165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum episode artwork

EPISODE · Dec 2, 2023 · 40 MIN

165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum

from Heimskviður

Ein helsta sérstaða fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn er gatan Pusherstræti, þar sem lengi fór fram sala á hassi fyrir opnum tjöldum án verulegra afskipta yfirvalda. Undanfarin ár hafa yfirvöld haft sífellt meiri afskipti af Pusherstræti og nú bendir allt til þess að þessi kannbissala hætti alfarið. Hallgrímur Indriðason skoðar hvað skýrir þessa breytingu og hvaða áhrif hún hefur á þróun og tilvist fríríkisins. Eins og staðan er núna er líklegast að tvö afar kunnugleg nöfn standi á kjörseðli Bandaríkjamanna á næsta ári þegar velja á nýjan forseta.En nýr verður forsetinn kannski ekki því flest bendir til þess að þeir Joe Biden og Donald Trump berjist aftur um búsetu í Hvíta húsinu næstu fjögur árin. En hvernig má það vera að í þessu fjölmenna og stóra landi standi valið aftur á milli núverandi forsetans, sem er nú þegar orðinn sá elsti til að gegna embættinu og þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum vilja ekki að bjóði sig aftur fram. Hinn valkosturinn er svo fyrrum forsetinn sem hefur verið í fullri vinnu síðan hann lét af embætti að svara fyrir ýmsar sakir í dómssölum. Eða eru þeir tveir kannski bara best til þess fallnir að stýra landinu? Birta og Bjarni Pétur spá í spilin nú þegar ár er til kosninga þar vestra. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on December 2, 2023.

What is this episode about?

Ein helsta sérstaða fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn er gatan Pusherstræti, þar sem lengi fór fram sala á hassi fyrir opnum tjöldum án verulegra afskipta yfirvalda. Undanfarin ár hafa yfirvöld haft sífellt meiri afskipti af Pusherstræti og nú...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!