166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum episode artwork

EPISODE · Dec 9, 2023 · 40 MIN

166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum

from Heimskviður

Heimskviður hefja leika í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Dubai þar sem COP28 stendur nú sem hæst. Og hún á að verða ráðstefna aðgerða, svo að þau markmið sem sett hafa verið í loftslagsmálum síðustu ár náist. En er það yfir höfuð hægt? Erum við ef til vill orðin of sein að grípa í taumana? Þau sem eru við samningaborðið í Dubai telja að svo sé ekki. Og eru reyndar mörg hver á því að lokasamþykktin gæti orðið söguleg, takist að koma inn ákvæði um framtíð jarðefnaeldsneytis - olíu og gass. Þar til fyrir aðeins örfáaum árum þögðu samningamenn þunnu hljóði á COP-ráðstefnum um áhrif jarðefnaeldsneytis. En er hægt að taka nokkuð mark á því sem þarna gerist? Loftslagsráðstefna í olíuríkinu Sameinuðu arabísku furstadæmunum hljómar eins og grín. Mörgum er reyndar ekki hlátur í huga og segja grafalvarlegt að svo mikilvæg ráðstefna sé haldin á viðlíka stað. Svo ekki sé nú minnst á manninn sem fer fyrir öllu klabbinu: Soldán sem gegnir framkvæmdastjórastöðu í ríkisolíufyrirtæki Abu Dhabi. Gagnaleki skömmu fyrir ráðstefnuna þótti sýna að gestgjafarnir hefðu aðrar meiningar með gestgjafahlutverkinu en að berjast gegn loftslagsvánni. Oddur Þórðarson ætlar með okkur að samningaborðinu í Dubai. Svo hugum við að jólahaldi í Úkraínu. Það hefur eðli málsins samkvæmt ótalmargt breyst í Úkraínu eftir innrás Rússa og þar á meðal jólin. Úkraínumenn vilja losa sig við allar hefðir sem tengjast Rússlandi og því verða jólin í ár og framvegis haldin 25. desember en ekki 7. janúar líkt og tíðkast í Rússlandi og hafði lengi tíðkast í Úkraínu. Dagný Hulda Erlendsdóttir kynnti sér málin og ræddi við Úkraínumenn í Kyiv og hér á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta BJörnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

NOW PLAYING

166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on December 9, 2023.

What is this episode about?

Heimskviður hefja leika í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Dubai þar sem COP28 stendur nú sem hæst. Og hún á að verða ráðstefna aðgerða, svo að þau markmið sem sett hafa verið í loftslagsmálum síðustu ár náist. En er það yfir höfuð hægt? Erum við...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!