192 - Líbanon og stríð Rússlands eða Pútíns episode artwork

EPISODE · Sep 28, 2024 · 44 MIN

192 - Líbanon og stríð Rússlands eða Pútíns

from Heimskviður

Heimskviður verða helgaðar stríðsátökum í dag. Við fjöllum um átök Ísraels og Hezbollah sem stigmagnast með hverjum deginum. Ísraelsher gerði árásir á höfuðstöðvar Hezbollah í Beirút í gær og segjast undirbúa innrás. Hezbollah ætlar að svara þessum árásum og ljóst að átökin eiga eftir að harðna en óvíst hvort allsherjarstríð brjótist út. Íbúar eru mjög áhyggjufullir og farnir að undirbúa það að flýja komi til átaka. Við ræðum við Veru Knútsdóttir, sérfræðing í öryggis og varnarmálum, og hennar mann Seerwan Shawqi, en bæði hafa bæði búið og starfað í Beirút í Líbanon. Seerwan segir að Hezbollah muni berjast áfram því baráttan sé ástæðan fyrir þeirra tilveru. Þeir hafi undirbúið sig vel og bíði eftir innrás Ísraelshers, þá svari þeir af fullum krafti. Rúm tvö og hálft ár eru liðin síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás í Úkraínu. Það er viðbúið að margar bækur verði gefnar út um innrásina, enda margir sem lýsa stöðunni í Úkraínu sem mestu hörmungum í Evrópu frá seinni heimsstyrjöld. Rússneski sagnfræðiprófessorinn Sergei Medvedev er þegar búinn að senda frá sér bók sem á ensku kallast A War Made in Russia. Þar skoðar hann aðdraganda innrásarinnar með augum sagnfræðinnar. Hann veltir upp þeirri spurningu hvort allsherjarinnrás í Úkraínu sé stríð Pútíns - eða hvort réttara sé að kalla hana stríð Rússlands. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við sagnfræðinginn á dögunum um þessar stóru spurningar, um kalasnikoff-riffla, sem hann segir táknmynd Rússlands samtímans - og um hvernig það er að vera útlægur - en í heimalandinu er Medvedev skilgreindur sem erlendur erindreki. Hann yfirgaf Rússland í mars 2022 og sér ekki fyrir sér að snúa aftur.

NOW PLAYING

192 - Líbanon og stríð Rússlands eða Pútíns

0:00 44:38

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 44 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on September 28, 2024.

What is this episode about?

Heimskviður verða helgaðar stríðsátökum í dag. Við fjöllum um átök Ísraels og Hezbollah sem stigmagnast með hverjum deginum. Ísraelsher gerði árásir á höfuðstöðvar Hezbollah í Beirút í gær og segjast undirbúa innrás. Hezbollah ætlar að svara þessum...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!