214 - Einangrun á Suðurskautinu, pólitískt írskt hip hop og viðburðaríkir dagar á Grænlandi episode artwork

EPISODE · Mar 29, 2025 · 45 MIN

214 - Einangrun á Suðurskautinu, pólitískt írskt hip hop og viðburðaríkir dagar á Grænlandi

from Heimskviður

Við ætlum heimskautanna á milli í þættinum í dag og einnig að huga að írska tungumálinu. Í síðustu viku bárust fréttir af ásökunum gegn manni sem er í rannsóknarleiðangri þar suðurfrá ásamt öðrum. Hann er sakaður um kynferðisofbeldi og líflátshótanir gegn félögum sínum í rannsóknarleiðangrinum, sem á að standa fram í desember. Okkur langaði að skyggnast betur inn í þennan heim og skoða betur hvaða áhrif algjör einangrun í svona langan tíma getur haft á fólk. Bjarni Pétur ræddi við Ólaf Ingólfsson sem hefur farið í fimm leiðangra á Suðurskautslandið og hann segir að það verði allir pínulítið skrítnir við þessar aðstæður. Getur hip hop bjargað írska tungumálinu? Það er góð spurning og kannski er tríóið Kneecap frá Norður-Írlandi með svarið við því. Írska er að minnsta kosti að ganga í endurnýjun lífdaga í rappi hljómsveitarinnar. Hljómsveitin hefur sagt markmið sitt vera að gera tungumálið aðgengilegra fyrir ungt fólk. En hvað er það við þessa hljómsveit sem hefur vakið nýjan áhuga á tungumálinu? Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi meðal annars við Áine Mangaong tónlistarfræðing um hljómsveitina, af hverju hún er einstök og írska tungumálið. Þá heyrum við í Hallgrími Indriðasyni, fréttamanni, sem hefur dvalið á Grænlandi síðust daga. Það hafa verið viðburðaríkir dagar þar, í gær kynnti ný ríkisstjórn samstarfssáttmála sinn og varaforseti Bandaríkjanna, J.D. Vance, sótti landið heim.

NOW PLAYING

214 - Einangrun á Suðurskautinu, pólitískt írskt hip hop og viðburðaríkir dagar á Grænlandi

0:00 45:06

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 45 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on March 29, 2025.

What is this episode about?

Við ætlum heimskautanna á milli í þættinum í dag og einnig að huga að írska tungumálinu. Í síðustu viku bárust fréttir af ásökunum gegn manni sem er í rannsóknarleiðangri þar suðurfrá ásamt öðrum. Hann er sakaður um kynferðisofbeldi og...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!