216 - Börnin á Gaza og byltingin í Súdan episode artwork

EPISODE · Apr 12, 2025 · 45 MIN

216 - Börnin á Gaza og byltingin í Súdan

from Heimskviður

Mannúðarvandi er hvergi meiri en á Gaza og í Súdan. Við förum þangað í Heimskviðum í dag. Helmingur þeirra rúmlega tveggja milljóna sem hafast við á Gaza eru börn. Fleiri en 50 þúsund hafa verið drepin á þeim átján mánuðum sem hafa liðið frá dagsetningunni örlagaríku, 7.október 2023. Greinendur og mannréttindasamtök telja reyndar að mun fleiri séu látin, líklega séu þúsundir líka undir rústunum sem finna má um alla Gaza-ströndina. Fleiri en 15 þúsund hinna látnu eru börn og Gaza er því líklega hættulegasti staður jarðar fyrir börn. Svo förum við til Kartúm, höfuðborgar Súdans, sem var um mánaðamótin frelsuð úr höndum hersveita RSF sem náðu þar yfirráðum 2023. Hershöfðinginn Abdel Fattah al-Burhan hefur síðustu daga farið sigri hrósandi um borgina og sagt að núna sé hún loksins frjáls. Og íbúum sem hafa síðustu mánuði og misseri búið við ofríki og umsátur RSF-sveitanna er létt. En það breytist líklega ekki mikið fyrr en valdasjúkir hershöfðingjar gefa eftir völdin og skref í átt að lýðræði verða tekin. Annars verður bara meira af einræði, ofbeldi og kúgun.

NOW PLAYING

216 - Börnin á Gaza og byltingin í Súdan

0:00 45:56

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 45 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on April 12, 2025.

What is this episode about?

Mannúðarvandi er hvergi meiri en á Gaza og í Súdan. Við förum þangað í Heimskviðum í dag. Helmingur þeirra rúmlega tveggja milljóna sem hafast við á Gaza eru börn. Fleiri en 50 þúsund hafa verið drepin á þeim átján mánuðum sem hafa liðið frá...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!