Karlmennskan podcast artwork

PODCAST · society

Karlmennskan

[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

  1. 131

    3.17: Íslenzka – Iris Edda Nowenstein

    Iris Edda Nowenstein er lektor í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur á Landspítalanum. Iris er innflytjandi sem kom sex ára gömul til Íslands og ólst upp við að tala frönsku við mömmu sína og spænsku við pabba sinn. Reynsluna af því að læra íslensku sem annað mál nýtir Iris í rannsóknum sínum og telur það ekki íslenskri tungu til framdráttar að líta á fjöltyngi eða önnur tungumál sem ógn.   Við ræðum íslenskuna sem lifandi, breytilegt og pólitískt fyrirbæri, stafsetningarskömm, málfarslöggur, kynjað og kynhlutlaust tungumál, rapp og málfærnina sem það krefst, enskuáhyggjur, TikTok, innflytjendur, útilokun, inngildingu og þá furðulegu hugmynd að tungumál þurfi helst að verja með stríði og sótthreinsun. Þetta er þáttur um íslenska tungu en ekki síður um vald og viðmið. Iris varpar ljósi á hvernig við getum ræktað íslenskuna án þess að nota hana sem vopn gegn fólki.   Viðmælandi: Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni við HÍ og talmeinafræðingur á Landspítalanum.   Tekið upp í mars 2026.

  2. 130

    3.16: Ekki alltaf glimmer og Pride – Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir

    „Við sem samfélag [þurfum] að koma út úr skápnum með þetta til þess að við getum dregið úr ofbeldi í nánum hinsegin samböndum og skömminni sem því fylgir. Óttinn við bakslag er eðlilegur, en Pride er uppreisn og við látum ekki ótta stöðva okkur […]“   Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir kynjafræðingur og kennari gerði meistararannsókn um ofbeldi í nánum hinsegin samböndum. Hún segir frá rannsókn sinni, því hvernig hinsegin þolendur eru oft teknir út fyrir sviga í rannsóknum á ofbeldi og hversu flókið það getur verið að tala um ofbeldi innan jaðarsetts samfélags á tímum bakslags. Við förum meðal annars inn á þögnina, skömmina, vænta fordóma, valdatengsl innan hinsegin samfélagsins, félagslegar og heilsufarslegar afleiðingar ofbeldis og þá mýtu að hinsegin sambönd séu einhvern veginn alltaf falleg, heilnæm og laus við ofbeldi.   Viðmælandi: Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir Tekið upp 26. maí 2026

  3. 129

    3:15: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir – „Það er enginn heilsukvilli sem hrjáir bara feitt fólk“

    Tara Margrét Vilhjálmsdóttir er félagsfræðingur að mennt og hefur talað fyrir líkamsvirðingu undanfarinn áratug. Hún vill að heilbrigðisyfirvöld leggi áherslu á þyngdarhlutlausa nálgun að bættri heilsu í stað þyngdarmiðaðrar. Tara Margrét þurfti að draga sig í hlé úr opinberri umræðu vegna álags eftir ítrekaðar hótanir, niðurlægingar og viðbjóð sem virðist fylgifiskur þess að gagnrýna viðtekin viðmið. Tara Margrét rauf nýverið fjögurra ára þögn þegar hún sendi inn umsögn um þingsályktunartillögu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um aðgerðir gegn offitu. Tara Margrét segir að öll sjónarmið um þyngdarhlutlausa nálgun hafi verið virt að vettugi í þeirri tillögu. Í þessum þætti útskýrir Tara Margrét hvað þyngdarhlutlaus nálgun þýðir, hvers vegna orðræða og aðgerðir með áherslu á þyngd valda fólki skaða, hvers vegna heilsa og þyngd fara ekki endilega saman og reynslu Töru Margrétar af samskiptum við heilbrigðisyfirvöld.   Viðmælandi: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir Tekið upp: 20. mars 2026.   Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn eða vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega á karlmennskan.is/styrkja 

  4. 128

    3.14: „Við erum samt ennþá að starfa innan feðraveldisins“ – Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis

    Þórunn Sveinbjarnardóttir er forseti Alþingis og á langan pólitískan feril að baki, þótt hún sé einungis sextug. Hún kom að stofnun Röskvu 1988, sameiningu Alþýðubandalagsins, Kvennalistans og Alþýðuflokksins í Samfylkinguna og hún var umhverfisráðherra í miðju hruninu 2007–2009. Þórunn er femínisti og hefur lengi barist fyrir kvenréttindum og mannréttindum. Þrátt fyrir reynslu af sameiningu og þátttöku í ýmsum framfaramálum þá hefur gengið á ýmsu á Alþingi og innan Samfylkingarinnar. Við ræðum pólitíska fortíð og nútíð, hægrið, rasisma, útlendingamál, femínisma, feðraveldi, peninga og flótta kanóna úr Samfylkingunni.   Viðmælandi: Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis Tekið upp 10. apríl 2026.   Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar

  5. 127

    3.13 „Þessi skömm og sektarkennd“ – Börkur Reykjalín Brynjarsson

    Börkur Reykjalín Brynjarsson er verkfræðingur sem rak fjölskyldufyrirtækið en brann út, varð fyrir kulnun, greindist með ofsakvíða og þunglyndi. Í kjölfarið fór hann að prufa leiðir til að ávaxta peninginn sem varð eftir við lokun fyrirtækisins en endaði á að festast í vítahring spilarfíknar. Þögnin, skömmin, sektarkenndin og vonleysið rændi hann næstum því lífsviljanum. Börkur leitaði til Píeta samtakanna og loks í meðferð við spilafíkn. Börkur er ennþá að glíma við afleiðingar spilafíkninnar og er að vinna úr sínum málum en finnst mikilvægt að tala um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Kaldhæðnislega eða sem betur fer hefur Börkur kynnst starfi Píeta samtakanna en hann hefur skipulagt árlegt hlaup til styrktar og vitundarvakningar um mikilvægi samtakanna í rúm sex ár - löngu áður en hann sjálfur þurfti á þeim að halda. Næsta hlaup fer fram laugardaginn 11. apríl við Vífilsstaðavatn, í Hólmavík, Dalvík og Fáskrúðsfirði.   Viðmælandi: Börkur Reykjalín Brynjarsson Tekið upp 8. apríl 2026

  6. 126

    3.12: „Þögnin hefur kostað mig svo margt“ – Sara Gabríela

    „Ég vakna á endurlífgunardeild fyrir tveimur árum og eftir það langar mig að stíga út úr þessu.“ segir Sara Gabríela. Við áttum börn á sama leikskóla og höfðum nokkrum sinnum spjallað lítillega. Þegar ég rakst á Söru Gabríelu í gegnum algoriðmann á TikTok kannaðist ég við nafnið en alls ekki manneskjuna. Þessi þögla, hlédræga og feimna kona var svo róttæk, beinskeytt og hæðin að ég þekkti hana ekki.   Ég las á milli línanna að á bak við óheftu tjáninguna væri reiði yfir einhverju sem virðist fá að viðgangast óáreitt. Eitthvað sem tengist kynferðisbrotum, spiritualísku umhverfi og börnum. En ég áttaði mig ekki á því hverju Sara Gabríela var nákvæmlega að ýja að.   Þetta viðtal er rosalegt. Ég set risa TRIGGER WARNING á hlustunina því Sara talar um sjálfsvígstilraun, ítrekuð kynferðisbrot, barnaníð, morðhótanir og viðbjóð sem virðist fá að þrífast innan ákveðins kúltúrs eða költs á Íslandi. Sara Gabríela er komin með nóg af þöggun og því að vera þvinguð til að „haga sér“. Hún „trollar“ á TikTok og er að skrifa bók samhliða því sem hún hlúir að sjálfri sér og styður dóttur sína.   Viðmælandi: Sara Gabríela Tekið upp í mars 2026.  

  7. 125

    3.11: „Kirkjan hefur lært af sögunni“ – GUÐRÚN KARLS HELGUDÓTTIR Biskup Íslands

    Traust til Þjóðkirkjunnar fer stigvaxandi og jafnvel róttækustu femínistar landsins hafa trú á biskupi Íslands. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands vill vera sýnileg og gera kirkjuna að jákvæðu afli í samfélaginu. Biskupsmálið, rannsóknarskýrslan og mistök kirkjunnar koma til umræðu. Við ræðum aukna kirkjusókn ungs fólks, íhaldssemi, kynferðisofbeldi, Biblíuna, trú og mennsku. Hvers konar karlmennsku hefur kirkjan ungum strákum upp á að bjóða og hvaða arfleifð vill biskupinn Guðrún skilja eftir sig?   Viðmælandi: Guðrún Karls Helgudóttir Tekið upp í mars 2026   Bakhjarlar Karlmennskunnar styðja við framleiðslu á hlaðvarpinu. 

  8. 124

    3.10: HALLGRÍMUR HELGASON „Karlar deyja andlegum dauða upp úr fimmtugu“

    Myndlistamaðurinn og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason er á sjötugsaldri en er talinn af sumum allt of woke. Hallgrímur var á sextugsaldri þegar hann eignaðist barn með konu sinni en árinu áður hafði hann orðið afi. Við ræðum woke og histeríska umræðuhefð, „sjúkdóm“ sem herjar á karlmenn og dregur þá til andlegs dauða, pabbafa hlutverkið og rifjum upp viðbrögð menningarelítunnar þegar Hallgrímur opnaði sig um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir.   Bakhjarlar Karlmennskunnar styðja við útgáfu á hlaðvarpinu Karlmennskan. Þú getur verið einn af þeim. karlmennskan.is/styrkja

  9. 123

    3.9: „Ég ætlaði sko ekki að verða femínisti“ – Tanja Mjöll Ísfjörð

    Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir telur að nú sé kominn tími til að færa fókusinn frá þolendum yfir á gerendur ofbeldis. „Ég vil tala um að þeir eru alls konar og, triggerandi fyrir mig að segja, en margir af þessum mönnum eru góðir við vini sína og hinn og þennan en svo eru þeir ofbeldismenn.“ Tönju var útskúfað úr samfélagi sínu og heimabæ eftir að hafa sagt frá og tilkynnt ofbeldi af hálfu lögreglumanns. Augngotur, skilaboð og hótanir leiddu Tönju til Noregs þar sem hún býr enn með Nóa, manninum sínum, og tveimur ungum börnum þeirra. Tanja hefur tekið virkan þátt í baráttu gegn ofbeldi í um áratug, þrátt fyrir að vera aðeins nýorðin 31 árs. Hún var hins vegar alls ekki femínísk þegar hún hóf nám í Borgó og fór í kynjafræði hjá Hönnu Björgu, en þar opnuðust augu hennar rækilega.   Viðmælandi: Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir   Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar. Vertu með.

  10. 122

    3.8 ÞOLENDUR – Guðný S. Bjarnadóttir

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: Lítið hefur heyrst frá þolendum eftir háværar byltingar undanfarin ár. Má túlka það sem svo að byltingarnar hafi skilað árangri eða eru aðrar ástæður fyrir þögn þolenda? Við fáum innsýn í reynslu Guðnýjar af íslenska réttarkerfinu en gagnrýni hennar leiddi meðal annars til þess að verklagi lögreglunnar var breytt. Guðný er ein margra kvenna sem hafa kært ofbeldi en mál hennar var látið niður falla þrátt fyrir sterk gögn.   Viðmælandi: Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi.   Tekið upp í desember 2025.

  11. 121

    3.7 SIÐFÁR SLAUFAÐRA – Eyja M. Brynjarsdóttir

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: Woke, réttlætisriddarar, pólitískur réttrúnaður og slaufunarmenning eru hugtök sem Eyja Margrét prófessor í heimspeki tengir við sem andspyrna við baráttuhreyfingar. Eyja er ein fárra fræðimanneskja sem hafa rannsakað slaufun og slaufunarmenningu. Við heimsækjum hugmyndir um slaufun, upplifum siðfár meintra gerenda og komumst að því að fæstum var slaufað. Í versta falli var sumum frestað tímabundið.   Viðmælandi: Eyja M. Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki.   Tekið upp í desember 2025

  12. 120

    3.6: PENINGAR – Karen Áslaug og Halla Gunnarsdóttir

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: „Hvernig get ég orðið ríkur?“ spyr ég Kareni Áslaugu aðalhagfræðing Seðlabankans og bið Höllu Gunnarsdóttur formann VR um að útskýra verðbólgu eins og ég væri 12 ára, af því ég skil ekki peninga. En ég veit það þó að ég skulda meira í dag en fyrir nokkrum árum og það tengist einhvern veginn verðbólgu, vöxtum og vísitölu neysluverðs. En hvernig? Þessi þáttur er fyrir fólk sem er ekki viðskiptafræðimenntað og skilur tæplega hvað öll þessi hugtök þýða.   Viðmælendur Karen Áslaug Vignisdóttir aðalahagfræðingur Seðlabankans [tekið upp í desember 2025] Halla Gunnarsdóttir formaður VR [tekið upp í febrúar 2026].

  13. 119

    3.5: ÚTLENDINGAR – Helen María Ólafsdóttir

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: Flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur, ferðamenn, útlendingar. Almennt virðist ekki gerður greinarmunur á hvers konar útlendingur þú ert — nema þú sért hvítur og ríkur en það er önnur umfjöllun. Í þessum þætti verður áhersla á hina meintu ógn sem stafar af útlendingum. Helen María Ólafsdóttir er sérfræðingur í þjóðaröryggismálum og hefur starfað fyrir Sameinuðu þjóðirnar í tæpa tvo áratugi víða um heim. Hún ætlar að svara því hvað sé svona hættulegt við útlendinga.   Viðmælandi: Helen María Ólafsdóttir, sérfræðingur í öryggismálum hjá Sameinuðu þjóðunum.   Tekið upp í nóvember 2025.

  14. 118

    3.4: HUNDAFLAUT OG GELT – Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: „Í upphafi var orðið og orðið var Guð“, segir í Biblíunni. Í fræðilegri túlkun mætti segja að Biblían lýsi orðræðu og hvernig orð bera með sér merkingu. Enda eru orð til alls fyrst og þá hlýtur að skipta máli hvaða orð eru notuð til að byrja með. Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur og femínískur brautryðjandi ætlar að útskýra orðræðu á íslensku. Hvað er hundaflaut, hvernig það er notað og hvers vegna orðræða getur verið hættuleg?   Viðmælandi: Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur.   Tekið upp í nóvember 2025

  15. 117

    3.3: HÆGRI, VINSTRI, SNÚ – Henry Alexander Henrysson heimspekingur

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:  Er hægt að fjalla um ólíka pólitíska hugmyndastrauma, eins og hægri eða vinstri, á hlutlægan hátt? Hvað erum við að tala um þegar við segjum öfga-hægri? Ýttu femínistar ungum drengjum inn í hægrið? Henry Alexander Henrysson útskýrir uppgang hægri hugmynda og færir rök fyrir því hvernig lýðræði er miklu meira en bara kosningar. Við sögu kemur spjall á kaffistofunum, tækifærismennska, frumhvatir og óreiða.    Viðmælandi: Henry Alexander Henrysson doktor í heimspeki   Tekið upp í nóvember 2025.

  16. 116

    3.2: ALLSKYNS – Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:   „Eru kynin bara tvö?“ er spurning á Vísindavefnum sem Arnar Pálsson líffræðingur svaraði í stuttu máli: „Nei“. Prófessorinn ætlar að útskýra líffræðilegan fjölbreytileika kyns og hversu ónákvæmt er að yfirfæra atferli dýra yfir á hegðun einstaklinga.   Viðmælandi: Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði   Tekið upp í nóvember 2025.

  17. 115

    3.1: KYNJAFRÆÐI Í HÁSKÓLA ÍSLANDS – Finnborg Salome Steinþórsdóttir lektor við stjórnmálafræðideild

    Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar. Fáar fræðigreinar, ef nokkur, eru jafn mikið afbakaðar eins og kynjafræði. Hún er sögð vera pólitísk innræting, vinstri áróður, gervivísindi og heilaþvottur. Kynjafræði hefur verið sérstakt fag innan Háskóla Íslands í 30 ár og kennd sem skylda eða valfag í allmörgum framhaldsskólum. Við ætlum að leita svara við því hvað geri kynjafræði að fræðigrein og hvers vegna hún sé svona umdeild?   Viðmælandi: Finnborg Salome Steinþórsdóttir lektor við stjórnmálafræðideild   Tekið upp í desember 2025.    

  18. 114

    Lokaþáttur - Leiðarlok hlaðvarpsins Karlmennskan

    Núna tel ég réttast að kveðja formlega hlaðvarpið Karlmennskan. Reyndar munu bakhjarlar sjá til þess að það verði áfram opið og aðgengilegt en ég mun ekki taka upp fleiri þætti. Það hefur verið afskaplega gaman að hitta og spjalla við svo margt frótt fólk með áhugaverða reynslu eða sjónarhorn á samfélagið. Markmiðið var alltaf að varpa ljósi á virkni feðraveldis í gegnum mismunandi birtingamyndir, sem höfðu einhvern snertiflöt við karla eða karlmennsku. Veit að það tókst oft vel upp. Og það gleður mig að vita að ennþá eru nokkur hundruð einstaklingar að hlusta á gamla þætti. Takk öll sem hlustuðuð. Takk öll sem gáfu tíma ykkar, reynslu og þekkingu í hlaðvarpinu.   P.S. Þau ykkar sem þráið meira af svipuðu efni getið gerst áskrifendur að vikulega hlaðvarpinu Sópað undan teppinu með Þorsteini V. og Huldu Tölgyes. Hlaðvarpið er að finna á þriðja.is

  19. 113

    S2:Þ2 Klám ruslar í kynheilbrigði

    Klám er oft fyrsta vísbending barna um kynlíf og jafnvel aðgengilegasta kynfræðslan sem þau fá. En klám er ekki kynfræðsla þótt það hafi áhrif á kynhegðun og hugmyndir barna og fullorðinna um kynlíf – með miður góðum afleiðingum. Kynferðisofbeldi, klámvæðingu hversdagsleikans, hlutgervingu kvenna og óraunhæfum útlitskröfum.  Í þessum þætti skoðum við áhrif kláms á einstaklinga í gegnum reynslu tveggja stráka á þrítugsaldri sem hættu að horfa á klám, Eddu Lovísu sem hætti að framleiða klám og Kolbrúnu Hrund kynjafræðing sem hatar klám. Kolbrún Hrund hefur rannsakað áhrif kláms á ungt fólk og fylgst með rannsóknum alþjóðlegra sérfræðinga í langan tíma og hefur því sitthvað fyrir afstöðu sinni. Í þættinum er greint frá því hvernig reynsla strákanna tveggja og Eddu Lovísu er í takt við rannsóknir sem Kolbrún Hrund fjallar um. Undirliggjandi spurning þáttarins er hvort að kláminu fylgi kynfrelsi eða hvort það sé enn eitt kúgunartæki feðraveldis og kapítalismans?   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto (án söngs) Viðmælendur: Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Edda Lovísa Björgvinsdóttir, Sigurjón og „Gestur“.   Fjármagnað af thridja.is/styrkja 

  20. 112

    S2:Þ1 „Bókin seldist vel og konur voru þakklátar og líka fullt af körlum“ - Hulda Tölgyes og Haukur Bragason

    Þriðja vaktin – Jafnréttishandbók heimilisins kom út í lok nóvember í fyrra. Bókina skrifaði ég ásamt Huldu Tölgyes sálfræðingi og í nánu og góðu samstarfi við ritstjórann okkar, Hauk Bragason. Haukur hélt að hann þyrfti mest að passa að tóna okkur niður, passa að við værum ekki of róttæk, reið og stuðandi, en var í raun farinn að þurfa að tóna okkur upp.  Í þessum þætti gefum við innsýn í ferlið á skrifunum, segjum frá því hvernig bókin þróaðist, segjum frá upplifun okkar af ofsafenginni en innihaldslausri gagnrýni og hvernig taugakerfi Huldu hrundi eftir að skrifunum lauk.  Þátturinn er aðgengilegur öllum og án auglýsinga vegna bakhjarla Karlmennskunnar sem styrkja mánaðarlega í gegnum thridja.is/styrkja.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson / Þriðja.is Viðmælendur: Hulda Tölgyes og Haukur Bragason Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)

  21. 111

    127. „Talaru íslensku?“ - Sara Cervantes

    Sara Cervantes er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum sem flutti til Íslands fyrir nokkrum árum. Sara gefur innsýn í reynsluheim einstaklings sem reynir að aðlagast íslensku samfélagi en mætir ýmsum kerfisbundnum hversdagslegum og formlegum hindrunum.  Við Sara hittumst fyrst á fræðslufundi á Landspítalanum þar sem umræðuefnið var forréttindi og jaðarsetning. Innlegg Söru var svo áhrifamikið að ég varð að leyfa ykkur að heyra. Við spjöllum um forréttindi, jaðarsetningu, inngildingu, útilokun, hver ber ábyrgð á inngildingu á vinnustöðum og almennt í samfélaginu og „two minute investment“-leiðina sem Sara telur mun gagnlegri en að spyrja „talaru íslensku?“.    Viðtalið fer fram á ensku.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Yipin, vinsælasta tófú Svíþjóðar, býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar.

  22. 110

    126. „Held ég hafi akkúrat nægar áhyggjur af drengjum í skólakerfinu“ – Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

    Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor við deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands og hefur stundað rannsóknir á kennslukonum og kennslukörlum, rýnt í stöðu drengja í skólum og ásamt mörgu öðru skrifað bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi sem er brautryðjendaverk um karlmennsku og karlafræði.  Við stöldrum að mestu við nýlegar rannsóknir Ingólfs og félaga á nýbrautskráðum kennslukörlum og hvernig þeim tekst að komast inn í kennarastarfið, ræðum um umhyggju sem Ingólfur horfir á sem faglegt gildi sem sé algjörlega óháð kyni. Við færum okkur í seinni hluta viðtals í umræður um karlmennsku, jákvæða og skaðlega, hvort karlmennskuhugtakið sjálft festi í sessi misréttið í gegnum tvíhyggjuna og þá hvort jákvæð karlmennska geri nokkurt gagn til að berja á feðraveldinu og kapítalismanum – sem Ingólfur segir að sé nátengt. Þema þáttarins er því að mestu kennslukarlar, skólakerfið, staða drengja, umhyggja sem faglegt gildi og karlmennska.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto   OUMPH! býður upp á þáttinn ásamt Maríuklæðum og bakhjörlum Karlmennskunnar.   Þú getur gerst bakhjarl Karlmennskunnar og tryggt að þetta hlaðvarp sé alltaf opið og aðgengilegt öllum: karlmennskan.is/styrkja 

  23. 109

    125. „Stjörnur hrapa en kúkurinn flýtur“ - Dóri DNA (Halldór Laxness Halldórsson)

    Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, uppistandari og höfundur hefur komið víða við. Við höldum okkur þó á léttu nótunum eins og hægt er með áherslu á karlmennskuna, karllægni, gerendur og hliðverði dægurmenningar ungs fólks. Enda hafa mörg verka Halldórs skýra tengingu við karlmennsku eins og skáldverkið Kokkáll og sjónvarpsþættirnir Afturelding. Kryfjum aðeins baksvið sköpunarverkanna, persónulega sjálfsefann og veiku sjálfsmyndina sem dylst undir sjálfsörugga grínaranum.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) & Tom Deis - Green River   OUMPH! býður upp á þáttinn ásamt Maríuklæði og bakhjörlum Karlmennskunnar.   Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is Samstarf og auglýsingar: [email protected] 

  24. 108

    124 „Eins og það sé körlum ekki eðlislægt að sjá skít“ Ragnheiður Davíðsdóttir

    „Hægt og rólega verður mylsna á borði til misskiptingar, sem [hann] tekur jafnvel ekki eftir“, er lýsandi setning úr ritgerð Ragnheiðar Davíðsdóttur sem rannsakaði hugræna vinnu meðal íslenskra para í meistararaverkefni sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands. Líklega er þetta fyrsta íslenska rannsóknin sem mælir hugræna vinnu og niðurstöður eru í samræmi við reynslu sem ansi margar konur hafa lýst og erlendar rannsóknir hafa dregið ítrekað fram. Verkaskipting hugrænnar vinnu er bæði misskipt og kynjuð. Mæður í gagnkynhneigðum samböndum báru meiri hugræna byrði en feður. Mat viðmælenda á verkaskiptingu virtist bjagað, hefðbundin kvennastörf voru vanmetin en karlastörf ofmetin og pörin leituðust við að réttlæta misskiptinguna með ýmsum hætti og leituðust þannig við að falla að félagslega viðurkenndum jafnréttis- og réttlætishugsjónum.   Ragnheiður segir frá rannsóknarferlinu og fjallar nokkuð ítarlega um helstu niðurstöður sem vægast sagt eru afar áhugaverðar. Þá finnst mér við hæfi að draga fram að einkunn Ragnheiðar fyrir ritgerðina var 9,5 sem endurspeglar hversu vel þessi ritgerð var unnin, fræðilega vel undirbyggð og rannsóknarniðurstöður settar í fræðilegt samhengi. (Hægt er að ná á Ragnheiði í gegnum [email protected])    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Bakhjarlar karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn og þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja

  25. 107

    123. Þriðja vaktin - Q&A með Huldu Tölgyes og Þorsteini V.

    Þriðja vaktin brennur ennþá á konum, einkum þegar þær eru í samböndum með körlum. Enda sýna rannsóknir að það sé meiri vinna fyrir konu að eiga börn og heimili með karlkyns maka en vera einstæð móðir.    Hulda Tölgyes sálfræðingur og Þorsteinn tóku þennan þátt upp í beinni útsendingu á Instagram hjá Huldu @hulda.tolgyes. Förum við yfir spurningar sem okkur bárust, í aðdraganda þáttarins og útskýrum ýmsa þætti sem snúa að þriðju vaktina, ábyrgðinni, lausnir og fleira.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Þátturinn er í boði ykkar: karlmennskan.is/styrkja

  26. 106

    122. „Ég er búin að taka valdið“ - Dilja Pétursdóttir

    Dilja Pétursdóttir, fulltrúi okkar í Eurovision í ár, hefur ætlað sér að verða söngkona frá því hún tók þátt í Ísland got talent 12 ára gömul. Við spjöllum um Eurovision, strögglið við skuggana kvíða og þráhyggju, nýtilkomna frægð og fjölmiðlaumfjöllun um persónulegt líf hennar, tónlistarbransann og stóru plönin.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Hljóðbútar af youtube frá Ísland got talent og undanúrslitakvöldi Eurovision. karlmennskan.is/styrkja

  27. 105

    121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson

    121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson Guðmundur Jóhannsson hefur verið tíður gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 með innslög um tækni og stafræna heima og starfar sem samskiptafulltrúi hjá Símanum. Orðfæri og orðanotkun Guðmundar vakti athygli mína en iðulega notast hann við kynhlutlaust mál sem mér þykir áhugavert komandi úr jafn karllægum geira. Mig langaði að forvitnast nánar um þetta. Við kryfjum stafræna heima með kynjagleraugunum í þessum þætti og snertum á heimskum lykilorðum, stóra gagnalekanum, blindu trausti okkar á tæknirisum sem þó eru eftirbátar í jafnréttismálum, algrímið sem þekkir okkur oft betur en við sjálf, gervigreind og Guðmundur útskýrir hvers vegna aldursviðmið samfélagsmiðla er 13 ár.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto (án söngs)   Bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt, þú getur gerst bakhjarl inni á karlmennskan.is/styrkja og greitt frá 990 kr á mánuði.

  28. 104

    120. „Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson

    „Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson Hann er næstum því sextugur, gagnkynhneigður, giftur í tæpa þrjá áratugi, með tvær háskólagráður, starfar í leikskóla og byrjaði að notast við varalit, naglalakk og kjóla fyrir nokkrum árum. Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson segist beita sínum karllægu forréttindum á þennan hátt til að hafa jákvæð áhrif á börnin sem hann starfar með en fyrst og fremst vegna þess að honum líður vel þannig. Honum er nákvæmlega sama hvað fólki finnst um hann og segist almennt fá stuðning fyrir að rjúfa hefðbundinn ramma karlmennskunnar. Enda telur hann það vera karlmennsku að geta staðið utan við hina hefðbundnu ímynd.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Veganbúðin, BM Vallá og ÖRLÖ ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.   . . . Þú getur stutt við frekari hlaðvarpsþáttagerð og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum með því að gerast bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja

  29. 103

    119. „Þá þarf ég bara femínista sem er að pæla í píkum“ - Nanna Hlín Halldórsdóttir

    Nanna Hlín Halldórsdóttir er doktor í femínískri heimspeki og kennari við Háskóla Íslands. Hún hefur kennt um eðlishyggju gegn mótunarhyggju, rannsakað á doktorsstigi hvort berskjöldun geti verið andsvar femínískrar heimspeki við nýfrjálshyggju og skrifað um iðrun, ábyrgð, tilfinningar, slaufun og fleira.   Við förum í örlítinn nördaskap um eðli (karl)mannsins og skilin á milli líkama og félagslegrar mótunar en snertum á ýmsu sem hefur verið í deiglunni eins og áherslum femínismans, áhrifum hans á samfélagið, iðrandi leikþátt manna sem nenna ekki að vinna neina tilfinningavinnu, förum inn í tilgang og svigrúm berskjöldunar, kryfjum eðlið með aðstoð Butler og fleira.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Viðmælandi: Nanna Hlín Halldórsdóttir doktor í femínískri heimspeki Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   VEGANBÚÐIN, ÖRLÖ og BM VALLÁ ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn.

  30. 102

    118. „Svona er ég bara“ - Biggi Veira

    Birgir Þórarinsson eða Biggi Veira tónlistarmaður, sem mörg tengja líklega við GusGus, hefur ekki látið þröngan stakk karlmennskuhugmynda skilgreina sig, sérstaklega ekki fataval sitt og kyntjáningu. Enda er hann reglulega í sokkabuxum, blússum eða kjólum sem teljast almennt til kvenfatnaðar og vel farðaður, þótt hann sé stundum beðinn um að vera ekki of mikið málaður t.d.fyrir foreldraviðtöl.  Biggi lýsir því hvernig hann áttaði sig mjög snemma að hann hneygðist að hefðbundnum kvenfatnaði, þótt erfitt sé að lýsa því eða réttlæta enda byggt á djúpstæðum tilfinningum. Það var samt ekki fyrr en í kringum aldamótin sem hann kemur „út úr skápnum“, ekki sem kona eða hommi, heldur hann sjálfur. Miðaldra gagnkynhneigður sís karlmaður, ráðsettur faðir í sambúð með konu sem klæðir sig og farðar eins og kona en er hrútskýrari og hálfgert alpha male.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Viðmælandi: Birgir Þórarinsson (Biggi Veira) Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   ÖRLÖ, Veganbúðin, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  31. 101

    117. „Það sem er mjúkt getur ekki brotnað“ - Spindrift, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir

    THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær.    Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á TIX) og er afrakstur af viðtalsrannsókn við fjölda karla á Íslandi og Finnlandi. Leitast leikarnir við að varpa ljósi á karlmennsku af mýkt og næmni, án þess að dæma en þó þannig að áhorfandinn geti speglað sig og sín eigin viðhorf.  Við spjöllum um leikverkið, tilurð þess, áhrif metoo byltingarinnar sem kemur inn í mitt sköpunarferlið og það hvort og hvers vegna konum leyfist að gera leiksýningu um karlmennsku.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Viðmælendur: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir leikkonur.   Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn. Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja 

  32. 100

    116. „Ég er ekki sammála því“ - Þórarinn Hjartarson

    Þórarinn Hjartarson stjórnmálafræðingur og nemi í MPA í opinberri stjornsýslu, hnefaleikaþjálfari og starfsmaður á sambýli heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling og sendir reglulega frá sér skoðanapistla sem hafa verið birtir á Vísi. Það má líklega segja að skoðanir, fullyrðingar og afstaða Þórarins í þessum pistlum séu í andstöðu við femíníska hugmyndafræði enda er hann oft að hæðast að málefnum jaðarsettra eða því sem hann kallar „woke-isma”. Ég tel að sjónarmið Þórarins endurspegli viðhorf ansi margra sem eru orðnir þreyttir á byltingum og baráttum sl ára, sem telja sig geta valið hlutleysi gagnvart samfélagsmálum í skjóli eigin forréttindafirringar og langar því að fá að forvitnast nánar um sjónarhorn og afstöðu manns sem er að mörgu leiti á skjön við mitt eigið.  Tilgangurinn með þættinum er að varpa ljósi á viðhorf einstaklings sem er gagnrýninn á femíníska baráttu og bjóða upp á samtal tveggja einstaklinga sem eru ósammála í flestum málum, þrátt fyrir líka félagslega stöðu. Ætli megi ekki segja að hér séu tveir bergmálshellar að mætast og eiga samtal um völd, fjármögnun hins opinbera, Woke-isma, jafnrétti, femínisma, tjáningarfrelsi, forréttindi og skoðanir.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Veganbúðin, ÖRLÖ og BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn.

  33. 99

    115. „Klám er helsta kynfræðsla barna, sem vinnur gegn kynfrelsi“ - María, Kristín og Eygló

    Bylting framhaldsskólanema gegn kynferðisofbeldi og gagnrýni á viðbragðsleysi skólastjórnenda ýtti undir kröfu um aukna kyn- og kynjafræðikennslu í skólum auk almennilegra viðbragða þegar kynferðisbrot koma upp. Skólameistarar ruku sumir hverjir upp og bundu vonir við að fram kæmu leiðbeiningar til að tækla slík mál. Sérfræðingar í jafnréttis- og ofbeldisforvarnarmálum sögðu þó hægan hægan. Engin skyndilausn væri við jafn flóknum og útbreiddum vanda sem kynferðisofbeldi er, auk þess sem skólar geti ekki tekið að sér hlutverk réttarkerfisins. Finna þurfi aðra og betri nálgun. Í raun algjöra kerfisbreytingu.   María Hjálmtysdottir, Kristín Blöndal Ragnarsdóttir og Eygló Árnadóttir hafa starfað við jafnréttismál, kynjafræðikennslu, sitja í stjórn félags kynjafræðikennara og mynda fagteymi utan um fræðslu og forvarnir framhaldsskóla vegna kynferðisofbeldis. Þær fara yfir ástæður þess að skyndilausnar-viðbragð við kynferðisofbeldis virkar ekki í skólakerfinu, útskýra hversu mikilvægt er að samþætta kyn- og kynjafræðikennslu og stórefla hana, ræða alvarleika kláms og áhrifamikilla karlrembna í samskiptum ungs fólks og gefa okkur innsýn í menningu ungmenna í dag.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja) bjóða upp á þennan þátt.

  34. 98

    114. AUKAÞÁTTUR - „Við munum breyta heiminum“ ÖRLÖ, Hörður og Kristinn

      ÖRLÖ er samstarfsaðili Karlmennskunar sem býður upp á hlaðvarpið og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum. Í þessum aukaþætti Karlmennskunnar ætlum við að fræðast um hvað ÖRLÖ er, hvað er svona merkilegt við þeirra vörur og framleiðslu og hvers vegna VAXA technologies (sem framleiða ÖRLÖ) vilja tengjast Karlmennskunni.   Hörður Águstsson sölu- og markaðsstjóri og Kristinn Hafliðason framkvæmdastjóri VAXA Thecnologies útskýra þetta nánar.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Þessi aukaþáttur er kostaður af ÖRLÖ. Þú færð 20% afslátt með kóðanum „karlmennskan“ inni á ÖRLÖ.IS

  35. 97

    #113 „Réttlæti fyrir brotaþola er að geta haldið áfram að lifa í sínu samfélagi“ - Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir og Elín Björk Jóhannsdóttir

    Recognising Sexual Violence: Developing Pathways to Survivor-Centred Justice hét ráðstefna sem haldin var í lok október sl. af RIKK (rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í samstarfi við háskólana í Lundi og Osló. Rannsóknir á reynslu og hugmyndum þolenda kynferðisbrota sýna að réttlæti er mun flóknara en svo að eingöngu sé hægt að styðjast við réttarkerfið; hegningarlög og refsirétt. Auk þess má réttilega segja að réttarkerfið nái afar illa utan um kynferðisbrot eins og reynsla þolenda hefur sýnt fram á. Markmið ráðstefnunnar var að draga fram hvernig þolendamiðað réttlæti getur litið út, sem krefst þess að við endurhugsum ólík réttlætiskerfi og þróum pólitískar, félagslegar og lagalegar leiðir að réttlæti. Til þess að ræða þetta nánar spjallaði ég við Elínu Björk Jóhannsdóttur verkefnisstjóra hjá RIKK, skipuleggjanda ráðstefnunnar og Steinunni Gyðu og Guðjónsdóttur talskonu Stígamóta sem sat ráðstefnuna og hefur starfað með þolendum í rúman áratug. Á meðal spurninga sem við leitum svara við eru: Hvers vegna gengur ekki að vera með viðbragðsáætlun í skólum sem grípa má til þegar upp koma kynferðisbrot? Hvað er félagslegt réttlæti, uppbyggileg réttvísi og umbreytandi réttlæti? Hvernig geta skólar og vinnustaðir brugðist við þegar upp koma kynferðisbrot? Hvers vegna ættu gerendur að taka þátt í ábyrgðarferli og gangast við brotum sínum? Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja) bjóða upp á þennan þátt.

  36. 96

    #112 „Tilfinningar karla, er það ekki hot topic?“ - Ari Ísfeld Óskarsson

    „Ég vonast til þess að karlar, ungir sem aldnir, byrji að tala saman meira um tilfinningar sínar og hvernig þeim líður.“ segir Ari Ísfeld Óskarsson leikari sem samdi og lék í How to make love to a man í tilraunaverkefninu Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu sl. vor. Leikritið fjallaði á kómískan en raunsæan hátt um karlmennsku og karla, hvernig þeir eiga samskipti sín á milli og takast á við lífið. Ari var einmitt að gefa út lag sem samið var fyrir sýninguna sem er spilað í þættinum. Við spjöllum um ástæður þess að fjórir vinir ákveða að gera leikrit um karlmennsku, hvernig það er að vera karlmaður í dag og sérstaklega hvernig er að vera mjúkur maður. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) ÖRLÖ, Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt. ->Núna geturðu einnig horft á viðtalið á karlmennskan.is og þar geturðu einnig gerst bakhjarl

  37. 95

    #111 „Það er alltaf einhver afstaða í gríni“ - Dóra Jóhannsdóttir

    Áramótaskaupið hefur sennilega aldrei fengið jafn almennt sterk jákvæð viðbrögð frá flestum, nema kannski „nokkrum fótboltagrúbbum” eins og Saga Garðars orðaði í viðtali á dögunum og svo er spurning hvernig sumum meintum og vinum þeirra fannst skaupið. Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri Áramótaskaupsins kryfur nokkra sketsana og gefur okkur innsýn í ferlið við skaupið. Hvernig kemur hún auga á fyndnina í gráum hversdagsleikanum og sárum kynferðisofbeldis og útlendingaandúðar? Förum inn í afstöðu grínsins og þerapjútíkina sem grínið getur gefið, veltum upp hvort gera megi grín að hverju sem er og hvernig sem er og hvað fær fólk til að hlæja. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Nartuo (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða uppá þennan þátt.

  38. 94

    #110 „Gott að spá einhverju og geta svo látið það rætast“ - Miriam Petra og Sóley Tómasdóttir

    Við lítum yfir árið, bæði persónulega og pólitískt. Leitum að hápunktum og lágpunktum og setjumst í Völvusætið fyrir árið 2023. Veltum fyrir okkur áhrifum baráttu á árinu og mögulegum afleiðingum ýmissa atvika sem áttu sér stað á árinu. Hefur baráttan fyrir jafnrétti og mannréttindum skilað einhverju eða erum við bara á leiðinni aftur á bak með þungu bakslagi? Miriam Petra sérfræðingur hjá Rannís og inngildingarfulltrúi landsskrifstofu Erasmus plus og fyrirlesari um rasisma og menningarfordóma og Sóley Tómasdóttir jafnréttis- og fjölbreytileikafræðingur horfa í baksýnisspegilinn og setjast í femínískt Völvusæti fyrir árið 2023. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ fyrsta Omega-3 bætiefnið í heiminum með jákvætt kolefnisfótspor og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  39. 93

    #109 „Fólk verður bara að fyrirgefa hvað ég er lengi að fatta“ - Gísli Marteinn Baldursson

    Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi og þáttastjórnandi vinsælasta skemmtiþáttar landsins, Vikan með Gísla Marteini, var kallaður til viðtals til að létta aðeins á efnistökum hlaðvarpsins í aðdraganda jólanna. Reyndar slysaðist ég aðeins til að kveikja á borgar- og skipulagsmála Marteini en þaðan leiðumst við í umræðu um veganisma, femínisma, byltingar, meint hlutleysi í þögninni, vináttu og hvernig forréttindafullur kallavinahópur á sextugsaldri vinnur úr kröfum samtímans. Kannski ekkert brjálæðislegt léttmeti, en Gísli Marteinn var allavega í jólaskapi. Það er eitthvað. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  40. 92

    #108 „Maður er líka alltaf að gera grín að sjálfum sér“ - Helga Braga Jónsdóttir

    Helga Braga Jónsdóttir er leikona og grínisti, leiðsögumaður, flugfreyja, magadansfrumkvöðull og kvenuppistandsfrumkvöðull. Helga Braga hefur skapað ódauðlega karaktera og skrifað og leikið í ódauðlegum senum t.d. með Fóstbræðrum. Auk þess hefur Helga auðvitað leikið í fjölmorgum þáttum, bíómyndum, áramótaskaupum og fleiru. Við spjöllum um grínið, hvernig og hvort það hefur breyst, kryfjum nokkrar senur úr Fóstbræðrum og förum inn á persónulegri svið þegar talið berst að byltingum undanfarinna ára og mánaða. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  41. 91

    #107 „Hinseginleikinn minn trompar það ekki að ég sé barn“ Hinsegin félagsmiðstöðin - Hrefna, Nóam og Tinni

    Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er fyrir öll ungmenni á aldrinum 10-17 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Markmið starfseminnar er að vinna mark­visst að því að bæta lýð­heilsu hinsegin barna, unglinga og ungmenna og vinna gegn for­dóm­um, mis­munun og ein­elti sem bein­ist gegn hinsegin börnum í skóla og frí­stunda­starf­i. Hrefna Þórarinsdóttir forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar og Andreas Tinni og Nóam Óli sem eru 17 ára og hafa tekið virkan þátt í starfinu frá 13 ára aldri segja okkur frá reynslu sinni og upplifun, veita innsýn í reynsluheim hinsegin barna og ungmenna og hvaða þýðingu hinsegin félagsmiðstöðin hefur fyrir þá. Hrefna lýsir sínum innri átökum við að taka að sér starf forstöðukonu félagsmiðstöðvarinnar og hvernig mætingin fór úr 10-15 börnum í 120 á hverja opnun. Þrátt fyrir blómlegt starf þá telja Tinni og Nóam að unglingar í dag séu jafnvel fordómafyllri en ungmenni og rekja það til áhrifa samfélagsmiðla og bakslags í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  42. 90

    #106 Þegar þagnaði í víkingaklappinu - Valur Páll Eiríksson M.A. í íþróttasiðfræði

    Sjö leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta voru sagðir hafa beitt eða kærðir fyrir heimilisofbeldi eða kynferðisofbeldi haustið 2021. Öll sem stigu fram voru konur og sögðust gera það innblásnar af metoo byltingunum. Mál sem hreyfði við íslensku samfélagi og leiddi m.a. til þess að formaður KSÍ og öll stjórn sagði af sér. Valur Páll Eiríksson, íþróttafrettamaður, skrifaði meistararitgerð í íþróttasiðfræði frá háskólanum í Lueven í Belgíu, um málefni KSÍ í ritgerð sem heitir „The Viking-clap silenced - An ethical evaluation of the Icelandic football scandal” þar sem markmiðið var, í gegnum heimilda- og gagnarannsókn, að greina málið siðferðislega. Rekur hann þar áhættuþætti í umhverfi atvinnufótboltamanna, hvernig árangur innan vallar getur trompað almennt siðferði, karllægni og kvenfjandsamleg viðhorf innan fótboltans, skort á viðbragðsáætlunum innan KSÍ og slakra stjórnunarhátta sem mikilvægt sé að draga lærdóm af. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  43. 89

    #105 „Öfgahyggja er kynjaður vandi“ - Sema Erla Serdaroglu

    Sema Erla Serdaroglu er stjórnmálafræðingur, tómstunda- og félagsmálafræðingur og evrópufræðingur, aðjúnkt á menntavísindasviði við Háskóla Íslands og aktívisti gegn útlendingaandúð og þjóðernis- og öfgahyggju. Sema hefur rannsakað öfgahyggju meðal ungs fólks en meistararannsókn hennar ber heitið „Ofbeldisfull öfgahyggja og ungt fólk : staða þekkingar og mikilvægi forvarna”. Sema setur meinta hryðjuverkaógn í samhengi við hatursorðræðu og aukna andúð gegn sumum hópum samfélagsins, bendir á hvernig öfgahyggja er kynjaður vandi, lýsir ferlinu sem getur átt sér stað til þess að einstaklingar geti verið tilbúnir til að beita hryðjuverkum eða fremja hatursglæp og hvað þarf að eiga sér stað til að vinna gegn slíkri þróun. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  44. 88

    #104 „Eitt glas af enska boltanum og þrjár teskeiðar af karlrembu“ - Dagur Hjartarson rithöfundur

    Dagur Hjartarson er kennari og rithöfundur sem hefur meðal annars fengið hin virtu bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Ljóðstaf Jóns úr Vör. Þá hefur Dagur einnig verið tilnefndur til bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og er einn af þeim útvöldu sem hafa fengið listamannalaun til að sinna ritstörfunum. Við Dagur ræddum um fyrirmyndir ungra drengja, hvað þurfi til svo skáld og rithöfundar taki við af fótbolta- og poppstjörnum sem fyrirmyndir, fjarveru drengja og karla í umræðu um samfélagslega knýjandi málefni, karlmennsku, karlrembu, prumpulykt og listina. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þáttur tekinn upp 6. september 2022. Þátturinn er í boði: Veganbúðin Anamma Bakhjarlar Karlmennskunnar

  45. 87

    #103 „Hljómar eins og ég sé the bad guy“ - Kaupandi vændis

    Kaupendur vændis eru duldir og í raun fjarverandi í umræðu um vændi og kynlífsvinnu. Átökin í orðræðu hafa að mestu hverfst um hugtök og nálganir er snýr að löggjöf í kringum vændi eða kynlífsvinnu og þá borin uppi af fólki sem almennt er sammála um að samfélagsgerð lituð af feðraveldi, karllægni, misskiptingu og fátækt geti ekki talist gott samfélag. Í þessum þætti leitast ég hinsvegar við að varpa ljósi á viðhorf kaupenda vændis eða kynlífsþjónustu og þá sérstaklega hvernig virðing kaupenda fyrir þeim sem þeir kaupa „þjónustuna“ af birtist í orðræðu þeirra. Leitast ég við að teikna upp á viðtal við einn kaupanda vændis og set hans frásögn í stærra samhengi, ýmist við aðra kaupendur vændis og samfélagsgerðina. Niðurstaðan í stuttu máli er sú að löggjöfin er ekki fráhrindandi fyrir kaupendur vændis heldur gera kaupin jafnvel meira spennandi. Kaupendur telja aðstæður, vilja og tilfinningar kvenna, jafnvel þótt þær virðast þolendur mansals, ekki koma sér við og í orðræðu þeirra má finna stæka kvenfyrirlitningu og hlutgervingu. Þeir telja vændi vera þjónustu sem þeir gera tilkall til, algjörlega óháð aðstæðum eða afleiðingum á seljendur. Umsjón: Þorsteinn V. Einarson Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  46. 86

    #102 Dulinn sexismi, incel og narsissismi í hópum - Bjarki Þór Grönfeldt

    Bjarki Þór Grönfeldt er doktorsnemi í stjórnmálasálfræði við Háskólann í Kent á Englandi en hann mun í haust skila doktorsritgerð sinni um sjálfhverfu, eða narsissisma, í hópum. Bjarki hlaut á dögunum Roberta Sigel verðlaun Alþjóðasamtaka stjórnmálasálfræðinga fyrir bestu vísindagreinina skrifaða af ungum fræðimanni. Greinin bar nafnið „A Small Price to Pay: National Narcissism Predicts Readiness to Sacrifice In-Group Members to Defend the In-Group’s Image”. Þar kom meðal annars í ljós að þeir Bandaríkjamenn sem eru narsissískir um sína þjóðarímynd voru tilbúnir til þess að fórna samborgurum sínum í COVID faraldrinum til þess að láta þjóðina líta betur út í samanburði við aðra, til dæmis með því að hætta að skima fyrir COVID. Við Bjarki ræddum doktorsrannsóknina hans um félagslegan narsisisma og incel, Jordan Peterson, sexisma, dulinn sexisma, þjóðernishyggju og föðurlandsást, svo fátt eitt sé nefnt. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  47. 85

    #101 „Eitruð karlmennska er stærsti óvinur veganismans“ - Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir

    Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir er framkvæmdastjóri, meðeigandi og meðstofnandi Veganmatar sem rekur Veganbúðina og Jömm. Hún er brautryðjandi í veganisma á Íslandi og reyndar á heimsvísu því Veganbúðin í Skeifunni er stærsta veganbúð í heiminum. En Sæunn hefur auk þess komið að stofnun Samtaka grænmetisæta á Íslandi, verið vegan í 10 ár og er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og löggiltur verðbréfamiðlari. Sæunn hefur þó lýst því að hún stundi andkapítalískan og femíniskan rekstur og með það markmið að gera heiminn betri (og meira vegan) og kallar sig bissnessaktívista. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ANAMMA vegan valkostur fyrir þau sem vilja minnka kjötneyslu og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða þér upp á þennan þátt.

  48. 84

    #100 Páll Óskar Hjálmtýsson

    Brautryðjandinn, poppgoðið, homminn og hin ögrandi þjóðargersemi Páll Óskar Hjálmtýsson er heiðursgestur 100. hlaðvarpsþáttar Karlmennskunnar. Við kryfjum karlmennskuna og kvenleikann, leikritið sem kynhlutverkin og karlmennskan er, skápasöguna og kolröngu viðbrögð foreldra Palla, karlrembur, andspyrnuna og bakslag í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Dominos og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóðar upp á þennan þátt.

  49. 83

    #99 „Mig langaði ekkert að lifa“ - Lárus Logi Elentínusson (Eldgosi)

    Lárus Logi Elentínusson hefur verið að glíma við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir frá því hann var unglingur. Lárus sem er 19 ára gamall, og þekktur sem Eldgosi á TikTok, deildi því með fylgjendum sínum að hann hefði gert sjálfsvígstilraun fyrir tæpum tveimur árum. Í einhverja mánuði voru viðbrögð fólks á TikTok, commentin og rauðu búbblurnar það sem hélt í honum lífinu. Lárus er ekki laus við vanlíðanina en með hjálp sálfræðings, þunglyndislyfja og því að tala opinskátt um líðan sína segist hann geta tekist betur á við erfiðar tilfinningar og hugsanir. Lárus lýsir reynslu sinni að hafa glímt við þunglyndi, án þess að vita það, frá því í 6. bekk og hvernig það er að burðast með tilgangsleysi og vonleysi og upplifa sig sem „ónýta vöru sem mætti farga“. Hann segist hafa lært að hann þurfi ekki og það sé alls ekki sniðugt að burðast einn með vanlíðan, það sé alltaf einhver tilbúinn til að hjálpa. Í þessum þætti er talað um þunglyndi, sjálfsskaða og sjálfvígshugsanir. Ef þú þekkir slíkt af eigin raun bendi ég á símanumerið 1717 og 1717.is sem er opið allan sólarhringinn, Píeta samtökin, Bergið (fyrir ungt fólk til 25 ára) og sálfræðinga víða um land. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Dominos og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

  50. 82

    #98 Kynlífsverkafólk og Rauða regnhlífin - Logn og Renata

    Rauða Regnhlífin er hagsmunasamtök sem berst fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Þau styðja skaðaminnkun og vilja binda enda á fordóma gegn fólki sem selur kynlífsþjónustu. Logn starfaði við kynlífsþjónustu í 3 til 4 ár en Renata bryjaði að strippa meðfram skólagöngu sinni í Berlín áður en hún fór svo að notast við Onlyfans, sem hún starfar við í dag. Logn og Renata vilja afglæpavæða kynlífsþjónustu og telja að kynlífsverkafólk búi við samfélagslega smánun og séu berskjaldaðar fyrir ofbeldi undir núverandi löggjöf. Telja þau ekki gerðan greinarmun á kynlífsþjónustu og síðan kynferðisofbeldi, og telja stjórnvöld hafa meiri áhuga á að stöðva kúnna heldur en þá sem beita kynlífsverkafólk ofbeldi. Renata og Logn útskýra sjónarmið Rauðu reghlífarinnar, hver munurinn er á núverandi löggjöf, afglæpavæðingu og lögleiðingu kynlífsþjónustu, hvers vegna þau nota hugtökin kynlífsþjónusta en ekki vændi og hvaða máli það skiptir kynlífsverkafólk að öðlast aðgengi að stéttarfélögum og almennum vinnuréttindum. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Dominos og Veganbúðin ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

HOSTED BY

Þorsteinn V. Einarsson

Frequently Asked Questions

How many episodes does Karlmennskan have?

Karlmennskan currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Karlmennskan about?

[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

How often does Karlmennskan release new episodes?

Karlmennskan has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Karlmennskan?

You can listen to Karlmennskan on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Karlmennskan?

Karlmennskan is created and hosted by Þorsteinn V. Einarsson.
URL copied to clipboard!