#17 Jóladagatal Jóa, KA TV og Davíð í Heilsuþjálfun

EPISODE · Aug 27, 2019 · 28 MIN

#17 Jóladagatal Jóa, KA TV og Davíð í Heilsuþjálfun

from Taktíkin · host N4

Jóhann Már Kristinsson einkaþjálfari á Dalvík, Ágúst Stefánsson hjá KA TV og Davíð Kristinsson hjá Heilsuþjálfun eru gestir Skúla Braga að þessu sinni. Jóladagatal Jóa miðar að því að stuðla að hreyfingu á hverjum degi fram að jólum. „Þá fer maður með betri samvisku inní janúar,“ sagði Jóhann Már Kristinsson einkaþjálfari á Dalvík og bætti síðan við „Þá ertu kominn af stað og þarft ekki að byrja alveg á núllpunkti 1. janúar og búinn að éta yfir þig.“ „Við erum að fá gríðarlegt hrós, bæði frá KA mönnum og síðan stuðningsmönnum annarra liða, hvað það sé gaman að fylgjast með KA TV,“ sagði Ágúst Stefánsson markaðs- og viðburðastjóri hjá KA. Hér ræðir Ágúst við Skúla um þann gríðarlega uppgang sem hefur verið í allri umfjöllun og útsendingu frá leikjum hjá félaginu síðustu ár. „Það sem við þurfum að hafa hugfast, hvort sem það er í jólösinni, eða páskaösinni eða sumarfríinu er að við þurfum alltaf að hreyfa okkur, því heilsan fer ekkert í sumarfrí eða jólafrí. Síðan þurfum við alltaf að borða þessar föstu máltíðir, morgunmat hádegismat, millimál og kvöldmat, um leið og við förum að detta útúr þeirri rútínu þá fara vandamálin að vinda uppá sig,“ sagði Davíð Kristinsson m.a. í þættinum. „Þetta er eins og bankareikningur, það er ákveðið sem að þú getur tekið út, alveg eins og með heilsuna en við þurfum að leggja inn líka.“

NOW PLAYING

#17 Jóladagatal Jóa, KA TV og Davíð í Heilsuþjálfun

0:00 28:43

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

URL copied to clipboard!