EPISODE · Jul 22, 2021 · 1H 45M
22. júlí - Olympíuleikar, málfar, gönguferðir, faraldur og Sagnaland
from Morgunútvarpið · host Snorri Gylfason
Olympíuleikarnir í Tókýó verða settir á föstudag, en keppni er þó hafin í einhverjum greinum t.d. knattspyrnu kvenna. Okkar menn eru komnir á staðinn og við slógum á þráðinn til Japans og heyrðum í Þorkeli Gunnar Sigurbjörnssyni. Við fengum málfarshorn þessa vikuna en Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur leit við í létt spjall og þar voru mállýskur á dagskrá. Það er fátt betra en góð gönguferð um okkar fallega land til að kynnast náttúru, sögu, dýralífi og gróðurfari. Góð leiðsögn og frábær félagsskapur eykur svo enn frekar á jákvæða upplifun, en Ferðafélag Íslands býður upp á svokallaðar sumarleyfisferðir. Sífellt fleiri fara í sumarleyfisferð á hverju sumri og sumir jafnvel tvær eða þrjár. Páll Ásgeir Ásgeirsson hjá Ferðafélaginu kom til okkar en hann er búinn að fara þrjá ferðir á Hornstrandir í sumar og eina ferð hinn svokallaða Laugaveg og á þrjár eftir. Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, skrifaði grein á Vísi í gær undir heitinu Hvernig gerum við nú í nýrri bylgju? þar sem hann veltir vöngum yfir næstu skrefum í baráttunni við Covid-19. Hann segir ljóst að við þurfum að færa fórnir og að umræðan hérlendis hafi mikið til snúist um það hvenær við getum aftur farið að haga okkur eins og við viljum og fáum athafnafrelsi okkar til baka, alveg eins og það var. Ragnar Þór kom til okkar og ræddi þetta ásamt skólastarfinu, en nú er stutt í að öll leikskóla- og grunnskólabörn landsins, sem eru óbólusett, snúi aftur í skólana. Halldór Guðmundsson rithöfundur hefur skrifað bókina Sagnalandið sem er nýútkomin. Þar fer höfundur með lesendur í ferð um landið og skoðar staði sem um hafa spunnist sögur, sem svo aftur hafa orðið kveikja ljóða eða skáldsagna. Komið er við á 30 stöðum í bókinni og við hringdum í Halldór sem var einmitt staddur í Suðursveit og lumaði auðvitað á sögum þaðan. Tónlist: Eivör Pálsdóttir - Við gengum tvö. John Grant - Marz. Police - Every breath you take. Bubbi Morthens - Ennþá er tími. Stefán Hilmarsson - Heimur allur hlær. Lay Low - By and by. Joy Crookes - Feet dont fail me now. Pet Shop Boys - Always on my mind. Aron Can - Flýg upp.
Embed this episode
NOW PLAYING
22. júlí - Olympíuleikar, málfar, gönguferðir, faraldur og Sagnaland
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.