta og verður áfram forsætisráðherra Spánar - eftir umdeilt samkomulag við flokka aðskilnaðarsinna í Katalóníu. Það samkomulag snýst meðal annars um sakaruppgjöf fyrir þrjú til fjögur hundruð manns sem komu að atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. En hvernig lítur þetta samkomulag út, um hvað er deilt og hver er forsagan? Björn Malmquist ræddi spænsk stjórnmál við Jóhann Hlíðar Harðarson sem hefur búið á Spáni síðustu ár og Montserrat Riba Cunill, sem er yfirmaður sendinefndar Katalóníu fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslöndin. Þann 22.nóvember verða 60 ár liðin frá því að John F. Kennedy, þá forseti Bandaríkjanna, var skotinn til bana í Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði fjölluðu flestir stærstu bandarísku fjölmiðlanna um nýja bók leyniþjónustumanns sem var á staðnum þegar Bandaríkjaforsetinn var myrtur. Hann ákvað að gefa út endurminningar sínar sex áratugum eftir atburðinn, en frásögnin hefur enn og aftur þyrlað upp umræðu og kenningum um hver eða hverjir voru að verki þennan örlagaríka dag í Dallas. En af hverju er enn verið að skrifa fréttir um sannarlega sviplegt andlát Kennedys? Alls konar kenningar og samsæriskenningar hafa í gegnum tíðina verið viðloðandi umfjöllun um málið, sem sextíu árum síðar virðist enn tilefni til að fjalla um. Og það gerir Birta Björnsdóttir í þættinum með aðstoð Magnúsar Sveins Helgasonar, sagnfræðings og sérfræðings í bandarískri sögu. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on November 18, 2023.

What is this episode about?

Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um meirihlutastjórn. Sanchez er þannig búinn að púsla saman átta...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!