187 - Draumar og rússneska rétttrúnaðarkirkjan episode artwork

EPISODE · Jun 8, 2024 · 40 MIN

187 - Draumar og rússneska rétttrúnaðarkirkjan

from Heimskviður

Draumar og prestar verða í forgrunni í Heimskviðum í dag. Við ætlum fyrst að skyggnast á bak við kirkjutjöldin í Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Æðsti leiðtogi hennar í Moskvu, Kirill patríarki, hefur stutt allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu og sumir halda því fram að kirkjan sé í raun hluti af áróðursmaskínu stjórnvalda. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við úkraínskan prest sem á árum áður var ráðgjafi Kirils. Presturinn hefur gagnrýnt hernað Rússlands harðlega og var gert að mæta fyrir sérstakan kirkjudómstól í Rússlandi vegna þess. Vegna ótta um líf sitt ákvað hann að mæta ekki. Svo eru það draumarnir og viðleitni okkar flestra við að láta þá rætast. Það gerði Larry Walters árið 1982 þegar hann festi 42 helíumblöðrur í garðstólinn sinn og sveif upp í 16 þúsund feta hæð. Hann hafði dreymt um að fljúga síðan hann var strákur og vildi helst fljúga orrustuflugvélum en fékk það ekki því hann var ekki með nógu góða sjón. Draumurinn rættist með blöðrunum en hann flaug miklu hærra og miklu lengur en hann gerði ráð fyrir og varð landsfrægur í Bandaríkjunum á einni nóttu. Draumar Jack Godfrey rættust líka. Hann samdi söngleik um Larry og flugferðina hans sem nú er sýndur í Manchester á Englandi. Söngleikurinn heitir 42 balloons og við í Heimskviðum ræddum við Jack um Larry Walters, líf hans og draumana okkur allra, sem við megum ekki gefast upp á.

NOW PLAYING

187 - Draumar og rússneska rétttrúnaðarkirkjan

0:00 40:39

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on June 8, 2024.

What is this episode about?

Draumar og prestar verða í forgrunni í Heimskviðum í dag. Við ætlum fyrst að skyggnast á bak við kirkjutjöldin í Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Æðsti leiðtogi hennar í Moskvu, Kirill patríarki, hefur stutt allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!