212 - Ris og fall Diddy og hörmungar á Gaza episode artwork

EPISODE · Mar 15, 2025 · 43 MIN

212 - Ris og fall Diddy og hörmungar á Gaza

from Heimskviður

Tónlistarmaðurinn og viðskiptamógúllinn P. Diddy á yfir höfðu sér rúmlega fjörtíu ákærur vegna kynferðisofbeldis, mansals, nauðgana og annars grófs ofbeldis. Réttarhöldin hefjast í byrjun maí. Stór og öflug skaðabótafyrirtæki hafa safnað frásögnum af ofbeldinu úr ýmsum áttum og fengu um 26.000 ábendingar um ofbeldi, flestar í gegnum samfélagsmiðla. Nokkur hundruð þeirra eru metnar trúðverðugar og um fjörtíu mál hafa verið höfðuð. Hóp- eða fjöldamálsóknir af þessu tagi eru algengar í Bandaríkjunum. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir bæði kosti og galla við málsóknir af slíku tagi. Helstu ókostirnir séu þeir að þær séu mjög timafrekar, sem komi bæði niður á þolendum og gerendum, og að fyrirtækin séu gjörn á að safna fleiri sögum af ofbeldi í hagnaðarskyni. Samtökin Læknar án landamæra hafa lýst Gaza sem heimsins hættulegasta stað fyrir börn. Ísraelsher hefur síðan haustið 2023 drepið þar tugi þúsunda, börn og fullorðna - og sært enn fleiri. Tíu börn á dag, að meðaltali, misstu annan fótinn eða báða, samkvæmt samantekt frá Barnaheillum 7. janúar í fyrra, þegar þrír mánuðir voru frá því Ísraelar hófu árásir. Margir læknar segjast aldrei hafa upplifað neitt þessu líkt áður. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum eru hlutfallslega hvergi í heiminum fleiri börn sem hafa misst útlimi. Eitt þessara barna, Asil Al-Massri, er í dag átján ára og býr á Íslandi. Hún sagði Dagnýju Huldu Erlendsdóttur sögu sína.

NOW PLAYING

212 - Ris og fall Diddy og hörmungar á Gaza

0:00 43:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 43 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on March 15, 2025.

What is this episode about?

Tónlistarmaðurinn og viðskiptamógúllinn P. Diddy á yfir höfðu sér rúmlega fjörtíu ákærur vegna kynferðisofbeldis, mansals, nauðgana og annars grófs ofbeldis. Réttarhöldin hefjast í byrjun maí. Stór og öflug skaðabótafyrirtæki hafa safnað frásögnum...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!