171 - Glæpagengi í Mexíkó og Ingebrigtsen fjölskyldan episode artwork

EPISODE · Feb 10, 2024 · 37 MIN

171 - Glæpagengi í Mexíkó og Ingebrigtsen fjölskyldan

from Heimskviður

Hvað gerir móðir þegar dóttur hennar er rænt og hún drepin af mönnum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum? Vitandi af gjörspilltu og um margt lömuðu stjórnkerfi heimalands síns ákvað hin mexíkóska Miriam Rodríguez að taka málin í sínar hendur og hefna dóttur sinnar. Saga hennar er sögð í nýlegri bók eftir Azam Ahmed, blaðamann á New York Times. Við ræðum við Azam í Heimskviðum í dag en í bókinni er einnig sagt frá uppgangi og miklum áhrifum glæpagengja í Mexíkó. Þó einhver árangur hafi náðst í að draga úr áhrifum þeirra eru skipulögð glæpasamtök fimmti stærsti atvinnurekandinn í Mexíkó. Um 175 þúsund eru talin starfa innan þeirra vébanda. Svo fjöllum við um sögu einnar þekktustu fjölskyldu Noregs. Sennilega þeirrar þekktustu fyrir utan norsku konungsfjölskylduna. Það er Ingibrigtsen fjölskyldan en í henni eru þrír af heimsins bestu hlaupurum og þeir sökuðu á dögunum föður sinn, sem hefur þjálfað þá frá barnæsku, um að beita sig andlegu og líkamlegu ofbeldi frá því þeir voru smástrákar. Lögreglurannsókn stendur nú yfir og þetta hefur klofið fjölskylduna sem norska þjóðin hefur fylgt síðustu ár í sjónvarpsþáttunum Team Ingebrigtsen. Yngsti bróðirinn, Jacob, er einn besti hlaupari sem Norðmenn hafa alið og hann ætlar að freista þess í París í sumar að verja ólympíugullið sem hann náði á leikunum í Tokyo 2021, en það gæti reynst honum erfitt án þjálfarans og pabba síns sér við hlið.

NOW PLAYING

171 - Glæpagengi í Mexíkó og Ingebrigtsen fjölskyldan

0:00 37:49

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 37 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on February 10, 2024.

What is this episode about?

Hvað gerir móðir þegar dóttur hennar er rænt og hún drepin af mönnum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum? Vitandi af gjörspilltu og um margt lömuðu stjórnkerfi heimalands síns ákvað hin mexíkóska Miriam Rodríguez að taka málin í sínar hendur og...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!