164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi. episode artwork

EPISODE · Nov 25, 2023 · 43 MIN

164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi.

from Heimskviður

Svíar vonast til að glæpahrina haustsins sé á enda. Dregið hefur úr skot- og sprengjuárásum nærri sænsku höfuðborginni frá því mest var í september og október. Aðferðir glæpagengjanna sænsku og árásir eru óvenju hrottalegar. Börn og ungmenni eru fengin til að fremja voðaverkin og æðstu kónarnir hundelta hver annan um alla Evrópu eins og í mafíumyndum eða glæpasögum frá Hollywood. Sænsk yfirvöld eiga erfitt með að bregðast við og stjórnmálamenn að koma sér saman um leiðir. En hvers vegna er svona komið fyrir fyrirmyndarríkinu Svíþjóð? Hvernig gengur yfirvöldum að bregðast við og hvers vegna gerist þetta núna? Sváfu yfirvöld og Svíar á verðinum eða eru evrópsk glæpa- og eiturlyfjagengi að styrkjast og orðin ófeimnari við að heyja undirheimastríð sín fyrir augum almennings. Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims og mörg af efnuðustu löndum heims keppast við að koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Það er ekki hægt að fullyrða eitt eða neitt varðandi Indland því þar er hægt að finna allt það besta og um leið það versta í einu og sama ríkinu. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær að blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi.

0:00 43:04

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 43 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on November 25, 2023.

What is this episode about?

Svíar vonast til að glæpahrina haustsins sé á enda. Dregið hefur úr skot- og sprengjuárásum nærri sænsku höfuðborginni frá því mest var í september og október. Aðferðir glæpagengjanna sænsku og árásir eru óvenju hrottalegar. Börn og ungmenni eru...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!