EPISODE · Apr 12, 2026 · 53 MIN
3.14: „Við erum samt ennþá að starfa innan feðraveldisins“ – Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis
from Karlmennskan · host Þorsteinn V. Einarsson
Þórunn Sveinbjarnardóttir er forseti Alþingis og á langan pólitískan feril að baki, þótt hún sé einungis sextug. Hún kom að stofnun Röskvu 1988, sameiningu Alþýðubandalagsins, Kvennalistans og Alþýðuflokksins í Samfylkinguna og hún var umhverfisráðherra í miðju hruninu 2007–2009. Þórunn er femínisti og hefur lengi barist fyrir kvenréttindum og mannréttindum. Þrátt fyrir reynslu af sameiningu og þátttöku í ýmsum framfaramálum þá hefur gengið á ýmsu á Alþingi og innan Samfylkingarinnar. Við ræðum pólitíska fortíð og nútíð, hægrið, rasisma, útlendingamál, femínisma, feðraveldi, peninga og flótta kanóna úr Samfylkingunni. Viðmælandi: Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis Tekið upp 10. apríl 2026. Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar
Embed this episode
NOW PLAYING
3.14: „Við erum samt ennþá að starfa innan feðraveldisins“ – Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.