31 | Öfgar á tímum COVID19, áhrif veirunnar á umhverfið og Inter Miami episode artwork

EPISODE · Apr 3, 2020 · 52 MIN

31 | Öfgar á tímum COVID19, áhrif veirunnar á umhverfið og Inter Miami

from Heimskviður

Í þrítugasta og fyrsta þætti Heimskviðna fjalla Guðmundur Björn og Birta um ólík viðbrögð þjóðarleiðtoga um veröld víða við útbreiðslu kórónuveirunnar COVID19. Forseti Filippseyja vill skjóta þá sem rjúfa sóttkví, en forseti Brasilíu segir fólki að hundskast í vinnuna. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands er nánast orðinn einvaldur, og í Hvíta-Rússlandi gengur lífið sinn vanagang, líkt og enginn heimsfaraldur gangi nú yfir. Þá grassera falsfréttir, streymisveitur hafa aldrei verið jafn vinsælar og við erum hætt að taka í höndina á hvort öðru. Þá fjallar Bergljót Baldursdóttir um áhrif COVID19 á umhverfið og loftslagsmál. Það er nefnilega svo að útbreiðsla veirunnar virðist hafa ansi hreint jákvæð áhrif á umhverfið, enda eru helstu skaðvaldar þess - mennirnir - að menga töluvert minna en venjulega. En fer allt aftur í sama farið þegar faraldurinn hefur runnið sitt skeið? Svo segir Hallgrímur Indriðason okkur frá nýju fótboltaliði Davids Beckham, Inter Miami, sem hóf nýverið leik í bandarísku atvinnumannadeildinni í fótbolta. Þá rekur hann einnig sögu atvinnumannadeildarinnar í Bandaríkjunum, en fótbolti hefur ekki notið mikilla vinsælda vestanhafs. Á því hefur þó verið nokkur breyting síðustu ár, ekki síst vegna Beckhams. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

31 | Öfgar á tímum COVID19, áhrif veirunnar á umhverfið og Inter Miami

0:00 52:23

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 52 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on April 3, 2020.

What is this episode about?

Í þrítugasta og fyrsta þætti Heimskviðna fjalla Guðmundur Björn og Birta um ólík viðbrögð þjóðarleiðtoga um veröld víða við útbreiðslu kórónuveirunnar COVID19. Forseti Filippseyja vill skjóta þá sem rjúfa sóttkví, en forseti Brasilíu segir fólki að...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!