176 - Fólksfækkun í Japan og sprengjuleit í Úkraínu episode artwork

EPISODE · Mar 16, 2024 · 40 MIN

176 - Fólksfækkun í Japan og sprengjuleit í Úkraínu

from Heimskviður

Fólksfækkun í Japan er mun hraðari en gert var ráð fyrir og hefur mikil áhrif á samfélagið. Tölur um fjölda barna sem fæddust í Japan í fyrra voru gefnar út á dögunum og urðu víða fréttaefni. Mörgum var brugðið því fólksfækkunin þar í landi hefur orðið hraðari en spár gerðu ráð fyrir. Árið 1983 fæddist ein og hálf milljón barna í Japan. Í fyrra voru þau helmingi færri. Afleiðingar fólksfækkunarinnar eru margar. Til dæmis hefur fjölda grunnskóla verið lokað því nemendum fækkar hratt. Dagný Hulda Erlendsdóttir kynnti sér þetta og ræddi við sendiherra Japans á Íslandi og við ritstjóra The Japan Times. Þegar byssurnar þagna í Úkraínu, hvenær sem af því verður, bíður risavaxið og áralangt verkefni Úkraínumanna; að leita að og eyða sprengikúlum, jarðsprengjum, sprengigildrum og leyfum af þessum hergögnum sem fallið hafa á landið, eða verið komið þar fyrir, síðan allsherjarinnrás Rússa hófst fyrir rúmum tveimur árum. 150.000 ferkílómetrar lands eru talin vera mögulega "menguð" í þessum skilningi - fjórðungur af öllu landi innan landamæra Úkraínu. En á sama tíma og barist er í austur- og suðurhluta landsins, er vinna við sprengjuleit og sprengjueyðingu þegar hafin - alþjóðasamfélagið hefur lagt til fjármagn, tækjabúnað og þjálfun. Íslenskir sprengjusérfræðingar hafa einmitt verið að kenna úkraínskum hermönnum þessa hættulegu starfsgrein á námskeiðum í Litáen. Við fjölluðum um undirbúninginn í Heimskviðum fyrir hálfu öðru ári en núna er komin tólf mánaða reynsla á þetta verkefni. Björn Malmquist fer yfir þann árangur sem hefur náðst og hvernig þetta flókna verkefni gengur.

NOW PLAYING

176 - Fólksfækkun í Japan og sprengjuleit í Úkraínu

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on March 16, 2024.

What is this episode about?

Fólksfækkun í Japan er mun hraðari en gert var ráð fyrir og hefur mikil áhrif á samfélagið. Tölur um fjölda barna sem fæddust í Japan í fyrra voru gefnar út á dögunum og urðu víða fréttaefni. Mörgum var brugðið því fólksfækkunin þar í landi hefur...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!