EPISODE · Feb 26, 2021 · 1H 44M
26. feb - Dómsmál, lesblinda, málfar, fréttir vikunnar og Villi Netó
from Morgunútvarpið · host Snorri Gylfason
Hildur Leifsdóttir, lögmaður fyrirtækisins Eldum rétt, kom til okkar en fyrirtækið íhugar nú skaðabótamál gegn verkalýðsfélaginu Eflingu í framhaldi af því að dómsmáli gegn Eldum rétt var vísað frá dómi fyrr í vikunni. Í gærkvöldi sýndi RÚV heimildamynd um lesblindu. Sylvía Melsted leiðir myndina og segir frá sinni reynslu ásamt öðrum einstaklingum- hvernig skólakerfið brást, hvernig þau upplifðu sig heimsk, hvernig svokölluð hugarkort hjálpa við skilning. Við fengum leikstjórann Álfheiði Mörtu Kjartansdóttur til okkar til að ræða myndina. Anna Sigríður Þráinsdóttir kom og fjallaði um íslenskt mál. Fréttir vikunnar voru á sínum stað. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, alþingismaður, og Steinunn Camilla hjá Iceland Sync, fóru yfir það helsta. Og Hver drap Friðrik Dór, spyr leikarinn Villi Netó í nýrri íslenskri sjónvarpsþáttaseríu sem Sjónvarp Símans sýnir. Þættirnir fylgjast með Villa rannsaka meint andlát söngvarans Friðrik Dórs. Villi Netó kom til okkar. Tónlist: Stefán Hilmarsson - Líf Stevie Nicks og Don Henley - Leather and lace Of monsters and men - Crystals Hreimur - Gegnum tárin Bríet - Fimm Friðrik Dór - Hún er alveg með þetta Police - Everything she does is magic Supertramp - The Logical song
Embed this episode
NOW PLAYING
26. feb - Dómsmál, lesblinda, málfar, fréttir vikunnar og Villi Netó
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.