220 -  Bakslag í málefnum trans fólks og kafbátastrandið í skerjagarðinum episode artwork

EPISODE · May 10, 2025 · 45 MIN

220 - Bakslag í málefnum trans fólks og kafbátastrandið í skerjagarðinum

from Heimskviður

Hvað skýrir þá afturför sem hefur orðið undanfarið þegar kemur að réttindum transfólks og hvers vegna er það að gerast núna? Við ætlum að fjalla um réttindi þessa hóps og úr hvaða jarðvegi þetta bakslag sprettur. Hverjir standa í stafni þegar sífellt háværari hatursorðræða í garð trans fólks verður vart á samfélagmiðlum? Og af hverju er verið að setja lög um íþróttaiðkun transfólks? Við fáum til liðs við okkur þrjár konur til að sýna í stöðuna og baksöguna og leita lausna. Í seinni hlutanum ætlar Dagný Hulda Erlendsdóttir að segja okkur skemmtilega sögu. Karlskróna í Svíþjóð var miðdepill heimspressunnar um tíu daga skeið í október 1981. Þá hafði sovéskur kafbátur, sem talið er að hafi borið kjarnorkuvopn, strandað í skerjagarðinum. Þetta var í miðju kalda stríðinu og hefði vel geta orðið til þess að stríð hefði brotist úr milli Svíþjóðar og Sovétríkjanna. Nýlega kom út sænsk sjónvarpsþáttaröð þar sem fjallað er um þetta. Ýmsar kenningar voru um það hvers vegna kafbáturinn strandaði, sú algengasta að hann hafi verið við njósnir. Sjálfir sögðu reyndar Sovétmenn að siglingatækin hafi bilað. Þá voru einhverjir sem töldu að áhöfnin hefði verið drukkin og þá kenningu halda framleiðendur þáttanna, sem heita Whiskey on the Rocks, sig við.

NOW PLAYING

220 - Bakslag í málefnum trans fólks og kafbátastrandið í skerjagarðinum

0:00 45:08

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 45 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on May 10, 2025.

What is this episode about?

Hvað skýrir þá afturför sem hefur orðið undanfarið þegar kemur að réttindum transfólks og hvers vegna er það að gerast núna? Við ætlum að fjalla um réttindi þessa hóps og úr hvaða jarðvegi þetta bakslag sprettur. Hverjir standa í stafni þegar...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!