253 - Kosningar í Ungverjalandi. manntal á Indlandi og saga JFK yngri episode artwork

EPISODE · Apr 11, 2026 · 47 MIN

253 - Kosningar í Ungverjalandi. manntal á Indlandi og saga JFK yngri

from Heimskviður

Það er kjördagur í Ungverjalandi á morgun en þá fara fram einar mest spennandi kosningar í Evrópu í langan tíma. Viktor Orban, sem hefur verið við völd í 16 ár, mælist með minna fylgi samkvæmt könnunum, og Peter Magyar, sem býður sig fram gegn honum gæti orðið næsti forsætisráðherra. Við heyrum frá Birni Malmquist sem er í Búdapest. Hann segir að þar sé mikil bjartsýni fyrir sigri Peters Magyar, sem er kannski ekkert skrítið, hann mælist með meira fylgi í könnunum en meirihluti Ungverja býr í sveitum og smærri borgum og þar nýtur Orban mikillar hylli. En Magyar í borgunum. Og hann þarf að vinna stóran sigur til þess að leggja Orban og ná meirihluta í þinginu, og það er svo sem líklegt núna að hann vinni kosningarnar, en Orban hefur gert miklar breytingar á kosningakerfinu og vægi atkvæða, og það verður því að teljast ólíklegt að fleiri atkvæði dugi til þess að vinna kosningarnar og koma Orban frá. Sigurinn þarf að vera svo stór. Eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar hófst á dögunum. Nú á að telja indversku þjóðina. Þrjár milljónir starfa við framkvæmdina, þetta eru 33 spurningar sem verða lagðar fyrir rúman milljarð landsmanna. Í fyrsta sinn í heila öld er fólk einnig skráð eftir stétt í hinu mjög svo stéttskipta Indlandi. Birta kynnti sér málið. Heimsbyggðin virðist enn vera hugfangin af Kennedy-fjölskyldunni, þrátt fyrir að rúmlega sextíu ár séu síðan John F. Kennedy Bandaríkjaforseti var skotinn til bana. Til marks um áhrif Kennedy-fjölskyldunnar innan bandarískra stjórnmála má geta þess að frá 1947, þegar John F. Kennedy var fyrst kjörinn á þing, og þar til 2011 gengdi að minnsta kosti einn meðlimur Kennedy-fjölskyldunnar kjörnu embætti á alríkisstigi á ári hverju. Nú eru þættir um örlög sonar hans og nafna mikið í umræðunni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir hellti sér í sögu Kennedy-fjölskyldunnar.

NOW PLAYING

253 - Kosningar í Ungverjalandi. manntal á Indlandi og saga JFK yngri

0:00 47:18

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 47 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on April 11, 2026.

What is this episode about?

Það er kjördagur í Ungverjalandi á morgun en þá fara fram einar mest spennandi kosningar í Evrópu í langan tíma. Viktor Orban, sem hefur verið við völd í 16 ár, mælist með minna fylgi samkvæmt könnunum, og Peter Magyar, sem býður sig fram gegn honum...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!