190 - Svöl sumarfrí, kappræður og kynferðisbrot í Frakklandi episode artwork

EPISODE · Sep 14, 2024 · 40 MIN

190 - Svöl sumarfrí, kappræður og kynferðisbrot í Frakklandi

from Heimskviður

Eitt óhugnarlegasta kynferðisbrotamál síðari tíma er nú fyrir dómi í Frakklandi. Dominique Pelicot er þar á sakamannabekknum en hann hefur játað að hafa síðastliðinn áratuginn byrlað eiginkonu sinni til 40 ára og boðið fjölda manns að nauðga henni. Ofbeldtið tók hann upp á myndbönd og vistaði samviskusamlega í tölvunni sinni með nöfnum gerenda og dagsetningu verknaðar. 83 gerendur eru þarna skráðir, flestir menn sem bjuggu í sama þorpi og hjónin, nágrannar þeirra og fleiri. Flest velta líklega fyrir sér hvernig þetta geti gerst, það er að svo stór hópur í nærumhverfi konunnar taki þátt í svo skipulögðu ofbeldi. Við reynum að leita svara við því. Svo hugum við að kappræðunum sem fóru fram fyrr í vikunni, rýnum aðeins í orðanotkunina. Hvaða orð notuðu Donald Trump og Kamala Harris oftast? Hvernir beittu þau röddinni? Þá heyrum við í vara-utanríkisráðherra Bandaríkjunum, Kurt Campbell, hvernig honum lítist á komandi kosningar. Það eru tískubylgjur í ferðamennsku eins og mörgu öðru sem við tökum okkur fyrir hendur. Ein af þeim nýjustu kemur hins vegar ekki til af góðu. Það er það sem á ensku hefur verið kallað "coolcation" sem á íslensku gæti kallast kælifrí; að velja milt, eða jafnvel kalt loftslag á norðlægum slóðum, í staðinn fyrir að leita suður á bóginn í hita og sól. Þessi tískubylgja hefur verið nokkuð áberandi og var reyndar í fyrra valin ein af þeim markverðari í áhrifamiklu tímariti sem fjallar um ferðamennsku. Við skoðum svöl sumarfrí og framtíð þeirra í þættinum.

NOW PLAYING

190 - Svöl sumarfrí, kappræður og kynferðisbrot í Frakklandi

0:00 40:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 40 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on September 14, 2024.

What is this episode about?

Eitt óhugnarlegasta kynferðisbrotamál síðari tíma er nú fyrir dómi í Frakklandi. Dominique Pelicot er þar á sakamannabekknum en hann hefur játað að hafa síðastliðinn áratuginn byrlað eiginkonu sinni til 40 ára og boðið fjölda manns að nauðga henni....

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!