224 - Úkraínustríðið, Trump og Musk, Albanía og kafbáturinn Títan episode artwork

EPISODE · Jun 7, 2025 · 39 MIN

224 - Úkraínustríðið, Trump og Musk, Albanía og kafbáturinn Títan

from Heimskviður

Friðarviðræður í Úkraínu hafa litlu skilað síðustu vikur og ekki er útlit fyrir að árangur náist á næstunni. Við ræðum við bandaríska sagnfræðinginn Timothy Snyder í þættinum í dag. Hann segir mikilvægt að vestrænar þjóðir haldi áfram stuðningi við Úkraínu og viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Hann segir að eina leiðin að friði í Úkraínu sé að gera Rússum erfiðara fyrir að ná árangri í innrásarstríðinu. Svo ræðum við sambandsslitin sem allir eru að tala um, enda fara þau fram í beinni útsendingu svo að segja. Það eru að sjálfsögðu þeir Elon Musk og Donald Trump. Albanía þykir einna líklegast til þess að verða næsta aðildarríki Evrópusambandsins. Edi Rama forsætisráðherra er að hefja sitt fjórða kjörtímabil og getur haldið áfram með uppáhaldsverkefnið sitt - að leiða Albaníu inn í Evrópusambandið. Heimspólitíkin og öryggisástandið í Evrópu hefur gert það að verkum að áhugi Evrópusambandsins á að fjölga aðildarríkjum hefur aukist, og Albanía nýtur þess - en það eru ljón á veginum; ekki síst landlæg og djúpstæð spilling sem sett hefur mark sitt á þetta samfélag undanfarna áratugi. Í sumar eru tvö ár liðin frá því að kafbáturinn Títan féll saman á botni Atlantshafsins, með þeim afleiðingum að allir fimm farþegarnir um borð fórust. Síðan þá hafa rannsóknir staðið yfir á slysinu og spurningar vaknað um öryggi kafbátsins, stjórnarhætti fyrirtækisins sem átti hann og svo eftirlitsskyldu opinberra stofnanna.

NOW PLAYING

224 - Úkraínustríðið, Trump og Musk, Albanía og kafbáturinn Títan

0:00 39:21

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 39 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on June 7, 2025.

What is this episode about?

Friðarviðræður í Úkraínu hafa litlu skilað síðustu vikur og ekki er útlit fyrir að árangur náist á næstunni. Við ræðum við bandaríska sagnfræðinginn Timothy Snyder í þættinum í dag. Hann segir mikilvægt að vestrænar þjóðir haldi áfram stuðningi við...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!