249 - Mannaveiðar með drónum og endurkoma Anthony Kim episode artwork

EPISODE · Mar 14, 2026 · 38 MIN

249 - Mannaveiðar með drónum og endurkoma Anthony Kim

from Heimskviður

Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið. Anthony Kim vann golfmót á dögunum. Kylfinga vinna golfmót vikulega, af hverju er þetta svona merkilegt? Jú kannski vegna þess að Anthony Kim hafði ekki unnið golfmót í að verða 15 ár. Hann var með þeim bestu þegar hann var yngri, rétt rúmlega tvítugur og hann átti framtíðina fyrir sér þegar hann meiddist. Þessi meiðsli höfðu gríðarleg andleg áhrif á hann og hann leiddist svolítið inn á ranga braut í lífinu og hætti alfarið að spila golf. Eftir rúman áratug af áföllum og neyslu nær hann sér aftur á beinu brautina og byrjar aðeins að fikta við golf aftur, þá með hvatningu konu sinnar og lítillar dóttur. En hann á langt í land með að geta orðið góður á nýjan leik. En rétt eins og hann sigraði fíknina þá náði hann að yfirstíga þessa miklu hindrun, að komast aftur í fremstu röð. Þannig þetta er ekki bara saga af einhverjum golfara, heldur þroska- og batasaga einhvers sem hafði gefist upp á lífinu. Og kannski sönnun þess að það sé hægt að snúa við blaðinu, jafnvel í verstu mögulegu aðstæðum. Oddur Þórðarson segir okkur söguna alla.

NOW PLAYING

249 - Mannaveiðar með drónum og endurkoma Anthony Kim

0:00 38:10

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 38 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on March 14, 2026.

What is this episode about?

Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!